Bændablaðið - 29.01.2015, Síða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Ford Focus mest seldi fólksbíll í Evrópu
Laugardaginn 17. janúar
voru mörg bílaumboð með
frumsýningar af nýjum bílum
og var erfitt að velja úr bíl til
prófunar af þeim fjölda sem í boði
var. Fyrir valinu var Ford Focus
frá Brimborg, en Ford Focus mun
vera mest seldi fólksbíll í Evrópu
í sínum stærðarflokki fólksbíla.
Bíllinn sem ég fékk var
beinskiptur (fæst sjálfskiptur
í apríl), vélin var 125 hestafla
bensínvél.
Bakkar sjálfur í stæði
Í byrjun, áður en ég fór á bílnum
frá Brimborg, fékk ég Gísla Jón
sölumann til að sýna mér hvernig
sjálfvirki búnaðurinn í bílnum til
að bakka í stæði virkaði (ég treysti
ekki þessum búnaði sjálfur þar sem
ég hafði ekki prófað svona búnað
áður), sat ég í aftursætinu á meðan
og fylgdist með þaðan. Þetta var
mjög nýtt og framandi fyrir mér að
sjá þetta og kom það mér á óvart
hversu nákvæmur þessi búnaður
er. Seinna í prufuakstrinum fór
ég og prófaði þetta bæði með að
bakka í stæði þvert á akstursstefnu
og samliggjandi akstursstefnu.
Ótrúlega nákvæmur búnaður, en
ég mæli með því að þeir sem prófa
þennan bíl fái sölumanninn að sýna
sér hvernig þetta virkar.
Hiti í stýrinu
Alltaf eru fleiri og fleiri bílar að
koma með hita í stýrið sem er
ótrúlega þægilegur útbúnaður, ekki
síst þegar maður er orðinn loppinn
á höndunum eftir að skafa rúðurnar
á köldum vetrarmorgni. Eftir aðeins
um 10 sek. eftir að maður kveikir á
hitanum finnur maður hitann leiða
um hendurnar. Miðstöðin er hins
vegar frekar lengi að hita bílinn
að innan, en sætishitarinn er aftur
á móti mjög fljótur að senda hita
upp í sitjandann.
Góð og þægileg sæti
Ég ók bílnum upp í Svínahraun og
til baka svona rétt til að sjá hver
eyðslan væri á þessari 125 hestafla
bensínvél á köldum vetrardegi í
samanburði við uppgefna eyðslu.
Ég er frekar ósáttur við staðsetningu
takkaborðsins fyrir hraðastillinguna
(cruse control), en ég hefði viljað
skipta á staðsetningu við takkana
fyrir mælaborðstakkana sem veita
upplýsingar úr mælaborði og hafa
hraðastillingartakkana þannig að
hægt væri að stjórna þeim með
þumlinum. Að öðru leyti var mjög
þægilegt að sitja í bílnum og fannst
mér sætin afar þægileg.
Eyðslan reyndist frekar í hærri
kantinum
Samkvæmt bæklingi um bílinn
á hann að eyða um 4,7 lítrum af
bensíni í blönduðum akstri við
bestu aðstæður, en snjóföl á vegi
og hita á bilinu -4 til -7 var ég að
eyða eftir 36 km akstur í langkeyrslu
5,9 lítrum á hundraðið og þegar ég
skilaði bílnum hafði ég ekið honum
um 120 km í blönduðum akstri á
meðalhraðanum 31 km á klst. Mun
meðaleyðsla mín hafa verið 8,2
lítrar á hundraðið, heldur í hærri
kantinum að mér fannst miðað við
uppgefna eyðslu (hefði viljað sjá
tölu nálægt 7).
Lágur að framan, en hár að aftan
Heilt á litið var ég ánægður með
bílinn, en fannst svolítið erfitt að
fikra mig áfram í öllum þessum
tökkum til að fá upplýsingar úr
aksturstölvu bílsins. Ánægður með
skynjara á hliðum bílsins þegar
maður er að bakka. Full lágur að
framan fyrir klakaskorninga í
hliðargötum Reykjavíkur, en á móti
er hátt undir bílinn að aftan. Vélin
nánast hljóðlaus. Hljóðeinangrun til
hliðar og aftur fyrir bílinn er góð,
en furðu mikið heyrist í bílnum
sem er fyrir framan mann í gegnum
hvalbakinn að framan, sem dæmi
þá heyrði ég í nöglunum á fólksbíl
sem var að keyra á Miklubrautinni
fyrir framan mig. Hægt er að nálgast
meiri og nákvæmari upplýsingar
um Ford Focus á vefslóðinni www.
brimborg.is.
Verð 3.650.000
Hæð 1.469 mm
Breidd 1.823 mm
Lengd 4.360 mm
Helstu mál og upplýsingar
Ford Focus. Myndir / HLJ
-
Liqui Moly-bætiefni frá Stillingu
Fyrir skömmu spurði kunningi
minn hvort ég gæti ekki verið
með fræðandi pistla hér í blaðinu
um ýmis efni sem gætu komið sér
vel fyrir marga og nefndi hann
þar sérstaklega bætiefni fyrir
smurolíu, bón og þvottatengd efni
fyrir bíla og fleira.
Ég reyni hér að verða við þessari
áskorun eftir smá kynningu sem ég
fór á um Liqui Moly sem Stilling
selur.
Á þessari kynningu var
leiðbeinandi Sören Breinholt,
danskur bifvélavirki, sem sýndi
hvernig virkni ýmissa efna frá Liqui
Moly virkuðu við mismunandi
bilanir og vélarvandræði.
Ýmis efni sem klárlega geta
hjálpað vélum til langlífis
Eftir kynninguna fór ég að prófa mig
áfram ásamt starfsfélögum mínum
á þessum undraefnum. Liqui Moly-
vörulínan er fjölbreytt, en þar má
finna efni eins og vatnskassaþétti,
þvottaefni til að þvo vélar að innan,
smurbætiefni fyrir vélar, bætiefni
fyrir sjálfskiptingar, drif, gírkassa
og fleira. Í þessum pistli ætla ég að
nefna aðeins þær þrjár vörur sem ég
hef notað frá Liqui Moly og get því
talað af reynslu.
Bætiefni fyrir sjálfskiptingar:
Túpa af bætiefni fyrir sjálfskiptingar,
en félagi minn á sjálfskiptan bíl sem
ekki tók fyrsta og annan gír nema af
og til. Bíllinn hjá honum fór oftast
af stað í þriðja gír, eftir að túbunni
af Liqui Moly hafði verið skellt á
sjálfskiptinguna hagar skiptingin
sér eðlilega. Þetta sama efni var
sett á stýrisdælu sem heyrðist hátt
í og var hljóðið frekar leiðinlegt
til lengdar. Eftir að um þriðjungi
af túpunni hafði verið blandað við
stýrisvökvann nánast þagnaði þetta
hvimleiða hljóð.
Vatnskassaþéttir:
Þau efni sem hafa verið á
markaðnum hingað til sem ætluð
eru að þétta leka á vatnskassa í
bílum hafa oft truflað miðstöðvar
inni í bílum svo að lítill hiti kemur
frá miðstöð. Vatnskassaþéttiefnið
frá Liqui Moly gerir þetta ekki,
virkar vel og hefur ekki áhrif á
miðstöð.
Þvottaefni fyrir vélar að innan:
Litlar vélar safna oft miklum raka í
sig og þarf að skola (þvo) vélarnar
að innan. Liqui Moly Engine
Flush þvær vélar vel að innan
og eftir þvott verður smurolían
mun hreinni eftir meðferðina í
töluverðan tíma.
Frá Liqui Moly eru mörg efni
sem ég hef hugsað mér að prófa í
framtíðinni, en efnin þrjú sem ég
hef prófað hafa fullkomlega staðið
undir væntingum.
Hægt er að fræðast meira um
Liqui Moly á vefsíðu Stillingar á
vefslóðinni www.stilling.is.
Mynd / HLJ.