Bændablaðið - 29.01.2015, Page 36

Bændablaðið - 29.01.2015, Page 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015 Vinsælasta bananayrki í heimi og bananinn sem við þekkjum, Cavendish, hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár. Ástæðan fyrir þessu er sveppurinn Fusarium sem hefur breiðst hratt út og drepur bananaplöntur. Útbreiðsla sveppsins hefur verið frá Asíu til Afríku og Mið- Austurlanda. Í yfirlýsingu frá FAO - Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna segir að kostnaður við að bjarga yrkinu sé að minnsta kosti 47 milljónir Bandaríkjadala, um 6,3 milljarðar íslenskar krónur. Cavendish viðkvæmt fyrir Fusarium Sveppurinn, sem kallast fullu nafni Fusarium oxysporum f.sp. cubense TR4, hefur herjað á bananarækt í Asíu í rúm tuttugu ár og gert mikinn usla í Kína, Indónesíu, Malasíu og Taívan. Árið 2013 varð hans fyrst vart í Afríku og síðan þá hefur hann verið að breiðast út þar sem bananar eru ræktaðir í álfunni. Helsta ástæðan fyrir miklum áhyggjum manna á sveppasýkingunni er að nánast allir bananar sem framleiddir eru og settir á markað eru af yrkinu Cavendish og það er einstaklega v i ð k v æ m t fyrir sýk ingu og drep- ast nán- ast allar plöntur af því yrki vegna hennar. Ríkjandi yrki á markaði Yrkið Cavendish þykir bragðgott og auðvelt í flutningum vegna þess hvað það geymist lengi og margir á Vesturlöndum hafa aldrei smakkað aðra gerð. Cavendish hefur verið ríkjandi á markaði frá 1950 þegar yrkið Gros Michel dó út vegna annarrar Fusarium-sýkingar. Undanfarin ár hefur verið reynt að finna yrki sem getur komið í stað Cavendish en þær prófanir skilað litlu. Sveppurinn hefur lagst á mörg þeirra og þau sem þola hann hafa ekki reynst eins bragðgóð og með eins langan geymslutíma og Cavendish. /VH Utan úr heimi Danmörk: Lífeyrissjóður fjárfestir í landbúnaði Það er ekki einungis hér á landi sem fjárfestingar lífeyrissjóða eru til umfjöllunar, enda mikilvægt að fjárfest sé í tryggum verkefnum sem skila fjármagni til lengri tíma. Danski lífeyrissjóðurinn AP Pension fór fyrir rúmu ári síðan að fikra sig inn í þarlendan landbúnað með því að fjárfesta í nokkrum álitlegum bújörðum enda telur sjóðurinn að afar áhugavert sé að fjárfesta í landbúnaði vegna öryggis í fjárfestingu á landbúnaðarlandi. Sjóðurinn leigir svo jarðirnar út til ungra bænda og um leið og hann fjárfestir þá auðveldar hann ungum bændum að hefja búskap með því að leigja reksturinn til þeirra. 12 milljarða sjóður Í tengslum við þetta landbúnaðar- verkefni AP Pension var stofnað sérstakt fjárfestingafélag sem heitir Dansk Farmland. Inn í það fjárfestingafélag voru svo lagðir 12 milljarðar íslenskra króna, sem kann að þykja há upphæð en þá er rétt að benda á að AP Pension veltir árlega nærri tvö þúsund milljörðum króna svo þessir 12 milljarðar eru ekki hátt hlutfall heildarveltunnar. Fyrsta búið sem sjóðurinn keypti var kúabú með 220 kýr á Sjálandi, en síðan hefur verið fjárfest í alls 10 bújörðum og hefur helmingur stofnfjárins verið notaður í það eða um 6 milljarðar króna. Bara góðar bújarðir Fjárfestingakerfið sem sjóðurinn notar byggist á því að ungir bændur geta sett sig í samband við sjóðinn og boðið honum að skoða álitlegan fjárfestingakost. Sjóðurinn setur svo saman teymi ráðunauta sem gerir úttekt á viðkomandi bújörð m.m. og leggur mat á hæfni og færni hins unga bónda. Gangi allt upp, er málið sent áfram til stjórnar sjóðsins þar sem hin endanlega ákvörðun er tekin. Sjóðurinn hefur til þessa lagt áherslu á að kaupa bújarðir sem geta staðið sterkar í samkeppninni í framtíðinni og eru því allar jarðir sem keyptar eru í stærri kantinum með töluvert umsvifamikinn rekstur. Gera 10 ára samninga Grunnhugmyndin er í raun frekar einföld. AP Pension á landið og byggingarnar og leigir til bóndans til 10 ára. Bóndinn kaupir svo sjálfur tæki og skepnur og fjármagnar sjóðurinn þau kaup ekki. Bónd- inn greiðir svo eins konar ársleigu sem nemur 5,2% af kaupverði jarðarinnar og 6,5% af kaupverði bygginganna en reki hann búið með hagnaði heldur hann honum að sjálfsögðu. Þegar 10 ár eru liðin stendur bóndanum til boða að kaupa jörðina og byggingarnar á kaupverði sem er þegar ákveðið við undirskrift samningsins. Þar er t.d. kveðið á um að hækki landverð almennt í landinu, þá geti leigutakinn þó keypt jörðina með 20% afslætti af hækkuninni. Vænta 6% ávöxtunar Sjóðurinn væntir þess að ná 6% ávöxtun með þessari aðferð, en þá hefur verið tekið tillit til áætlaðrar hækkunar jarðarinnar á samningstímanum. Sérfræðingar sjóðsins hafa metið það svo, að líkurnar á því að jarðarverð lækki verulega frá því sem nú er, séu litlar enda hefur landverð í Danmörku ekki verið lægra í áraraðir. Landverð hefur oft fylgt kornverði og er það sem kunnugt er afar lágt nú, en flestir hafa trú á því að það muni brátt hækka á ný með tilheyrandi áhrifum á landverð. Ekki boðið hverjum sem er Sjóðurinn hefur til þessa valið af mikilli nákvæmni þá leigutaka sem fá þessar kostajarðir og þar hefur hver og einn þurft að sanna sig. Flestir hafa reynslu af búrekstri sem bústjórar annarra búa og hafa þar sýnt hæfni í búrekstri. Hugmyndafræðin að baki þessu vali lífeyrissjóðsins er að þeir gera það sem þeir eru bestir í, þ.e. að sjá um fjármögnun og mat á fjárfestingakostum og fá svo til þess unga bændur sem eru bestir í því að sjá um skepnur og akuryrkju. 24 ára með 430 kýr Einn af þeim ungu bændum sem hafa notið góðs af þessari fjárfestingaleið er hinn 24 ára Jacob Therkildsens. Hann er lærður bóndi með framhaldsmenntun í búrekstri og hafði frá útskrift sinni sýnt að hann var hörkuduglegur rekstrarmaður. Síðasta vetur fór allstórt kúabú á Jótlandi í þrot og sá Jacob þar töluverða möguleika og setti sig í samband við lífeyrissjóðinn. Þar fóru sérfræðingar á stúfana og mátu jörðina og byggingar ásamt mögulegum rekstri og úr varð að sjóðurinn keypti kúabúið, fjós og aðrar byggingar fyrir 430 kýr ásamt 300 hektara landi. Dýrt að kaupa bú Í tilfelli Jacobs var staðan þannig að kaupverð jarðarinnar var í kringum 800–900 milljónir króna, nokkuð sem hefði verið næsta ómögulegt að fjármagna fyrir ungan mann. Með aðkomu lífeyrissjóðsins þurfti Jacob hins vegar einungis að fjármagna tæki og skepnur og nægðu 100 milljónir til þess og þá upphæð gat hann fjármagnað í gegnum viðskiptabanka sinn. Allt í hers höndum Þegar Jacob tók við var margt í niðurníðslu eins og títt er þegar gjaldþrot verða á kúabúum, enda lítið til af fjármunum í viðhald. En það voru ekki bara byggingarnar sem þurftu viðhald, kýrnar höfðu verið illa hirtar í nokkurn tíma og júgurheilbrigði ekki gott. Hann kallaði því til funda helstu ráðu- nauta héraðsins og gerð var raunhæf áætlun um viðhald og endurbætur ásamt áætlun um það hvernig bæta mætti kýrnar og mjólkurgæðin. Hann réð svo til sín fimm starfsmenn og fór af miklum krafti af stað. Í dag er staðan eiginlega hreint ótrúlega góð, kýrnar gefa nú af sér um 30 kíló mjólkur á dag í stað 23 kílóa áður og mjólkurgæðin eru nú í góðu lagi. Leggur 4 milljónir fyrir árlega Strax í upphafi var gerð áætlun um rekstur búsins og hve vænta mætti mikillar uppsöfnunar á eigin fé, sem svo nýtist sem eigið framlag verði tekið lán til kaupanna að 10 árum liðnum. Í tilfelli Jacobs er gert ráð fyrir að hann geti lagt fyrir 200 þúsund danskar krónur á ári, þ.e. um 4 milljónir íslenskar krónur, sem nýst geta svo sem stofnframlag að 10 árum liðnum. Þá gerir rekstraráætlun lífeyrissjóðsins ráð fyrir að ungir bændur vilji lifa lífinu lifandi og því eru þessum ungu bændum reiknuð allgóð laun eða 500 þúsund danskar krónur á ári, þ.e. eftir greiðslu á leigu, hita og rafmagni. Það gera 10 milljónir í árstekjur fyrir skatt. Gott fyrir ungu bændurna Það er samdóma álit flestra að innkoma lífeyrissjóðsins inn í landbúnaðinn hafi haft góð áhrif á danskan landbúnað og opnað augu forsvarsmanna annarra sjóða einnig gagnvart þessum fjárfestingakosti. Þá hefur þetta gert það að verkum að ungir og kraftmiklir bændur geta strax farið að beita kröftum sínum á stórum búum í stað þess að byrja smátt og stækka búin hægt og bítandi. Snorri Sigurðsson sns@seges.dk Ráðgjafafyrirtækinu SEGES P/S Ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar sagði í erindi á ráðstefnu um landbúnaðarmál fyrir skömmu að lífræn ræktun þyrfti ekki alltaf að vera betri en ræktun þar sem notaðar væru erfðabreyttar plöntur, illgresis- og skordýraeitur og tilbúinn áburður. Máli sínu til stuðnings sagði ráðgjafinn, Krebs lávarður, að lífræn ræktun kallaði á meiri landnotkun en tæknivædd þar sem uppskera á hektara væri minni en í lífrænni ræktun. Hann sagði að með auknum mannfjölda þurfi sífellt meira land til ræktunar og afrakstur ræktunarinnar skipti því miklu máli, sérstaklega á svæðum þar sem ræktunarland er takmarkað. Ráðgjafinn benti á að því minna land sem brotið væri til ræktunnr því minna losnaði af gróðurhúsalofttegundum út í andrúmsloftið. Talið er að um 10% gróður- húsalofttegunda sem fara út í andrúmsloftið á ári séu vegna landbúnaðar og að það magn aukist í hvert skipti sem nýtt land er brotið undir ræktun. Krebs sagði einnig að ekkert benti til að lífrænt ræktuð matvæli væru næringarríkari en matur ræktaður með tæknivæddum aðferðum og að þeir sem versluðu lífrænt ræktuð matvæli fengju minna fyrir peninginn en þeir sem versluðu matvæli úr tæknivæddri ræktun. /VH Álitamál í ræktun: Lífræn ræktun ekki endilega betri − að mati ráðgjafa bresku ríkisstjórnarinnar Sveppasýking ógnar bönunum: Síðasti bananinn AP Pension stofnaði sérstakt fjárfestingafélag sem heitir Dansk Farmland.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.