Bændablaðið - 29.01.2015, Side 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Avókat, avóköt – lárpera, sigurpungur, smjöraldin?
Fyrstu kynni sem Evrópumenn
höfðu af avókatávextinum var á
fyrstu áratugum eftir landtöku
Spánverja í Mexíkó. Spænski
landkönnuðurinn og sæfarinn
Fernández de Enciso getur þeirra
í samantekt um ferðir sínar
um löndin við Karíbahaf. Sú
samantekt var prentuð og gefin
út árið 1519.
Elstu heimildir um avóköt eru
samt fundur ríflega tólf þúsund
ára gamalla avókatasteina í
mannvistarleifum sem komu fram
við uppgröft í helli í Púeblahéraði
í suðaustanverðu Mexíkó. Avóköt
mega því teljast með í fyrsta hópi
þeirra nytjaplantna sem mannkynið
hefur tileinkað sér og þróað að
þörfum sínum og kröfum.
Íslenskt heiti
Nafnið avókat, ft. avóköt, mun vera
komið úr máli Nahuatl-fólksins
líkt og heitin tómatur og súkkulaði
og er því fyllilega hæft tökuorð í
íslensku eins og það er í öðrum
Evrópumálum. Merking heitisins
kemur úr nahuatl-málinu „a wakat“
sem þýðir eiginlega „eðaleista“
– eða jafnvel, svo gripið sé til
götustrákamáls, „sigurpungur“.
Reynt hefur verið að klína
íslenska heitinu „lárpera“ á þennan
eðalávöxt og það á sennilega ætt
að rekja til þeirrar germönsku
málhreinsunarstefnu sem vinsæl
var rétt fyrir og um miðbik síðustu
aldar, upptekið eftir þýskunnar
„Laurbirne“. Það orð stóð stutt
við í þýskum orðasöfnum eftir
að velgengni Þriðja ríkisins seig í
valinn. Nú segja þýskir „Avocado“
fullum fetum og skammast sín
ekkert fyrir það. Líklega væri
„smjöraldin“ betra nafn ef við
endilega viljum íslenska öll heiti.
Frá tímum risaeðlnanna
Avókatættkvíslin, Persea, er af
lárviðarætt og til hennar teljast
um 150 tegundir, flestar dreifðar
um hina heittempruðu regnskóga
Mið- og Suður-Ameríku. Aðeins
eina tegund er að finna á dreifðu
svæði við strönd Vestur-Afríku og
út til Kanaríeyja. Afganginn, um
80 tegundir, má svo finna Í A- og
SA-Asíu. Allar hafa þær nokkuð
stór aldin og stór fræ, sem bendir til
að þróun þeirra hafi orðið snemma
í gróðurfarssögunni, á þeim tíma
þegar grasbítar voru stærri en þeir
eru í dag, jafnvel risaeðlur. Engin
tegundanna hefur samt eins stór
aldin og sjálft avókattréð, Persea
americana. Margir grasafræðingar
telja það vera algjöra ræktunartegund
sem þróuð hefur verið með úrvali og
kynbótum í þúsundir ára. Sú ályktun
er dregin af því að þegar fræjunum
er sáð spretta upp margvíslegar
arfgerðir, oft mjög ólíkar þótt fræin
hafi öll komið af sama tré. Einnig
er sjaldgæft að finna það „villt“
nema sem eftirhreytur í horfnum
mannabyggðum.
Vöxtur og blómgun
Avókattréð er dálítið forneskjulegt í
vaxtarlaginu, þybbið með þykkum
greinum og stórum, leðurkenndum
laufblöðum. Blómin eru fremur
smá og óásjáleg með smáum,
gulleitum krónublöðum. Blómin
eru tvíkynja, en þegar blómin
springa út eru það bara frævurnar
sem eru virkar fyrst um sinn og
taka við frjódufti frá nærliggjandi
trjám. Fræflarnir fara ekki í gang
fyrr en frævurnar eru búnar að
ljúka sér af. Með þessu móti er
komið í veg fyrir sjálffrævun. Og
ekki þykir þeim þetta nóg, því sum
trjánna blómgast bara á morgnana
en önnur bara á kvöldin.
Morgungerðin opnast á
morgnana og höfða til fiðrilda
og kólíbrífugla með því að vera
aðeins stærri. Hin gerðin opnast á
kvöldin og stólar á næturfiðrildi
og leðurblökur sem frjóbera. Þau
eru ekki eins stór og áberandi en
bæta það upp með sætari ilmi og
þéttari samsetningu blómasafans.
Ræktun og loftslag
Ræktun á avókattrjám er
bundin við heittempruð lönd. Ef
næturhiti fer niður fyrir 18°C
um blómgunartímann ná blómin
ekki að frjóvgast. Þá verður
engin uppskera það árið. Trén
þurfa frjótt land með jöfnum
jarðvegsraka. Upprunalega eru
þau regnskógartré. Kjörhiti er
milli 25–30°C að degi til en
nætur mega vera nokkrum gráðum
svalari. Fyrir heimsmarkaðinn eru
avóköt einkum ræktuð í löndum
þar sem ódýrt landrými er í boði
og launagreiðslur í lægri kantinum.
Ræktuninni hefur víða verið
lagt til ámælis að vegna hennar
gengur á upprunalega skóga í
heittempraða beltinu. En einnig er
nokkur avókatrækt við norðanvert
Miðjarðarhaf og í Ísrael. Þaðan
fáum við oftast avóköt í verslunum
á okkar svæði. Og eins frá Suður-
Afríku.
Blómgun og þroski
Frá blómgun að uppskeru líða
oftast um fimmtán til átján mánuðir.
Afbrigðin eða yrkin eru ótalmörg og
mismunandi. Til eru avókattré sem
bera aldin sem eru um tvö og hálft
kíló að þyngd. En þau eru sjaldséð
á heimsmarkaðinum. Venjulega eru
avókötin á stærð við gæsaregg eða
ögn stærri. Þau geta staðið fullvaxin
um nokkra hríð á trjánum. Þroski
aldinkjötsins hefst ekki fyrr en
búið er að tína aldinin af þeim. Það
er gert þegar kominn er fölur litur
á aldinstilkinn sem heldur þeim á
trjánum. En í stórræktun eru aldinin
kæld niður til að tefja þroskunina. Í
kæli geymast þau í 40 til 60 daga áður
en þau eru tekin fram á söluborð. Þar
tekur þroskinn við og geymsluþolið
verður þá fremur lítið, í hæsta lagi
tveir til þrír dagar við stofuhita. Við
innkaup á avókötum úti í búð þarf
að gæta þess að þau séu orðin mjúk
við aldinfestið, en ekki lin og alls
ekki mega vera komnir í þau svartir,
innfallnir dílar.
Þrungin hollustu
Avóköt eru meðal hollustu matvæla
sem mannkyninu hefur hlotnast. Þau
eru þrungin snefilefnum og hollum
fitusýrum, andoxunarefnum og allt
hvað þetta nú heitir sem er svo gott
fyrir kroppinn. Í flestum löndum
eru avóköt notuð sem grænmeti í
margvíslega ósoðna rétti. Oftast
niðurskorin eða marin með ögn af
sítrónusafa eða víni til að koma í
veg fyrir að aldinkjötið sortni. Hin
fræga, mexíkóska guacamole-sósa
t.d. inniheldur avókat sem uppistöðu.
Hana er einfalt að gera. En svo er líka
hægt að spæna avókötin í sig með
skeið, krydda kannski með dálitlum
sítrónusafa og salti. Og hvað er betra
undirlag fyrir rækjusalat en að bera
það fram í hálfum avókötum? Avóköt
eru líka sögð góð til að bæla slæm
kólesteról í blóði sérhvers manns.
Hálft avókat á hverjum degi er
sagt að sé álíka góður stíflulosari
fyrir æðakerfið og vítissódi er fyrir
niðurföllin á baðherberginu.
Einföld Guacamole-sósa
Ídýfa fyrir 5–6 manna boð
• 4 stk. þroskuð avóköt, afhýdd,
fræhreinsuð og skorin í smáa
bita
• 1 tsk. sítrónusafi
• ½ meðalstór eða 1 lítill laukur
fínsaxaður
• 1 til 2 vel þroskaðir tómatar
smáskornir, án fræja
• Salt og pipar eftir smekk
1. Stappið avókötin með sítrónu-
safanum saman í skál, ekki mauka
of mikið.
2. Hrærið síðan lauk og tómötum
saman við.
3. Borið fram strax.
Þessa uppskrift má krydda með
ótalmörgu ef óskað er eftir sterkari
viðbrögðum bragðlaukanna:
cayenne-pipar (eldpaprika), hvítlaukur,
kóríander, steinselja o.s.frv. eru góð
tilbrigði.
Notað sem ídýfa með kexi eða viðbit
með MEX-mat.
Avókat - heilt og skorið.