Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Blaðsíða 6
6 Fréttir Helgarblað 5.–8. desember 2014
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
„Þá hefði þetta
farið í gjaldþrot“
K
ári Þór Guðjónsson, sem
síðar var einn af kaupendum
eldisfyrirtækisins Fjarðalax,
reyndi sjálfur að finna kaup-
endur að fyrirtækinu fyrir
hönd þáverandi eigenda þess áður
en hann keypti það sjálfur í fyrra.
Hann segir að fyrirtækið hafi verið í
sölu í um ár án þess að kaupendur
fyndust. „Fyrirtækið var í sölu í næst-
um því heilt ár áður en það var selt
en það tókst ekki að selja það. […]
Ég var ráðgjafi eigenda í verkefninu.
Í fyrsta lagi að reyna að redda fjár-
mögnun,“ segir Kári.
Kaupverðið á fyrirtækinu var um
10 milljónir dollara en þar af var
skuld við eigendur Fjarðalax upp á
um 8 milljónir dollara.
Lét af störfum í Straumi
DV fjallaði um söluna á Fjarðalaxi á
þriðjudaginn var en þar kom meðal
annars fram að einn af kaupendun-
um, Halla Sigrún Hjartardóttir, var
framkvæmdastjóri fyrirtækjaráð-
gjafar fjárfestingarbankans Straums
sem fékk það verkefni að selja eldis-
fyrirtækið. Þegar kaupendur fundust
ekki að Fjarðalaxi ákváðu þau Kári,
Halla Sigrún og Einar Örn Ólafs-
son að kaupa fyrirtækið í gegnum
eignarhaldsfélagið Fiskisund ehf.
Halla Sigrún fór því frá því að vera
stjórnandi í bankanum sem átti að
selja Fjarðalax og yfir í að vera einn
af kaupendum fyrirtækisins. Í kjöl-
farið lét hún af störfum hjá Straumi
en starfslok hennar eru sögð hafa
verið „óhjákvæmileg“ í kjölfar við-
skiptanna með Fjarðalax. Halla Sig-
rún upplýsti forsvarsmenn Straums
um fyrirtætlanir sínar um að kaupa
Fjarðalax og var það á endanum með
samþykki eigenda Fjarðalax. Ekki er
hins vegar algengt að starfsmenn í
banka kaupi fyrirtæki sem bankarnir
sem þeir starfa hjá eru að selja.
Kári fór svo frá því að vera einn af
ráðgjöfum seljenda Fjarðalax og yfir í
að vera einn af kaupendunum.
Sami þriggja manna hópur – Kári,
Einar Örn og Halla Sigrún – hef-
ur verið til umfjöllunar í fjölmiðl-
um upp á síðkastið vegna hagnað-
ar þriggja eignarhaldsfélaga í þeirra
eigu á hlutabréfum í færeyska olíufé-
laginu P/F Magni. Íslenskir lífeyris-
sjóðir keyptu P/F Magn og Skeljung
í fyrra fyrir um átta milljarða króna.
Stefndi í gjaldþrot
Kári segir að staða Fjarðalax hafi ver-
ið orðin slæm um fyrir haustið 2013
þegar kaupendur hafi ekki fundist
að fyrirtækinu. Fjármagn hafi þurft
inn í reksturinn til að kaupa fóð-
ur fyrir laxinn sem fyrirtækið fram-
leiðir. „Ástæðan fyrir því að félagið
var selt á þessum tíma er að haustin
eru stærsti tíminn þar sem þarf að
gefa fóður og það var fleiri hundruð
milljóna króna gat í rekstrinum,“ seg-
ir Kári en hann telur að fyrirtækið
hefði farið á hausinn á nokkrum vik-
um ef ekki hefði komið nýtt fjármagn
inn í reksturinn: „Þá hefði þetta farið
í gjaldþrot á kannski sex til átta vik-
um.“
Hætt við að síðustu stundu
Kári segir að búið hafi verið að finna
kaupanda að Fjarðalaxi skömmu
áður en þremenningarnir keyptu
fyrirtækið. „Í raun og veru var kom-
inn á samningur við innlenda aðila
sem vildu kaupa þetta. […] Það gekk
hins vegar ekki upp að kaupa félagið
á tveimur til þremur vikum án þess
að gera áreiðanleikakönnun og þess
vegna duttu menn út. […] Ég var nátt-
úrulega bara einhvers konar fulltrúi
eigenda að reyna að forða því að fyrir-
tækið færi í þrot. Á endanum sting ég
upp á þessum viðskiptum og eigend-
ur samþykkja það að það megi reyna
þessa leiða og samþykkja það að Halla
fengi þá að vera með í þessu, taka þátt
í þessum kaupum,“ segir Kári.
Kári segir því að búið hafi verið
að „fullreyna“ að finna kaupendur
að fyrirtækinu en DV greindi með-
al annars frá því á þriðjudaginn að
Samherja hefði verið boðið að kaupa
eldisfyrirtækið. Kári segir að fleiri að-
ilum hafi verið boðið Fjarðalax ehf.,
meðal annars Fiskeldi Austfjarða, en
enginn kaupandi hafi fundist. n
Kári Þór Guðjónsson vann fyrir eigendur Fjarðalax en keypti svo fyrirtækið sjálfur
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Ég var náttúru-
lega bara einhvers
konar fulltrúi eigenda að
reyna að forða því að fyr-
irtækið færi í þrot
Kaupverðið um 10 milljónir dollara
Kaupverðið á Fjarðalaxi var um 10 milljónir
dollara en þar af var skuld við seljendur upp
á 8 milljónir. Einar Örn Ólafsson var einn af
kaupendunum.
Fjármagn þurfti fyrir fóðri Kári segir að Fjarðalax á Tálknafirði hafi skort fjármagn fyrir laxafóðri og að kaup þeirra þremenninganna
hafi komið í veg fyrir gjaldþrot fyrirtækisins. Halla Sigrún Hjartardóttir var einn af kaupendunum.
Nær sér aldrei
Reynir Þór Jónsson og Carst-
en Staffelde voru á fimmtudag
dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir
stórfellda líkamsárás í Grundarf-
irði í júlí. Mennirnir eiga að greiða
fórnarlambi sínu, karlmanni á
þrítugsaldri, eina og hálfa milljón
í miskabætur. Mennirnir réðust
á hann þann 17. júlí síðastliðinn.
Þeir neituðu sök, en myndbands-
upptaka staðfestir hluta árásar-
innar, að því er Vísir greinir frá.
Mennirnir voru skipverjar á
togaranum Baldvin NC100 og
sátu að sumbli á veitingastaðnum
Rúben, áður en þér héldu aftur
til skips. Til orðaskipta kom milli
mannanna og fórnarlambsins og
upphófust slagsmál. Mennirn-
ir slógust í stutta stund, en fórn-
arlambið missti meðvitund og
hlaut alvarlegan heilaskaða.
Læknar telja litlar líkur á því að
hann fái til baka það minnistap
sem hann varð fyrir og segja ólík-
legt að hann nái sér að fullu.
Stærsta félag Hannesar FI fjár-
festingar var stærsta félag Hannesar
Smárasonar en skiptum á félaginu er
nú lokið. Ekkert fæst upp í ríflega 46
milljarða króna kröfur.
Ekkert fékkst upp í 46 milljarða kröfur
Skiptalok hjá stærsta félagi Hannesar Smárasonar
K
röfuhafar eignarhaldsfélags
fjárfestisins Hannesar Smára-
sonar, FI fjárfestinga ehf., lýstu
rúmlega 46 milljarða króna
kröfum í þrotabú félagsins. Ekkert
fékkst upp í þessar kröfur samkvæmt
auglýsingu um skiptalok félagsins í
Lögbirtingablaðinu. Félagið var úr-
skurðað gjaldþrota í desember 2011.
FI var stærsta fjárfestingafélag
Hannesar á árunum fyrir hrunið en
það hét áður Primus. Primus hélt
meðal annars utan um hlutabréf
Hannesar í fjárfestingafélaginu FL
Group, í gegnum félög á Íslandi og í
Hollandi. Hannes var í sjálfskuldar-
ábyrgð upp á 400 milljónir króna
vegna lána félagsins. Slitastjórn
Glitnis höfðaði mál gegn Hannesi til
að láta reyna á þessa sjálfskuldará-
byrgð en hún var vegna láns sem fé-
lagið fékk hjá Glitni í desember árið
2007. Þá hafði Hannes látið af störf-
um sem forstjóri FL Group eftir að
félagið skilaði milljarða tapi á fyrstu
þremur ársfjórðungum ársins 2007.
Hannes hefur haft hægt um sig
í fjárfestingum á Íslandi síðastliðin
ár enda hefur hann ekki verið bú-
settur hér á landi. Eftir hrunið 2008
bjó hann fyrst í London en síðan
í Barcelona. Hann hefur nú söðl-
að um og starfar á sviði vísinda og
erfðatækni fyrir fyrirtækið Next Code
Health sem er í eigu fyrirtækisins
Amgen, lyfjaþróunarfyrirtækis sem
keypti Íslenska erfðagreiningu í lok
árs í fyrra. n ingi@dv.is
Athugun lokið
Umboðsmaður Alþingis hef-
ur lokið athugun sinni á
ábendingu sem barst í nóv-
ember í tengslum við frum-
kvæðisathugun á samskiptum
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur,
fráfarandi innanríkisráðherra,
og Stefáns Eiríkssonar, fyrrver-
andi lögreglustjóra á höfuð-
borgarsvæðinu.
Á næstu dögum verður
unnið úr gögnum sem hann
hefur safnað. Ekki liggur fyrir
hvenær unnt verður að birta
niðurstöðuna en vonast er til
að það verði sem fyrst.
Athugunin hefur staðið
yfir frá því DV fjallaði fjallaði
fyrst um málið í sumar og ætl-
aði umboðsmaður sér að birta
niðurstöðuna í þar síðustu viku.
Birtingu var hins vegar
frestað sökum þess að emb-
ætti umboðsmanns barst
„ábending um tiltekið atriði í
tengslum við athugunina sem
nú er unnið að því að kanna.“