Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Qupperneq 36

Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Qupperneq 36
34 sjálfir sína húsaleigu og einnig fyrir þá þjónustu sem í boði er og þeir kjósa að nýta sér. í íbúðunum á Dalbraut 21-27 eru 46 einstaklingsíbúðir og 18 hjónaíbúðir í raðhúsum. Þess má geta að þjónustan á Dalbraut er nokkuð meiri en í öðru leiguhúsnæði enda greiða íbúarnir mánaðarlega sérstakt þjónustugjald ásamt húsaleigu, rafmagni og hita. Á Dalbraut er vakt allan sólarhringinn og er öryggiskerfi tengt beint úr íbúð- um í aðalvaktherbergi. Hádegisverður er alla daga vikunnar en íbúar geta auk þess fengið keypt fullt fæði. Heimilishjálp og heimahjúkrun er eftir þörfum hvers og eins. Lítil verslun er á staðnum sem selur helstu nauð- synjar. Læknir er ráðinn fyrir heimilið og hefur hann fastan viðtalstíma tvisv- ar í viku einnig getur fólk haft heim- ilislækni að eigin vali. Félagsleg þjón- usta þ.e. hárgreiðsla, fótsnyrting og aðstoð við böðun er einnig í boði ásamt fjölbreyttu félags- og tóm- stundastarfi fyrir íbúana. Eins og áður hefur komið fram er nú verið að taka í notkun verndaðar leiguíbúðir á Lindargötu 61-66. Fyrir- hugað er að þar verði sambærileg þjónusta og á Dalbraut 21-27. Þar verður félags- og þjónustumiðstöð fyrir alla Reykvíkinga 67 ára og eldri og þá einkum ætluð þeim sem búa í næsta nágrenni. Áætlað er að hún verði tekin í notkun í maí á næsta ári. Nauðsynlegt er að vekja sérstaka athygli á því að ekkert þessara húsa getur mætt þörf fyrir hjúkrunarþjón- ustu. Því er gert ráð fyrir að þegar íbúi þarfnast stöðugrar og viðvarandi hjúkrunar sæki hann um vistun á hjúkrunarheimili. íbúðirnar sem hér hefur verið fjallað um eru eins og áður kom fram, leigu- íbúðir fyrst og fremst ætlaðar fyrir þá Reykvíkinga 67 ára og eldri sem búa við ótryggan leigusamning eða búa í óhentugu eða heilsuspillandi húsnæði. Þegar umsækjandi sækir um húsnæði þarf hann að útfylla eyðublöð sem fást bæði á aðalskrifstofu öldrunarþjón- ustudeildar í Síðumúla 39 og félags- og þjónustumiðstöðvum aldraðra. Læknisvottorð á sérstaklega hönnuð- um eyðublöðum þarf alltaf að fylgja umsóknum. Skilyrði til að sækja um er að vera orðin/n 67 ára og hafa búið í Reykjavík síðastliðin 7 ár. Flytjist umsækjandi úr höfuðborginni missir hann rétt sinn til leiguhúsnæðis á vegum Reykjavíkurborgar. Þegar sótt hefur verið um húsnæði er hver umsókn metin af starfshópi og grundvallast matið á félagslegum, fjárhagslegum og heilsufarslegum aðstæðum umsækjenda.

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.