Bændablaðið - 29.01.2015, Síða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
sums staðar hliðarbúskapur með
hrísgrjónaræktinni.
500 milljón tonn
Hrísgrjón eru þriðja mest ræktaða
planta í heimi á eftir hveiti og maís
og nam heimsframleiðsla á þeim árið
2013 tæpum 500 milljón tonnum og
þar af rækta Kínverjar rúmlega 200
þúsund tonn. Meðalframleiðsla á
hektara er rúm 4,5 tonn en í Ástralíu
þar sem hún er mest er uppskeran
yfir 10 tonn á hektara.
Til samanburðar er þorskkvóti
Íslendinga fyrir fiskveiðiárið 2014
til 2015 218 þúsund tonn.
Af öðrum löndum sem framleiða
mikið af hrísgrjónum má nefna
Indland, Indónesíu, Víetnam, Taíland,
Brasilíu og Japan. Langstærstur hluti
hrísgrjónaframleiðslu þessara ríkja
er ræktaður af smábændum og fer til
manneldis innanlands. Þar sem mest
er neytt af hrísgrjónum er hún um
500 grömm á dag en meðalneysla
Evrópubúa er um þrjú kíló á ári.
Taíland er stærsti útflytjandi
hrísgrjóna í heiminum og flytur út
um átta milljón tonn á ári, Víetnam
er í öðru sæti með tæp fjögur þúsund
tonn og Bandaríkin í því þriðja og
flytur út tæp þrjú milljón tonn á ári.
Japanir framleiddu svo mikið
af hrísgrjónum á tímabili að það
hlóðst upp hjá þeim hrísgrjónafjall
ekki ósvipað kjötfjalli Íslendinga á
níunda áratugnum.
Land sem notað er í heiminum
undir hrísgrjónarækt er áætlað um
160 milljón hektarar, sem gerir
Ísland að hálfgerðu hrísgrjóni í
samanburði, en flatarmál Íslands er
um 10.400 hektarar.
Landbrot, rotnun jurtaleifa
og losun gróðurhúsalofttegunda
út í andrúmsloftið vegna
hrísgrjónaræktunar er svo mikil að
hún er talin ein af ástæðum hlýnunar
jarðar.
Tímafrek ræktun
Hrísgrjónarækt er víðast hvar
tímafrek og krefst mikils
mannskapar. Þar sem hrísgrjón eru
ræktuð í vatni er plöntunum plantað
og þær uppskornar með höndum.
Plægja þarf akrana, halda við
áveitum, forrækta plöntur af fræi til
útplöntunar, sem tekur 25 til 50 daga,
og sinna þeim yfir vaxtartímann.
Vinnan við ræktunina er því yfirleitt
á félagslegum grunni þar sem allir
íbúar samfélagsins vinna saman
og deila uppskerunni. Algengur
vaxtartími er 90 til 180 dagar og því
hægt að fá tvær uppskerur á ári þar
sem veðurfar er hagstætt.
Þrátt fyrir að hrísgrjónarækt sé
langmest í Asíu er einnig talsvert um
hana í nokkrum löndum Afríku, Mið-
Austurlöndum og Suður-Ameríku.
Brún hollari en hvít
Grjón mismunandi afbrigða eru
misstór og mismunandi á litinn.
Algengast er að skipta hrísgrjónum
eftir stærð; löng, miðlungs og stutt.
Löng hrísgrjón halda lögun sinni
betur en önnur við suðu en miðlungs
klessast meira. Miðlungsstór
hrísgrjón henta vel í risotto en stutt
í hrísgrjónagraut.
Munurinn á brúnum eða rauðum
og hvítum hrísgrjónum fest í því að
þau síðarnefndu eru meira unnin
og ekki er búið að taka hismið af
þeim brúnu. Rannsóknir benda til
að brún hrísgrjón séu hollari en hvít
og innihaldi meira af vítamínum,
trefjum og steinefnum en hvít.
Einn af kostunum við hrísgrjón
sem matar er að þau geymast vel sé
þeim haldið þurrum. Hrísgrjón sem
mulin eru í hveiti gera brauð stökkt
við bakstur.
Keisarinn sem borðaði svínafóður
Gömul kínversk saga segir frá
keisara sem ekki vildi borða annað
en hvít hrísgrjón og lét hann gefa
svínunum hismið. Eftir nokkra
mánuði var keisarinn aðframkominn
af næringarleysi en svínin
stálhraust og pattaraleg. Kokkur
keisarans ráðlagið honum að borða
hýðishrísgrjón til að ná heilsu. Eftir
það var hann þekktur sem keisarinn
sem borðaði svínafóður.
Krankle ik i ke i sa rans
gæti hæglega hafa stafað af
næringarefnaskorti, aðallega skorti
á B1 vítamíni, og kallast beriberi
og lýsir sér í máttleysi. Talsvert fór
að bera á þessum sjúkdómi eftir
að Asíubúar drógu saman neyslu
á brúnum hrísgrjónum seint á
nítjándu öld.
Í Asíu eru hrísgrjón tákn
um frjósemi og velgengni
og endurspeglast sú trú á
Vesturlöndum í þeim sið að henda
hrísgrjónum yfir brúðhjón.
Meira en matur
Auk þess að vera dagleg fæða
hundruð milljóna manna um allan
heim eru hrísgrjón og hálmur af
honum meðal annars notuð til
að vefa kaðla, í fatnað og pappír,
snyrtivörur, tannkrem og til vín- og
bjórgerðar. Dæmi um vín og bjór
sem búið er til úr hrísgrjónum eru
sake og bandarískur Budweiser.
Villihrísgrjón
Hrísgrjón eins og við þekkjum
þau hafa verið í ræktun í mörg
þúsund ár og því má ekki rugla
þeim saman við það sem eru kölluð
villihrísgrjón og er planta sem er
skyldari höfrum en hrísgrjónum.
Hafrarnir sem kallaðir eru
villihrísgrjón eru af grastegund sem
er upprunnar í Norður-Ameríku og
kallast Zizania aquatica. Líkt og
O. sativa líður þeirri plöntu best í
grunnu vatni.
Indíánar í Miðvesturríkjum
Bandaríkjanna þekktu plöntuna
vel og nýttu hana sér til matar. Í
dag er hún ræktuð í suðurríkjum
Bandaríkjanna á svipaðan hátt og
hrísgrjón og hafrarnir seldir sem
villihrísgrjón og heilsuvara.
Nova X-Dry getur
innbyrt allt að tvöfalda
þyngd sína af raka
Nova X-Dry
- rakadrægt og sótthreinsandi
• Þurrkar
• Eyðir lykt
• Sótthreinsar
• Minnkar hættu
á sýkingu
• Dregur úr vaxtar-
skilyrðum skordýra
Einstakt undirburðarefni
fyrir stíur og bása
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00