Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Blaðsíða 19

Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Blaðsíða 19
17 9-10 villur: alvarleg heilabilun Ef í ljós koma einhver merki um heilabilun má leggja fyrir viðkomandi ítarlegra próf. Annað þægilegt próf sem hefur þá eiginleika að vera gott próf samanber fyrri skilgreiningu, stutt, skýrt og ekki barnalegt er Mini Mental State Exa- mination, - MMSE - sem Folstein og félagar bjuggu til og stöðluðu. Þetta próf hefur verið þýtt og lagað að íslenskum aðstæðum af Kristni Tómassyni lækni. Prófun með Mini Mental State Exa- mination er fremur fljótleg, 10 til 15 mínútur. Það er hlutlaust, ópersónu- legt, stöðugleiki er mikill, þ.e. sama hver leggur prófið fyrir. Það þarf fáa aukahluti: 1 autt blað, penna og arm- bandsúr. Prófið skiptist í 5 þætti: 1. áttun (tími og staður) 2. næmi (læra nýtt, hlaða í minni) 3. athygli og reiknigeta (óhlutbundin hugsun) 4. einbeiting og minni (skammtíma minni) 5. mál (málskilningur og fram- kvæmdafærni) Prófið gefur samtals 30 stig en fái fólk 23 til 24 stig er ástæða til að vera vakandi fyrir byrjun á elliglöpum. Þetta eru svokölluð skim mörk. Ef stigin eru 21 eða minna er það talið öruggt að einhver glöp séu til staðar, en 15 stig og minna er merki um alvarleg glöp. Miðað við niðurstöður úr þessu prófi og engin líkamleg einkenni má álíta að einstaklingur með: - yfir 21 stig geti búið einn án eftirlits og aðstoðar, - 15-21 stig þurfi eitthvert eftirlit og aðstoð, - undir 15 stigum þurfi vistheimili eða hjúkrunarvist. Eins og minnst var á í upphafi þarf að hafa í huga þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar hvort um bráðarugl geti verið að ræða og einnig huga að geðslagi og líðan. Rétt er að endur- taka prófunina eftir nokkra daga ef grunur er um að þessir þættir hafi áhrif á prófunina. Stundum er þörf á að líta nánar á einstaka þætti vitrænnar starfsemi. Þá er oft notað próf eftir Lone Sörensen: Lone Sörensen kognitiv test, stytt útgáfa fyrir aldraða. Þetta próf er nokkuð lengra en ofannefnd próf, 30 til 40 mínútur þarf til að vinna það. Prófið gefur góðar upplýsingar um einstaka þætti vitrænnar starfsemi. Það er ekki staðlað. Prófið felst í verkefnum sem reyna þætti eins og: a) áttun b) minni c) verkgetu (praxiu) d) framkvæmdafærni Annar þáttur sem skipar stóran sess í öldrunarmati iðjuþjálfa er mat á at- höfnum daglegs lífs, ADL, þar sem meðal annars er metið hvort einstakl- ingurinn geti þvegið sér og snyrt, klætt sig, borðað sjálfur, komist um, tjáð sig og skilið aðra. Til eru próf- anir/möt sem gefa einstaklingnum einkunn s.s. Barthel Index af ADL og Katz Index of ADL. Þessi möt eru ekki mikið notuð af iðjuþjálfum því
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.