Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Qupperneq 47

Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Qupperneq 47
45 menn hafa komið á laggirnar en það eru sérstakar deildir fyrir sjúklinga sem eru með sjúkdómsgreininguna senil dement. Deildir þessar eru ætl- aðar fólki með truflun í atferli, erfið- leika í tjáskiptum, (apraxíu og/eða agnosiu) og eru ekki bundin við hjóla- stól. Áætlaður fjöldi er 6-9 einstakl- ingar á hverja deild. Umhverfið er heimilislegt, húsgögnin frá heimilum fólksins, í stað borðsals er eldhús þar sem borðað er, gluggar hafðir á hurðum svo hægt sé að at- huga hvað sé fyrir innan og gjarnan haft heimilisdýr t.d. köttur. Þessi aðbúnaður hefur leitt í ljós að íbú- arnir eru betur áttaðir, þurfa færri lyf og augljós minnkun er á óróleika fólksins. Norðmenn hafa síðan 1985 útbúið SE á fjöhnörgum hjúkrunarheimilum með góðum árangri. Þriðja erindið flutti Dr. Þuríður J. Jónsdóttir taugasálfræðingur á Land- spítalanum og hét það "Framvinda alzeimersjúkdóms metin með taugasál- fræðilegum aðferðum". Hún skýrði frá taugasálfræðilegri prófun sem gerð var á 44 einstaklingum með líklegan eða mögulegan alzeimersjúkdóm. Þar var metin einbeiting, hugrænn hraði, almenn vitræn geta, málskilningur og tjáning, minni, sjónræn úrvinnsla og verklag. Mat þetta var gert þrisvar sinnum með 6 mánaða millibili. Ekki var um marktæka hrörnun að ræða á tímabil- inu nema í þáttum sem lutu að tján- ingu, sjónrænni úrvinnslu og sjónrænu óyrtu minni. Niðurstaðan var sú að þegar alzeimer- sjúklingur kemst undir læknishendur eru margir þættir orðnir svo skertir að hrörnun er vart mælanleg með hefð- bundnum taugasálfræðilegum aðferð- um. Næsti fyrirlestur hét "Heilablóðflæðis- könnun (SPECT) við greiningu á orsökum heilabilunar" og var fluttur af Eysteini Péturssyni eðlisfræðingi. Eysteinn skýrði í máli og myndum frá þeim efnum sem notuð hafa verið í gegnum árin til að meta heilablóð- flæði s.s. Hexamethylpropyleneamine- oxime (AMPAO) og 99m-Tc- HMPAO. Síðasta erindið var flutt af Jóni Snæ- dal lækni á öldrunarlækningadeild Landspítalans og hét "Lyfjameðferð við minnistapi". Jón ræddi um rann- sóknir á lyfjum sem gerðar hafa verið í von um að koma í veg fyrir minnis- tap. Fyrir 20 árum var sett fram sú kenning að ástæða minnistaps væri truflun á myndun eða nýtingu kólín- ergiskra boðefna. Því hafa fjölmargar rannsóknir verið gerðar með forefni boðefnisins asetylkólíns, kólíns og lecitins en án árangurs. Rannsóknir með lyf sem hamla niðurbroti asetyl- kolins hafa sýnt nokkurn árangur og er THA þeirra þekktast. Síðustu ár hefur svo athygli manna beinst að lyfjum sem hafa áhrif á boðefnakerfi og samsetta meðferð. Enn er þó langt í land með að góð meðferð fáist við minnistapi. Eg vona að þetta stutta ágrip af inni- haldi vísindaþingsins hafi komið ykkur að einhverju gagni þó að þetta séu alls ekki tæmandi upplýsingar um hvern fyrirlestur fyrir sig.

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.