Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Blaðsíða 50
50 Fólk Helgarblað 5.–8. desember 2014
Sölvi selur
spjarirnar
Sölvi Tryggvason er á kafi í
jólahreingerningu ef marka má
Facebook-síðu hans þar sem
fjölmiðlamaðurinn auglýsir föt-
in sín til sölu. Líklegt verður að
teljast að þar finnist ýmsir fjár-
sjóðir enda Sölvi annáluð tísku-
lögga sem er ávallt með stílinn
á hreinu.
Skósafn Sölva er löngu frægt
en fyrir tveimur árum viður-
kenndi sjónvarpsmaðurinn að
eiga yfir 50 pör af skóm. Í kjölfar-
ið sköpuðust hressandi umræð-
ur þar sem Sölvi lét ekki sitt eftir
liggja og lýsti því yfir að hann
einfaldlega elskaði skóna sína
og væri líklega samkynhneigð-
asti gagnkynhneigði karlmaður
á Íslandi.
Pálmi í
þrusu formi
Samkvæmt heimildum DV er
leikarinn Pálmi Gestsson kominn
í þrælgott líkamlegt form. Pálmi
hefur æft af krafti í World Class
í Laugum og hefur líklega aldrei
verið í betra formi.
Leikarinn, sem er 57 ára, var
um tíma í fjarþjálfun hjá Agli
„Gillz“ Einarssyni en hefur upp
á síðkastið sést í fylgd útvarps-
mannsins og kraftajötunsins
Ívars Guðmundssonar.
Kunnugir segja Pálma lyfta
100 kílóum í bekk og að hann
bæti sig vikulega.
S
alka Sól söng- og fjölmiðla-
kona hefur í nógu að snú-
ast þessa dagana. Fyrir utan
að vinna á Rás 2 er hún önn-
ur söngkona hljómsveitar-
innar AmabAdama og er meðlimur
í Reykjavíkurdætrum. Eins eru hún,
Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Tinna
Sverrisdóttir bæjarlistamenn Kópa-
vogsbæjar. AmabAdamA gaf út sína
fyrstu plötu á dögunum og munu þau
halda upp á það í Gamla bíói 18. des-
ember næstkomandi og á Akureyri
daginn eftir.
Yndislegt andrúmsloft
„Það er yndislegt andrúmsloft uppi í
útvarpshúsi,“ segir Salka þegar hún er
spurð um starfið sitt þar. „Það er sér-
staklega gott eftir að sett var upp lítið
kaffihús fyrir ofan Markúsartorg. Þar
er æðisleg kaffivél, taflborð og borð.
Fólk fer svo þangað í kaffipásunum
sínum til þess að spjalla aðeins og það
myndast oft ansi skemmtileg stemn-
ing þarna.“
Ólst upp við Rás 2
Salka er alin upp við það að hlusta á
útvarpið og þá aðallega Rás 2 frá því
að hún var krakki. Hana langaði alltaf
að vinna í fjölmiðlum við dagskrá-
gerð. „Ég vissi ekki alveg hvað fælist í
slíkri vinnu eða hvernig maður kæm-
ist í hana, en þetta langaði mig að
vinna við. Ég frétti svo að það vantaði
einhvern í afleysingar á Virka morgna
á Rás 2. Ég stökk á það og náði að
sannfæra dagskrárstjórann um að
ráða mig. Samstarfið gekk svo vel að
ég fékk áframhaldandi starf. Mér þyk-
ir afskaplega vænt um Rás 2 og finnst
gaman að vinna þar.“
Samnýting starfsmanna
Ein ný stefna RÚV er að samnýta
starfsfólk sjónvarpsins og útvarpsins.
Hingað til hefur þetta verið að mestu
leyti aðskilið, en
nú er farið að
nýta starfskrafta
beggja megin.
„Ég var í ein-
um Útsvarsþætti
sem gekk mjög
vel. Ég verð líka
í söfnunarþætti
fyrir jólin sem
heitir Geðveik
jól og jólavöku
RÚV þann 20.
desember. Eftir
áramótin verð
ég svo með inn-
slög í Gettu bet-
ur. Með þessari
samnýtingu er
verið að gera
fyrirtækið að
aðeins meiri
heild sem mér
finnst ótrúlega
fallegt.“
Fjölmiðla-
fulltrúi Secret Solstice
Aðstandendur Secret Solstice höfðu
samband við Sölku og spurðu hana
hvort hún væri ekki til í að taka þátt í
undibúningi næstu hátíðar sem fjöl-
miðlafulltrúi þeirra sem hún þáði.
„Það fer alveg að detta í stóra tilkynn-
ingu frá Friðriki Jónssyni og öðrum
aðstandendum Secret Solstice-há-
tíðarinnar um hverjir verða á hátíð-
inni á næsta ári. Ég má ekki segja mik-
ið um það en ég veit að það verður
„heví næs“. En nöfnin sem ég er búin
að heyra eru algjört „gourmet“.“
Fyrstu tónleikarnir á hátíðinni
„Ég spilaði á Secret Solstice, þegar
hún var haldin í fyrsta skipti fyrr á ár-
inu og það voru eig-
inlega mínir fyrstu
stóru tónleikar með
AmabAdamA. Við
vorum á næststærsta
sviðinu. Þannig að
ég á ótrúlega góðar
minningar frá hátíð-
inni. Það var meira
af raftónlist á síðustu
hátíð og þó það verði
mikið af slíkri tónlist
næst þá verður meira
af öðru næst. Það
verður meira af tón-
list úr öllum áttum,
það ættu allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Þeir sem
standa bak við hátíðina eru afskaplega
framtakssamir og flottir strákar. Þeir
báðu mig um að vera partur af hópn-
um og ég tók því fagnandi.“
Einn af stofnendum
Reykjavíkurdætra
Salka er ein af stofnendum kvenna-
grúppunnar Reykjavíkurdætur en er
óvirkur meðlimur eins og er. „Grúpp-
an er svolítið þannig að þó að ein-
hver sé ekki virkur í henni, þá er hann
samt enn meðlimur. Það er búið
að vera mikið að gera hjá mér með
plötuna hjá AmabAdamA, þannig að
ég tók mér smá pásu. En ég er ennþá
alveg að rappa og svona.“
Rappar með krökkum
í Kópavogi
Salka, Þuríður Blær Jóhannsdóttir og
Tinna Sverrisdóttir eru allar meðlimir
Reykjavíkurdætra og voru valdar sem
bæjarlistamenn Kópavogsbæjar. „Við
fengum svolítið frjálsar hendur varð-
andi hvað við vildum gera við þenn-
an titil. Við ákváðum að fara í skóla og
láta gott af okkur leiða þar með rapp-
fyrirlestranámskeiðum. Einhvern
veginn kem ég því fyrir að flakka
á milli grunnskóla í Kópavogi alla
fimmtudaga og föstudaga. Við erum
með klukkutíma fyrirlestra og erum
að fá krakka til þess að rappa. Þetta
er algjör snilld. Þau eru svo tilbúin til
þess að taka þátt og hafa gaman af. Ég
held að við séum búin að sá fullt af
litlum rappfræjum í Kópavogi.“
Vertu þú sjálfur
„Þetta snýst ekki bara um það að
rappa, við viljum kenna þeim að
koma fram með það sem þau hafa.
Maður á ekki alltaf að vera að rit-
skoða sjálfan sig eða bera sig saman
við aðra, heldur frekar að koma fram
með það sem maður hefur og fá þá
tækifæri til þess að bæta sig.
Reykjavíkurdætur hafa alltaf stað-
ið fyrir því. Komdu fram með það
sem þú hefur og við erum vettvangur
til þess að gera það. Komdu svo aftur
með okkur næst og vertu betri. Mað-
ur verður að fá tækifæri til að koma
fram til þess að geta bætt sig. Það eru
svo margir sem sitja bara inni í horni
og gera ekki neitt því þeim finnst þeir
ekki nógu flottir eða góðir og fá þá
aldrei æfingu.
Við erum líka allar þrjár leiklistar-
menntaðar, þannig að við erum svo-
lítið að kenna framsögu líka. En
þetta er vinna, það er klukkutími á
hvern hóp. Við byrjum alltaf á því að
spjalla við þau og finnum hvað þeim
brennur á hjarta og það er alltaf eitt-
hvað. Til dæmis að það sé ömurleg-
ur matur í matsölunni, að þau megi
ekki vera með síma í skólanum eða
jafnvel eitthvað jákvætt sem þau vilja
tala um.“
Gefandi vinna
Þrátt fyrir miklar annir er hún ham-
ingjusöm. „Allt sem ég geri er mjög
gefandi. Mér líður vel í því sem ég er
að gera. Stundum finn ég ekki fyrir því
hvað það er mikið að gera fyrr en ég er
alveg búin á því, þetta er allt svo gef-
andi og á mínu áhugasviði. Þetta er
búið að vera mjög skemmtilegt ár og
viðburðaríkt,“ segir Salka að lokum. n
Mikilvægt að ritskoða
sig ekki of mikið
n Salka Sól heldur rappfyrirlestranámskeið n Yndislegt andrúmsloft á RÚV
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
Salka teiknuð af Solveigu
Pálsdóttur Solveig, einn meðlima
Reykjavíkurdætra, teiknaði alla meðlimi
grúppunnar.
Með AmabAdamA
Reggíhljómsveitin
AmabAdamA hefur
gert það gott upp á
síðkastið.
MYnD DAVíð ÞÓR GuðlAuGSSon
„Ég held að
við séum
búin að sá fullt af
litlum rappfræj-
um í Kópavogi
Botninn
200 g Ljóma
5 egg
4 dl sykur
4 dl hveiti
1 dl kakó
2 tsk lyftiduft
2 tsk vanillusykur
2 dl mjólk
Hitið ofninn í 200 gráður og
smyrjið skúukökuform.
Bræðið Ljómann og látið hann
kólna.
Hrærið egg og sykur þar til það
verður ljóst og létt.
Blandið hveiti, kakói, lyftidufti
og vanillusykri saman og sigtið
það út í deigið.
Setjið Ljóma og mjólk út í og
hrærið þar til deigið verður
slétt.
Hellið deiginu í bökunarformið
og bakið í miðjum ofni í 20–25
mínútur.
Skúffukaka
Glassúr
75 g Ljóma
1/2 dl sterkt ka
4 dl flórsykur
2 msk kakó
2 tsk vanillusykur
Bræðið Ljómann. Setjið
þurrefnin í skál og hrærið
saman við bræddan
Ljómann og kað.
Leyfið kökunni að kólna aðeins
áður en glassúrinn er settur á.
Setjið kókosmjölið yfir kökuna
og njótið.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
33
40
2
Salka Sól Fyrir utan
tónlistina er hún alltaf
í Popplandi á virkum
dögum og Hanstéli á
laugardögum.
MYnD SiGGA EllA