Bændablaðið - 29.01.2015, Qupperneq 1

Bændablaðið - 29.01.2015, Qupperneq 1
2. tölublað 2015 ▯ Fimmtudagur 29. janúar ▯ Blað nr. 435 ▯ 21. árg. ▯ Upplag 32.000 Bændahöllin við Hagatorg verður áfram í eigu íslenskra bænda: Tilboðum í Hótel Sögu hafnað − ekkert fjögurra kauptilboða fjárfesta þótti nógu hagstætt að mati stjórnar Bændasamtaka Íslands Bændasamtök Íslands hafa ákveðið að ganga ekki til viðræðna um sölu á Hótel Sögu á grundvelli fyrirliggjandi tilboða sem fram komu í söluferli sem fyrirtækjaráðgjöf MP banka annaðist. Það er mat stjórnar Bænda- samtakanna að hagstæðara sé að halda áfram góðum rekstri hótelsins fremur en að ganga að fyrirliggjandi tilboðum. Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir stjórnina vera ánægða með þann áhuga sem fram hafi komið í þessu söluferli. „Því miður bárust okkur ekki nægilega hagstæð tilboð til að skynsamlegt sé að selja eignina á þessum tímapunkti. Okkar markmið er að ávaxta eignir samtakanna með sem bestum hætti. Þegar við lögðum mat á fyrirliggjandi tilboð komumst við að þeirri niðurstöðu að á þessum tímapunkti þjónaði áframhaldandi rekstur hótelsins betur því markmiði.“ Ráðist verður í endurbætur á hótelinu „Það hefur verið mikil gróska í ferða þjónustu á Íslandi undanfarin misseri. Næstu skref hjá okkur eru að hefja vinnu við endurbætur á hótelinu til að tryggja að Hótel Saga hafi áfram þann virðulega sess sem það hefur ávallt haft í hugum Íslendinga.“ − Þýðir þetta að öllum hug- myndum um að Bændasamtökin selji hótelið séu endanlega slegnar út af borðinu? „Nei, en þetta þýðir að því söluferli sem var í gangi er lokið. Við munum hins vegar vinna áfram með ráðgjöfum okkar að því markmiði sem við höfum sett okkur sem er að tryggja ávöxtun eigna samtakanna með sem bestum hætti.“ Það verður að muna að Hótel Saga er mikilvægur hluti af sögu samtaka bænda á Íslandi. Við verðum því að vanda okkur í hverju skrefi en ef nýjar lausnir bjóðast þá verðum við að sjá að þær þjóni því markmiði að efla samtökin. Tekjur af eignum eru snar þáttur í fjármögnun samtakanna. Þetta er raunar ekkert einsdæmi fyrir félagasamtök, hvorki hérlendis né erlendis, og t.d. þekkjum við þessa stöðu frá systursamtökum okkar á Norðurlöndum sem við horfum nú oft til sem fyrirmyndar.“ Sex óskuldbindandi tilboð bárust Bændasamtökin hófu söluferli Hótels Sögu með tilkynningu hinn 19. nóvember síðastliðinn og óskuðu þá eftir formlegum tilboðum í kaup á fasteign og rekstri Hótels Sögu. Var ákveðið að fara í þetta ferli eftir að fjöldi fyrirspurna hafði borist um kaup á hótelinu. Fyrirtækjaráðgjöf MP banka var ráðin til þess að sjá um söluferlið og annast kynningu fyrir áhugasama kaupendur með gagnsæjum hætti til að tryggja jafnræði meðal áhugasamra fjárfesta. Frestur til að gera óskuldbindandi tilboð var gefinn til 12. desember 2014 og bárust þá sex tilboð. Fjórir hópar lögðu fram skuldbindandi tilboð Ákveðið var að gefa völdum tilboðsgjöfum tækifæri til að leggja fram skuldbindandi tilboð og fengu þeir í framhaldinu að skoða fasteignina og ítarleg gögn um reksturinn. Gefinn var frestur til 16. janúar sl. til að leggja fram skuldbindandi tilboð og bárust fjögur tilboð. Sem fyrr segir er það mat stjórnar Bændasamtakanna að ekkert fyrirliggjandi tilboða sé nægilega hagstætt. Hótelið er í eigu Hótels Sögu ehf. sem er 50 ára gamalt fyrirtæki í eigu Bændasamtaka Íslands. Á hótelinu eru 209 herbergi, tíu funda- og veislusalir og tveir veitingastaðir. Þar starfa um 100 manns. Fasteign Hótels Sögu ehf. við Hagatorg er um 19.000 fermetrar að stærð og hýsir hótelstarfsemi, veitingastaði, banka, hárgreiðslustofu, líkams- ræktarstöð o.fl. Skrifstofur Bændasamtaka Íslands eru á þriðju hæð fasteignarinnar og þar eru ritstjórnarskrifstofur Bændablaðsins einnig til húsa. Bændasamtökin þakka þeim sem tóku þátt í söluferlinu fyrir áhugann og einnig starfsfólki Hótels Sögu og MP banka fyrir þá vinnu sem þau lögðu til í ferlinu. /HKr. Gróa Margrét Lárusdóttir og Sigurður Ólafsson eru bændur á Brúsastöðum í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu. Bú þeirra var afurðahæsta kúabú landsins að meðaltali á síðasta ári. Kýrnar á Brúsastöðum skiluðu í heild um 389 þúsund kílóum mjólkur og var hver kú þá að skila 7.896 kg að meðaltali. Hefur árangur búsins í mjólkurframleiðslunni verið afar góður ár eftir ár. Mynd / HKr. Vordægur við Mývatn 14 26 Mæði-visnuveirur í sauðfé og tengslin við alnæmi 36 Síðasti bananinn

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.