Bændablaðið - 29.01.2015, Side 10

Bændablaðið - 29.01.2015, Side 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015 Fréttir Áður auglýstur umsóknarfrestur um styrki til varna gegn landbroti er nú framlengdur til 20. febrúar 2015. Landgræðsla ríkisins auglýsir eftir umsóknum um styrki til varna gegn landbroti. Um er að ræða styrki sem veittir eru til slíkra verkefna skv. lögum nr. 91/2002 um varnir gegn landbroti. Styrkirnir eru veittir til hvers konar verkefna til varnar því að vatnsföll eyði mannvirkjum eða gangi á gróið land. Við forgangsröðun verkefna er m.a. höfð hliðsjón af verðmæti þeirra mannvirkja eða lands sem landbrot ógnar. Umsóknarfrestur er framlengdur til 20. febrúar 2015. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru á heimasíðu Landgræðslunnar, www.land.is , en einnig er hægt að hafa samband við Landgræðsluna í Gunnarsholti, sími 488 3000 og verkefnastjóra Varna gegn landbroti Sigurjón Einarsson í síma 8560432. Umsóknum skal skila til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella eða á netfangið land@ land.is. /VH Landgræðslan − styrkir til varna gegn landbroti: Umsóknarfrestur framlengdur Mjólkursamsalan og Matís: Gera samstarfssamning um rannsóknir á skyri og mysu Mjólkursamsalan og Matís hafa gert með sér fimm ára samstarfssamning um rannsóknir á skyrgerlum og mysu samkvæmt því sem segir á frétt á vef Matís. Jón Axel Pétursson, fram- kvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs MS, segir að fyrirtækið sé mjög spennt fyrir þessu samstarfi sem fyrirtækin hafa náð samkomulagi um. „Í skyrinu og íslenska skyrgerlinum leynast mikil verðmæti eins og við höfum séð mjög greinilega út frá jákvæðri söluþróun okkar á skyri á Norðurlöndum, en salan á síðasta ári þar jókst um 85% og er nú í heildina orðin um og yfir 13.000 tonn,“ segir Jón Axel. Það er full ástæða til að rannsaka frekar íslenska skyrgerilinn og sérstöðu hans og hvernig nýta megi hann til að gera skyrið að enn verðmætari útflutningsvöru en það er í dag. „Að fá aðgang að því hæfa og góða fagfólki í vísindum og rannsóknum sem vinnur hjá Matís er því mjög verðmætt fyrir okkur og við bindum miklar vonir til framtíðar um þetta samstarf okkar,“ segir Jón Axel. „Enn fremur ætlum við í sameiningu að rannsaka betur eiginleika mysunnar og með hvaða hætti unnt er að gera meiri verðmæti úr henni heldur en gert er í dag.“ Að sögn Odds Más Gunnarssonar, sviðsstjóra viðskiptaþróunar Matís, sér fyrirtækið mikil tækifæri í því að vinna með MS. Matís er leiðandi rannsóknarfyrirtæki í matvæla-, líftækni- og umhverfisrannsóknum og fyrirtækið er mjög vel búið til að takast á við verkefni sem þessi. „Mikil þekking er innan Matís á hvers kyns örverum og mun sú þekking nýtast vel til rannsóknar á skyri og skyrgerlum. Mysan er ekki minna áhugavert hráefni sem býður upp á mikla möguleika til aukinnar verðmætasköpunar. Með samstarfi Matís og MS skapast gríðarleg tækifæri til nýsköpunar,“ segir Oddur Már. „Samstarfið við MS fellur auk þess vel að grunngildum í starfsemi Matís en hjá fyrirtækinu er lögð áhersla á að vinna að fjölbreyttum verkefnum í matvælaiðnaði þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og verðmætaaukningu,“ segir Oddur Már enn fremur. Víða við landið er að finna beltisþara í töluverðu magni en sennilega er hvergi jafnmikið af honum og í Breiðafirði. Hugmyndir hafa verið uppi um mögulega nýtingu hans og því var ráðist í rannsóknir á þeim atriðum sem hafa þarf í huga til að fá sem besta vöru úr hráefninu. Uppskerutími í maí og júní Á heimasíðu Matís segir að uppskerutími þarans sé í maí og júní en þá er hann laus við ásætur að mestu leyti. Mismunandi efnainnihald reyndist vera í þaranum eftir aldri hans, ungur beltisþari innihélt t.a.m. minna prótein og salt en ársgamall beltisþari sem safnað var á sama tíma, joðmagn reyndist hins vegar hærra í yngri þaranum. Töluverður munur kom í ljós á útliti, bragði og áferð eftir þeirri meðhöndlun sem þarinn fékk. Réttur uppskerutími og með- höndlun geta því haft úrslitaáhrif á gæði hráefnisins og þeirra afurða sem unnar eru úr því. Styrkt af AVS sjóðnum Verkefnið var styrkt af AVS sjóðnum og unnið í samstarfi Matís og Íslenskrar bláskeljar í Stykkishólmi. Skýrslu um verkefnið má finna á vefsíðu Matís, nánari upplýsingar veitir Þóra Valsdóttir hjá Matís. /VH Gæðaþættir við vinnslu og verkun beltisþara Oddur Már Gunnarsson, sviðsstjóri viðskiptaþróunar Matís, og Jón Axel Pétursson, framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs MS, undirrita samstarfssamning fyrirtækjanna tveggja. Beltisþari. Mynd / Símon Sturluson. Aldin apabrauðstrés. Prófa lítt þekktar nytjaplöntur: Nytjaplöntur framtíðarinnar Verið er að gera tilraunir með ræktun um eitt hundrað nytjaplantna sem þekktar eru meðal ýmissa ættbálka og þjóðflokka í Afríku en ekki í almennri ræktun. Í Afríku er að finna fjölda nytjaplantna sem ekki þekkjast annars staðar í heiminum og margar þeirra eru einungir ræktaðar á afmörkuðum svæðum og því lítið vitað um gildi þeirra. Rannsóknarstofnun í nytja plöntum í Kenía hefur hleypt af stokkunum verkefni sem felst í að rækta um eitt hundrað þessara plantna með það í huga að kann gildi þeirra sem nytjaplöntur í stórum stíl í framtíðinni. Meðal tegunda sem verið er að prófa er lítt þekktar tegundir af maís, hveiti og hrísgrjónum auk apabrauðstrés, köngulóaplöntu og tegundar sem kallast amarant. Allar þessar tegundir hafa lengi verið nytjaplöntur innfæddra en lítill gaumur gefinn í tæknivæddum landbúnaði. Tilgangurinn með ræktuninni er að finna næringarríkar tegundir og framrækta þær áfram til aukinnar ræktunar. Rannsóknin er hluti af sístækkandi verkefni sem kallast Crops for the Future eða nytjaplöntur framtíðarinnar og er í samstarfi innfæddra, gróðurnytja og mannfræðinga. /VH Landbúnaðarnefnd Blönduósbæjar: Óánægja með úrskurð óbyggðanefndar Landbúnaðarnefnd Blönduós- bæjar lýsir yfir óánægju með úrskurð óbyggðanefndar sem úrskurðaði í síðasta mánuði að Skrapatungurétt, F a n n l a u g a r s t a ð i r o g Skálahnjúkur teldust til þjóðlendna. Nefndin hvetur sveitarstjórn Blönduósbæjar til þess að áfrýja úrskurðinum til dómstóla en hver sá sem ekki vill una úrskurði óbyggðanefndar skal höfða einkamál innan sex mánaða frá útgáfudegi þess Lögbirtingablaðs sem úrdráttur úr úrskurði sé birtur í. Óbyggðanefnd kvað upp úrskurð sinn 19. desember síðastliðinn í ágreiningsmálum um þjóðlendur á svonefndu svæði 8 norður. Svæðið tekur til Húnavatnssýslu vestan Blöndu ásamt Skaga og skiptist í svæðin Skaga, Húnavatnshrepp, Húnaþing vestra, syðri hluta og Vatnsnes. Í úrskurðinum er m.a. fallist á að Skrapatungurétt, ágreiningssvæði vegna Fannlaugarstaða og ágreiningssvæði vegna Skálahnjúks væru þjóðlendur. /MÞÞ Frá Blönduósi. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.