Bændablaðið - 29.01.2015, Qupperneq 40

Bændablaðið - 29.01.2015, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015 Ágúst Ásgrímsson og Hulda Sigurðardóttir búa í raun á þremur jörðum; Stekkjarflötum, þar sem íbúðarhúsið er, Kálfagerði, þar sem kúabúið er og á Guðrúnarstöðum. Býli: Stekkjarflatir/ Kálfagerði/ Guðrúnarstaðir. Staðsett í sveit: Í Eyjafjarðarsveit. Ábúendur: Ágúst Ásgrímsson, Hulda Sigurðardóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Börn: Ágúst Máni Ágústsson, f. 2000, Bergþór Bjarmi Ágústsson, f. 2004, Anna Sonja Ágústsdóttir, f. 1988 og Sigmundur Rúnar Sveinsson, f. 1987, tengdasonur. Einnig eru tveir „field trial“-labradorar sem notaðir eru við skotveiðar, Rösk og Baltó. Stærð jarðar? Við búum á þrem jörðum, allar eru þær frekar smáar en ræktað land er um 75 ha. Gerð bús? Mjólkurframleiðsla með brautakerfi í 36 bása fjósi og 226.312 lítra greiðslumark. Fjöldi búfjár og tegundir? 107 nautgripir, 40 hross, 30 kindur, 5 geitur og 3 fjóskettir. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Dagurinn byrjar og endar á fjósverkum að vetri en á öðrum árstímum eru dagarnir mun lengri og er þá hefðbundnum bústörfum sinnt bæði á milli mála og á kvöldin. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Engin bústörf leiðinleg aðeins mismunandi skemmtileg og hver árstími hefur sinn sjarma. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Eftir 5 ár verðum við vonandi sveitt við að byggja nýtt fjós. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Þau eru almennt í góðu lagi að okkar mati en forustan mætti vera beittari í tilsvörum fyrir okkur bændur í fjölmiðlum. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Smjör mun drúpa af hverju strái ef okkur tekst að halda sjálfstæði okkar og látum ekki stjórnast af einhverjum skrifstofublókum í Evrópusambandinu. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Í lambakjötinu, því framleiðslugetan er gífurlega vannýtt, en markaðsmálin virðast ganga hægt. Einnig höfum við trú á skyrinu og öðrum mjólkurafurðum. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk úr tanknum, ostur, smjör, súrmjólk, egg og grænmeti. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Íslenska lambalærið, hrossalund og villibráð. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það var mjög eftirminnilegt þegar við keyptum fyrstu jörðina 1999 og hófum okkar búskap einn fallegan sumardag. Við sváfum á gólfinu í íbúðarhúsinu fyrstu vikuna alveg án allrar búslóðar. Ágúst hafði aldrei komið við kú áður en hann gerðist bóndi og Hulda var með heilar sex mjaltir á bakinu frá Hólaskóla (hestabraut) hehe. Við vissum sem sagt ekkert í okkar haus varðandi kúabúskap og erum enn að læra og stefnum fram á við. Líf og lyst BÆRINN OKKAR Spænsk eggjakaka og sætindi í skammdeginu Nú er tími þorrablótanna í algleymingi og landinn situr við trogin um hverja helgi. Daginn eftir miklar átveislur er gott að útbúa gómsæta eggjaköku og nota það sem hendi er næst í ísskápnum. Hér á eftir kemur uppskrift að klassískri spænskri eggjaköku sem kölluð er tortilla þar ytra. Kartöflum er blandað í eggjakökuna sem er gjarnan lög á morgunverðarborðið eða höfð í hádegismatinn. Það er líka hægt að hefja eggjakökurnar á nýjan stall með því að setja bakað smjördeig í tertuform og fylla kökuna með afgöngum. Þar á eftir er braðgmikilli eggjahræru hellt yfir. Það er líka tilvalið að setja beikon í pönnu og hella eggjablöndunni yfir til að gera útfærslu á egg og beikon. Í lokin eru sætir eftirréttir sem gott er að bragða á í skammdeginu á meðan snjóhríðin lemur allt að utan. Spænsk tortilla › 3 matskeiðar ólífuolía › 1 stór kartafla, skræld og sneidd › 1 meðalstór laukur, saxaður › 1 stór rauð paprika, sneidd › 1 msk. hakkað ferskt timjan eða 1 tsk. þurrkað › 6 stór egg › 1/2 bolli rifinn Parmesan-ostur › 2 matskeiðar söxuð fersk steinselja › 2 matskeiðar kapers Undirbúningur Hitið 2 msk. olíu á pönnu yfir miðlungs hita. Helmingur af kartöflunum er bætt í ásamt lauk og papriku. Kryddið með salti og pipar. Endurtakið löginn af kartöflum og kryddið. Lokið og hitið þangað til kartöflurnar og grænmetið eru elduð. Hrærið og snúið með spaða. Þetta tekur um 20 mínútur. Stráið timjan yfir. Kælið örlítið. Léttþeytið egg í stóra skál. Kryddið með salti og pipar. Bætið kartöflublöndunni í eggin. Þurrkið pönnuna. Bætið 1 msk. olíu í sömu pönnu yfir miðlungs hita. Hellið eggjablöndunni á pönnuna og þekið með osti. Setjið lokið á og eldið þar til eggin eru stíf (um 10 mínútur). Setjið eggjakökuna á fat. Stráið steinselju og kapers yfir. Fljótlegt Tiramisu › 1 pakki Lady fingers (svampkökur) hægt að nota svampbotn eða kexkökur › 1/2 bolli sterkt, svart kaffi › 2 skot kaffilíkjör eða dökkt romm › 1 pakki mascarpone-ostur › 1 peli rjómi › 50–100g flórsykur (eftir smekk) › 50 g kakóduft › 1/4 tsk. kanill Aðferð Hrærið rjóma, flórsykur og marscapone-ost saman. Svampkökur (Lady fingers) eru bleyttar með kaffi ásamt kaffilíkjör. Fyllið Martini-glös með einu lagi af svampkökum. Ýtið kökunum niður til að fá falleg lög í glasið. Fyllið lagskipt með ostakremi og kaffibleyttum kökum. Skreytið hvert glas með kakódufti með snert af kanil. Gott að nota fínt sigti til að strá yfir. Súkkulaðigóðgæti › 3 plötur súkkulaði, til dæmis íslenskt Omnom › 10 sykurpúðar › 2 msk. rjómi › 12–15 stk. möndlur/hnetur › 2 bollar popp › 50 g salthnetur eða annað sælgæti Aðferð Bræddu súkkulaðið í vatnsbaði eða í örbylgju. Skerðu sykurpúðana í litla bita og settu með rjómanum í pott á lágan hita, bræddu þetta vel saman, það gæti verið að þú þurfir aðeins meiri rjóma, þetta verður svakalegt klístur! Grófsaxaðu möndlurnar og hneturnar, blandið öllu saman. Blanda er sett í ísskáp og látin storkna í um 1 klst. eða lengur. Skerið í hæfilega stóra bita. Skreytið með sykurpúðum. Það er hægt að gera sína eigin sykurpúða úr ferskum ávöxtum en það er fyrir lengra komna. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Kálfagerði Spænsk tortilla. Fljótlegt Tiramisu. Súkkulaðigóðgæti.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.