Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Blaðsíða 35
Ásta Þórðardóttir
Margrét Sigurðardóttir
33
ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR FYRIR ALDRAÐA
í EIGU REYKJAVÍKURBORGAR
Kannanir sem gerðar hafa verið á
högum aldraðra sýna að langflestir
aldraðra einstaklinga á íslandi vilja
búa á eigin heimilum utan stofnana
svo lengi sem kostur er. Þrátt fyrir
það virðist þörf aldraðra fyrir breyt-
ingar á búsetu vera all veruleg. Ný-
byggingar þjónustuíbúða fyrir aldraða,
undanfarin ár, er mælikvarði þar á.
Hér er um að ræða annars vegar
leiguíbúðir á vegum sveitarfélaga og
hins vegar söluíbúðir sem byggðar
hafa verið á vegum sveitarfélaga svo
og ýmissa félagasamtaka.
A vegum Reykjavíkurborgar voru
fyrstu leiguíbúðir, eingöngu ætlaðar
öldruðum, teknar í notkun 1972 á
Norðurbrún 1. Tilgangurinn var fyrst
og fremst að mæta vaxandi þörf aldr-
aðra fyrir leiguhúsnæði. Upphaflega
var gert ráð fyrir að í þessum íbúðum
yrði engin sérstök þjónusta við íbúana
þar eð þeir áttu að vera sjálfbjarga að
mestu. Hins vegar hefur reynslan
orðið sú að þjónustuþörf íbúanna
hefur vaxið með árunum enda meðal-
aldur orðinn nokkuð hár.
Reykjavíkurborg á nú 220 verndaðar
leiguíbúðir, sem leigðar eru öldruðum
Reykvíkingum. Meðvernduðum leigu-
íbúðum er átt við íbúðir með tak-
markaða þjónustu. Þessar íbúðir eru í
fjölbýlishúsunum Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1, Lönguhlíð 3 og Dalbraut 21-
27. Einnig er nú og á næstu mánuð-
um verið að taka í notkun 56 vernd-
aðar leiguíbúðir á Lindargötu 61-66.
Auk þessa eru einnig leiguíbúðir fyrir
aldraða á vegum Reykjavíkurborgar
ætlaðar þeim sem ekki eru í þörf fyrir
sérstaka þjónustu.
í Norðurbrún 1, Furugerði 1 og Löng-
uhlíð 3 eru samtals 142 einstaklings-
íbúðir og 23 hjónaíbúðir. Sambærileg
þjónusta er veitt í öllum þessum hús-
um og er fólgin í húsvörslu, afnotum
af sameiginlegu rými og möguleikum
á að fá keyptan hádegismat alla virka
daga. Ýmiss konar félagslega þjónustu
er hægt að fá á staðnum svo sem
hárgreiðslu, fótsnyrtingu og aðstoð við
böðun. Einnig fer þar fram fjölbreytt
tómstundastarf. í Furugerði og Löng-
uhlíð eru auk þess litlar verslanir með
helstu nauðsynjar. Öryggiskerfi er í
öllum þessum íbúðum og vakt allan
sólarhringinn. Heimilisþjónusta er
veitt eftir þörfum og er háð einstakl-
ingsbundnu mati. Ibúar hafa sinn
eigin heimilislækni. Það skal tekið
fram að íbúar þessara húsa greiða