Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1926, Blaðsíða 43
Manntalið 1920
41
mikill hluti íbúanna á hverjum stað telst til þessara atvinnuvega. Á yEir-
litinu sjest, að í sýslunum lifa rúml. 3/4 íbúanna á þessum atvinnuvegum
báðum, en rúml. J/4 í kaupstöðunum og þar aðallega á sjáfarútvegi.
Handverk og iðnaður. Til þessa atvinnuvegar töldust 10 700 manns
1920 eða 11 °/o af landsbúum, en 1910 ekki nema rúml. 7000 manns
eða 8°/o af landsmönnum þá. Hefur þá fólki í þessum atvinnuvegi fjölgað
um 51 °/o á árunum 1910—20. Meir en helmingurinn af þessu fólki
1920 var í Reykjavík, enda taldist nálega J/3 af íbúunum þar til þessa
atvinnuvegar. I kaupstöðunum hinum taldist rúml. J/5 mannfjöldans til
iðnaðar, í verslunarstöðunum rúml. Vs, en í sveitunum ekki nema 2ll2°lo..
Handverki og iðnaði hefur verið skift í þessar undirdeildir.
Fram- Fram-
færendur færðir Samtals
Matvæla- og neysluiðnaður 293 381 674
Vefjariðnaður 425 198 623
Fataiðnaður og búningsstörf 1 226 654 1 880
Byggingarstörf og húsgagnasmíði . 1 899 3 482 5 381
Málmsmíði 463 736 1 199
Tekniskur og kemiskur iðnaður . . 131 248 379
Bóka- og listiðnaður 207 257 464
Oákveðin iðnaðaratvinna 31 66 97
Samtals 4 676 6 021 10 697
í eftirfarandi einstökum iðnaðargreinum eru framfærendur taldir
fleiri en 100.
Atvinnu- Aðstoðar- Verka-
rekendur fólk fólk Samtals
Bakarar 34 21 74 129
Prjón og spuni 38 » 248 286
Klæðskerar 33 3 152 188
Saumakonur 247 )) 432 679
Skósmiðir 97 » 99 196
Þvottur og fatahreinsun .. 20 1 120 141
Almenn byggingarstörf . . . 21 » 433 454
Múrarar 25 )) 78 103
Trjesmiðir 406 5 460 871
Járnsmiðir 78 2 83 163
Járnsteypa- og vjelasmiðjur 18 11 86 115
Prentarar .... 4 8 100 112
Verslun og samgöngur. Til þeirrar atvinnu töldust 11 600 manns
eða 12°/o af landsbúum, en 1910 var tilsvarandi tala rúml. 7000 eða
8°/o af landsbúum þá. Hefur þá fólki í þessum atvinnuvegi fjölgað um
64°/o á árunum 1910—20. Tæpur helmingur af þessu fólki var í Reykja-
vík eða um 30°/o af mannfjöldanum þar. í kaupstöðunum töldust til
þessarar atvinnu um V4 af íbúunum þar, en í verslunarstöðunum tæpl.