Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Blaðsíða 45
Gunnhildur Gísladóttir iðjuþjálfi
43
VÍSINDAÞING ÖLDRUNAR-
FRÆÐAFÉLAGS ÍSLANDS
Dagana 24. og 25. september hélt
Öldrunarfræðafélag Islands vísinda-
þing á Hótel Loftleiðum.
Þingið var ætlað fyrir alla sem tengj-
ast á einhvern hátt öldruðum. Þar
mátti sjá fólk úr öllum heilbrigðisstétt-
um og einnig aðstandendur aldraðra.
Mæting var mjög góð og þingið tókst
í alla staði mjög vel.
Þar voru haldin tíu erindi og er ætlun
mín að rekja í stuttu máli innihald
þessara erinda.
Fyrstu tveir fyrirlestrarnir voru haldnir
af Dr. Margarethe Lorensen prófessor
í hjúkrunarfræði við háskólann í Osló.
Fyrra erindið hét "Holistic rehabilita-
tion of the elderly" og fjallaði Dr.
Margarethe þar um hve stóran þátt
öldrunarþjónusta á, innan heilbrigðis-
kerfisins. Hún ræddi um vaxandi þörf
fyrir öldrunarþjónustu bæði innan
sjúkrastofnana og utan. Einnig talaði
hún um þörf eldri borgara fyrir hjálp
þegar heilsa þeirra eða umhverfis-
aðstæður breytast. Dr. Margarethe
benti á að eldri borgarar og aðstand-
endur þeirra vilja gjarnan hafa at-
kvæðisrétt þegar ákvarðanir um heil-
brigðis- og félagsmál eru teknar.
Seinni fyrirlestur Dr. Margarethe hét
"The elderlys mastery of every day
activities of daily living. Environ-
mental control". Þar skýrði hún frá
sjálfshjálparlista sem útbúinn var
vegna skorts á skipulegra mati á sjálfs-
hjálpargetu eldra fólks. Listi þessi
byggðist upp á "Orem’s work on selv-
care" og mér virtist listi þessi svipa
mjög til færnismats þess sem við
iðjuþjálfar notum. Tekið var til grund-
vallar við gerð listans m.a. líkamlegt
og andlegt ástand og geta, félagslegar
aðstæður - bæði umhverfi og aðbún-
aður. Listinn er auðveldur í með-
förum og getur notast á sjúkrahúsum,
í dagvistunum og við heimaumönnun.
Næsta erindi var flutt af Matthildi
Valfells hjúkrunarfræðingi við öldrun-
ardeild Landspítalans. Heiti hans var
"Lyfjanotkun aldraðra í heimahúsum".
Fjallaði fyrirlesturinn um könnun sem
gerð var á aðal vandamálum í sam-
bandi við lyfjatöku aldraðra og inn-
byrðis vægi þeirra vandamála. þessi
fyrirlestur vakti mikla athygli og voru
niðurstöður könnunarinnar vægast
sagt ógnvekjandi. 67 einstaklingar
tóku þátt í könnuninni og var athugað
lyfjatökumynstur þeirra, athugað hvort
þau væru rétt tekin, hver sæi um
lyfjatiltekt og þekking þátttakenda á
lyfjunum könnuð. Einnig var athugað
hvort líkamleg vangeta hamlaði lyfja-
töku t.d. sjón, minni og geta til að
opna lyfjaglös.