Bændablaðið - 29.01.2015, Síða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
Utan úr heimi
Rannsókn sýnir alvarlega þróun í landbúnaði í Bandaríkjunum:
Bændum fækkar, nýliðun er lítil og ríflega hálfur
hektari ræktarlands glatast á hverri mínútu
− áhrifin á fæðuöryggi og getu landsins til að framleiða mat geta orðið mjög alvarleg
Í nýrri rannsókn á stöðu bænda
í Bandaríkjunum sem kynnt var
í desember, kemur fram að þessi
stétt er að eldast mjög hratt. Einnig
er gengið hratt á landbúnaðarland
til annarra nota og glatast þannig
um 0,66 hektarar á mínútu.
Bændur, og þá einkum bændur í
minni fjölskyldubúum, virðast hægt
og bítandi vera að deyja út verði
ekkert að gert. Það getur haft alvarleg
áhrif á fæðuöryggi og getu landsins
til að framleiða mat.
Bændum hefur fækkað
um 63% á einni öld
Landbúnaður í Bandaríkjunum
hefur gengið í gegnum dramatískar
umbreytingar á síðustu hundrað árum
ekki síður en á Íslandi. Rannsóknin
sem unnin var fyrir Rangeland af
Henry B. Glick, Charles Bettigole,
Devin Routh, Lindsi Seegmiller,
Catherine Kuhn, Ambika Khadka
og Chadwick D. Oliver. Rannsóknin
tekur bæði til stöðu hefðbundins
landbúnaðar sem og skógræktar
og þeirra sem hafa atvinnu af
landnýtingu og stjórnun. Þar kemur
fram að bændum í Bandaríkjunum
hefur fækkað um 63% frá árinu
1900. Á sama tíma hefur stærð
búanna aukist um 67%. Þrátt fyrir
aukna stærð búanna hafi afkoma
bændanna ekki batnað og nú berjist
þeir flestir í bökkum við að halda
sínu efnahagslega sjálfstæði.
Stórfyrirtæki ásælast bújarðir og
störfum fækkar í landbúnaði
Er þetta gríðarleg breyting, því
fyrir rúmri öld var landbúnaður
yfirgnæfandi atvinnuveitandi
í Bandaríkjunum. Í dag hafa
verslunarkeðjur og stórfyrirtæki
verið að yfirtaka fjölskyldubúin og
í landbúnaði starfar nú vart nema
2% vinnufærra Bandaríkjamanna.
Frá 1930 hefur hlutfall bænda sem
hafa haft meira en helming tekna
sinna af starfsemi utan búanna meira
en þrefaldast. Virðist þetta eiga sér
töluverða samsvörun við það sem
verið hefur að gerast á Íslandi, ekki
síst hvað varðar sauðfjárbændur.
Stækkun búanna kemur í veg
fyrir nýliðun í greininni
Stækkun búanna þýðir um leið að
erfiðara verður fyrir nýliða að koma
inn í greinina. Í gegnum tíðina hefur
því sífellt færra ungt fólk sóst eftir því
að gerast bændur. Er vitnað í úttekt
bandaríska landbúnaðarráðuneytisins
sem sýnir að vel yfir helmingur
bænda á landsvísu í dag er yfir 55
ára að aldri. Þetta hafi kannski ekki
bein áhrif á reksturinn sem slíkan,
heldur hafi þetta gríðarleg félagsleg
áhrif á greinina til lengri tíma litið.
Það eigi sérstaklega við um rótgrónu
fjölskyldubúin og framtíð þeirra.
Áhugaverðar niðurstöður í
landbúnaðarríkinu Wyoming
Gerð var sérstök úttekt á þróun
landbúnaðar í ríkinu Wyoming
sem er mikið landbúnaðarríki
þar sem slétturnar miklu mæta
Klettafjöllunum. Hefur landbúnaður
alla tíð skipt miklu máli fyrir
lifnaðarhætti og menningu ríkisins,
þar sem íbúar eru um 544 þúsund.
Wyoming er níunda stærsta ríki
Bandaríkjanna, tæpleg 254 þúsund
ferkílómetrar, eða ríflega tvöföld
stærð Íslands.
Ræktunarskilyrði í ríkinu eru
mjög fjölbreytileg og ráðast mikið
af mismunandi hæð yfir sjávarmáli.
Lægst liggur landið í um 970 metra
hæða yfir sjó og hæst í rúmlega
4.000 metra hæð yfir sjó. Hitastigið
í ríkinu rokkar frá um -7°Celsíus yfir
vetrartímann og yfir 32°C á sumrin.
Meðalhitinn er um 7,6°C, eða nálægt
tveim gráðum hærri en í Reykjavík.
Ræktunartímabilið í Wyoming er
frá 60 dögum á þeim svæðum sem
hæst standa til 140 daga á lægstu
svæðunum í austanverðu ríkinu.
Bændur eru um 11 þúsund og
helsta ræktunin í Wyoming er á
heyi fyrir nautgriparækt sem er
langstærsta búgreinin. Ræktun á
hveiti er einnig umtalsverð sem
og á korni. Þá eru einnig nokkuð
öflugir sauðfjárbændur í ríkinu sem
er fjórða stærsta sauðfjárræktarríki
Bandaríkjanna. Framleiða þeir
talsvert af ull eða um 1.400 tonn
á ári. Þá má líka nefna svínarækt,
hrossarækt, alifuglarækt og
býflugnarækt.
Þar hefur US Department of
Agriculture’s National Agriculture
Statistics Service (NASS), sem
er eins konar hagfræðistofnun
landbúnaðarins, haldið utan um
manntal og aðrar tölur í ríkinu allt
frá árinu 1840. Enn nákvæmari
tölfræðileg gagnasöfnun hófst
þar eftir að ríkið gekk í bandaríki
Norður-Ameríku (USA). Í upphafi
var talnasöfnunin þó ekki sérlega
samhæfð svo skýrsluhöfundar
miðuðu sína rannsókn að mestu við
tölur frá 1940 til 2007 á landsvísu, en
á tölur frá 1920 til 2007 hvað varðar
einstök ríki.
Í rannsókninni kom fram að
línulegt samræmi er á milli hækkandi
aldurs bænda og minnkandi
nýliðunar. Frá 1940 hafa allar sýslur
í Wyoming nema tvær [Sweeter og
Natrona] mátt horfa upp á mikla
fækkun bænda undir 34 ára aldri.
Hrikaleg staða
Þegar niðurstöður rannsóknarinnar
eru settar í spálíkan sýnir það
hrikalega stöðu. Árið 2033 verður
enginn bóndi undir 35 ára aldri
starfandi í landinu. Árið 2050 verða
um 30% allra bænda og stjórnenda
í landbúnaði á aldrinum 55 til 64
ára og 34% verða 65 ára eða eldri.
Meðalaldur bænda og landstjórnenda
mun því hækka um 40 til 60% frá því
sem hann var árið 1920. Fjöldi býla í
landbúnaði hafi náð hámarki í ríkinu
á fjórða áratug síðustu aldar. Nú séu
býlin helmingi færri en þá var.
Hvernig á að tryggja stöðugleika
landbúnaðar?
Höfundar rannsóknarinnar segja
að samfélagsþróun í Wyoming
samsvari þróuninni á landsvísu sem
veki ýmsar mikilvægar spurningar.
Þar nefna þeir m.a. hvernig menn
ætli að tryggja stöðugleika í
landbúnaði og hvað muni gerast
ef það tekst ekki. Hvernig eigi að
tryggja nýliðun í landbúnaði og
laða ungt fólk að þessari mikilvægu
grein. Um leið og menn horfi fram
á þá staðreynd að bændur verða
sífellt eldri, þá horfi menn fram á
þá grundvallarspurningu, hvernig
eigi að viðhalda þekkingu og visku
þessara bænda sem séu mikilvægur
þáttur í menningararfleifðinni.
Lítil nýliðun stærsta ógnin
„Kannski er stærsta ógnin í þróun
landbúnaðar falin í þeirri öldrun
bænda og lítilli nýliðun sem er að
eiga sér stað.
Stöðug umbreyting ræktarlands
til annarra nota en landbúnaðar
stafar af ýmsum ástæðum og hefur
verið viðvarandi í Bandaríkjunum
áratugum saman. Í mörgum
landshlutum telja bændur að
meginorsök fyrir sölu á landi þeirra
og öðrum eignum stafi af því að
enginn þeirra erfingja vilji taka við
búskapnum. Þá hafi breytingar á
landbúnaði, stækkun búa og annað
gert það að verkum að þeir sem
hafi á annað borð áhuga á að taka
við ráði hreinlega ekki við það
vegna kostnaðar. Í Bandaríkjunum
sé staðan víða sú að ungir bændur
skuldi orðið meira en sem nemur
verðmæti búanna. Þeir séu kannski
ríkir af landi, en í raun fjárhagslegir
fátæklingar. Þessi staða ýti undir það
að landeigendur selji eignir og tæki
út úr greininni í stað þess að reyna
að fá aðra til að taka við. Um leið
og sífellt færri ungir einstaklingar
sýni áhuga á að fara inn í greinina,
eða hafa fjárhagslega getu til að taka
við fjölskyldubúunum, þá sjá sitjandi
bændur sem eru sífellt að eldast fátt
annað í stöðunni en að selja land og
eignir út úr þessari grein.“
Um 0,66 hektarar tapast á mínútu
Skýrsluhöfundar benda einnig á að
líklegt sé að minni fjölskyldubúin fari
í aukið samstarf í gegnum einhvers
konar samvinnufélög. Þannig að slík
fyrirtæki verði eins konar samnefnari
fyrir mörg lítil fjölskyldubú. Annars
sé þróunin mjög hröð í þá átt að taka
landbúnaðarland undir aðra notkun.
Í dreifbýlinu, ekki síst í ríkjum sem
liggja að Klettafjöllunum, hafi 24
milljónir ekra (um 9,6 milljónir
hektara) ræktarlands verið tekið
undir önnur not en landbúnað á 28
ára tímabili frá 1982 til 2010. Þannig
hafi gróflega talið tapast um 0,66
hektarar á mínútu.
Minnkun ræktarlands hefur
alvarleg umhverfisáhrif
Tap á ræktarlandi í dreifbýlinu hafi
ekki einungis áhrif á minnkandi getu
landsins til að framleiða mat, heldur
verði það land sem eftir er stöðugt
viðkvæmara. Ræktunaraðferðir,
ofnýting jarðvegs, einsleitni í
ræktun og áhrif breytinga á landi
á grunnvatnsbúskapinn spili þarna
stóra rullu. Fyrir Wyoming, sem
eigi sér langa hefð og mikla sögu
í landbúnaði, séu félagslegu áhrifin
mjög mikil. Þetta ríki hafi frá fyrstu
tíð verið land kjötframleiðslu
og smáþorpa. Þótt breytingarnar
séu hvorki alslæmar né algóðar,
þá sé þarna um að ræða aðför
að grunnrótum samfélagsins og
menningarhefðum.
Viska og sérþekking bænda
glatast þegar keðjan rofnar
Í skýrslunni segir að hættan vegna
umbreytingar landsins sé mikil og
til viðbótar komi öldrun bænda sem
hafi mikil áhrif á samfélagslega
þróun og valdi hættu á að mikilvæg
þekking glatist. Aukin menntun
ungra bænda í rekstrarstjórnun geti
þó verið mikilvægur hlekkur í að
tryggja framtíð landbúnaðarins.
Þannig mætti hugsanlega gera
greinina meira spennandi og hvetja
ungt fólk til að gerast framleiðendur
í landbúnaði. Hins vegar sé bókvitið
ekki allt. Það tapist margt þegar
eðlileg kynslóðaskipti eigi sér
ekki stað í landbúnaði. Viska og
sérþekking sem safnast upp á hverju
býli og flyst áfram frá kynslóð til
kynslóðar sé óbætanleg ef keðjan
rofnar. Skilningur á þörfum landsins,
lífríkinu, vatnsbúskap, staðbundnum
dýrasjúkdómum og samhengi allra
þessara hluta glatist oft auðveldlega
þegar faglegir og gallharðir
rekstrarmenn verði ráðandi afl í
greininni.
Von greinarinnar talin felast í
hagnýtri fræðslu
Þrátt fyrir neikvæða þróun er bent á
gott gengi áætlunar sem gengur undir
nafninu „Quivira Coalition New
Agrarian Apprenticeship Program“.
Þar er um eins konar samvinnu- og
starfsþjálfunarprógramm að ræða
fyrir þá sem vilja gerast nýliðar í
landbúnaði. Segja skýrsluhöfundar
að þetta verkefni hafi gefið
einstaklega góða raun við að auka
og hraða þekkingaröflun nýliða
í greininni. Þá hafi The Rural
Landscape Institute, sem er eins
konar þróunarstofnun dreifbýlisins,
verið með svipað verkefni eða
svokallað „Internsip program“. Það
gefi ungum bændum og stjórnendum
landnýtingar tækifæri til að samhæfa
reynsluna úti á mörkinni við þá visku
sem skólarnir geti miðlað. Verkefnið
gefi mönnum um leið færi á að
öðlast prófgráðu samhliða því að
þróa hagnýta þekkingu í greininni.
Þetta ásamt inngripum stjórnvalda
við að auka þekkingu á lánum og
öðrum fjármálum, sem og þekkingu
á umhverfisþáttum, gæðamálum og
öðru, hafi stuðlað að því að vekja
áhuga ungmenna á landbúnaði. Með
slíku segja skýrsluhöfundar að ekki
sé einungis hægt að laða ungt fólk
að landbúnaði, heldur einnig að
viðhalda miðlun þekkingar á milli
kynslóða í greininni.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Sannir kúrekar með Klettafjöllin í baksýn í nautgriparæktarríkinu Wyoming.
Wyoming Stock Growers Assosiation, „verndarar kúaríkisins Wyoming
síðan 1872“.
Sauðfjárrækt er töluverð í Wyoming.