Bændablaðið - 29.01.2015, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
Búseta í sveit heitir verkefni
sem hefur verið unnið hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbún-
aðarins undanfarið ár. Verkefnið
er í umsjá Guðnýjar Harðardóttur
og var unnið með styrkveitingu frá
Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Meginmarkmið verkefnisins var
að þróa ráðgjöf vegna ættliðaskipta
og upphafs búrekstrar. Auknar kröfur
stjórnsýslunnar ásamt stækkandi
búum hefur leitt til þess að eftirspurn
eftir slíkri ráðgjöf og þjónustu hefur
aukist til muna. Sú vegferð að hefja
búrekstur er ekki einfalt mál, sama
hvort um ræðir ættliðaskipti eða kaup
á almennum markaði.
Á Búnaðarþingi árið 2013 var
m.a. ályktað um þessi mál í þá veru
að efla skyldi ráðgjöf varðandi
ábúendaskipti á bújörðum. Í kjölfarið
var farið af stað með það verkefni
sem nú er komið til framkvæmda í
formi fræðsluefnis á vef RML auk
beinnar ráðgjafar.
Eins og gefur að skilja er
verkefnið umfangsmikið en
afurðirnar margvíslegar. Í fyrsta
lagi varð til efni sem er aðgengilegt
á vef RML í formi rafrænna bæklinga
sem allir geta nálgast. Í öðru lagi
urðu til ítarlegri bæklingar sem
nefnast rafrænir vegvísar og fást
þeir hjá næsta ráðunaut. Þeim er
ætlað að vísa leiðina við upphaf
búskapar ásamt því að þeim fylgir
klukkustundar ráðgjöf/þjónusta frá
ráðunaut. Gjaldið er vægt eða 10
þúsund krónur.
Síðast en ekki síst var unnið að því
að gera ráðgjöf vegna ættliðaskipta
og upphafs búskapar markvissari.
Mikil vinna var lögð í efni tengt
málefninu og er það efni aðgengilegt
starfsmönnum RML. Lögð var
áhersla á þær fjölmörgu spurningar
sem koma upp og nauðsynlegt er að
fá svör við þegar ættliðaskipti eiga í
hlut. Aðstæður eru misjafnar í hvert
og eitt skipti og því ólík úrræði sem
henta hverju sinni. Ráðunautar eru
nú mun betur undirbúnir fyrir slíka
ráðgjöf og þjónustu.
Verkefninu er ekki lokið þótt það
hafi gefið af sér afurðir og eru menn
hvattir til að skoða það efni sem er
aðgengilegt á vef RML. Það sem
er aðgengilegt þar eru bæklingar
sem eru gagnlegir í upphafi þeirrar
vegferðar að hefja búrekstur. Þeir
vísa m.a. á nytsamlegar vefsíður
sem veita ítarlegar upplýsingar.
Þeir bera heitin Ættliðaskipti, Kaup
á almennum markaði og Starfsemi
– hvað svo?
Ljóst er að fleiri bæklingar eiga
eftir að líta dagsins ljós og hlakka
starfsmenn RML til að takast á við
þessi verkefni með þeim sem á þurfa
að halda.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Búseta í sveit
Þjónusta sem er í boði hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins:
• Rafrænir vegvísar og 1 klst. ráðgjöf/þjónusta ráðunautar:
Að hefja sauðfjárbúskap
Að hefja mjólkurframleiðslu/nautgriparækt
Ættliðaskipti á búi - vinnublöð
• Rekstrar-/viðskiptaáætlun
• Samningagerð
• Aðstoð við umsóknir
Ættliðaskipti – veitir upplýsingar um hvernig er best að bera sig að
við ættliðaskipti sem geta oft verið umfangsmikil.
Kaup á almennum markaði – veitir upplýsingar um hvað ber að hafa
í huga við kaup á jörðum.
Starfsemi – hvað svo? – inniheldur hugmyndir um starfsemi í
dreifbýli.
Guðný Harðardóttir umsjónarmaður
verkefnisins „Búseta í sveit“.
Heimasíða Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins.