Bændablaðið - 13.08.2015, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015
„Ísland er greinilega mjög vin-
sælt um þessar mundir og ekki
bara meðal ferðamanna,“ segir
Sólveig Tryggvadóttir deildarstjóri
erlendra nema hjá AFS á Íslandi,
en alls bárust nú um 20% fleiri
umsóknir frá erlendum skiptinem-
um sem vilja dvelja hér á landi á
komandi mánuðum en var fyrir
árið 2014 til 2015. Að jafnaði er
tekið á móti um 30 skiptinemum á
vegum AFS hér á landi árlega, en
þeir verða tæplega 40 nú. Aldrei
hefur þurft að hafna jafnmörgum
um sóknum og nú í ár.
AFS-skiptanemasamtökin á
Ís landi eru alþjóðleg fræðslusamtök
sem hafa sent íslensk ungmenni utan
til skiptinemadvalar frá árinu 1957
eða í hartnær sex áratugi. Að sama
skapi hafa samtökin skapað vettvang
fyrir erlenda skiptinema að dvelja
hér á landi í 10 mánuði í senn. Mikil
reynsla og þekking hefur skapast
innan samtakanna eftir ríflega hálf-
rar aldar starfsemi. AFS-samtökin
eru starfrækt í yfir 50 löndum víðs
vegar um heiminn en hingað til
lands koma árlega ungmenni, 15 til
19 ára gömul, og dvelja að jafnaði
í 10 mánuði í senn. Skiptinemarnir
eru væntanlegir hingað til lands í lok
næstu viku og eru þeir til heimilis
á höfuðborgarsvæðinu eða vítt og
breitt um landsbyggðina.
Kynnast íslenskum landbúnaði
Fyrir nokkrum árum var sá siður
endurvakinn að gefa skiptinemum
kost á að dvelja á íslenskum sveita-
bæ á meðan á Íslandsdvölinni stend-
ur og taka þátt í hefðbundnum störf-
um við landbúnað. Sólveig segir að
þetta sé sérstaklega mikilvægt fyrir
þá skiptinema sem búsetu hafa á
höfuðborgarsvæðinu. Þetta fyrir-
komulag hefur gefist vel og nemar
alsælir með að fá tækifæri til að
kynnast þeim störfum sem íslenskir
bændur inna af hendi.
Kyrrðin eftirsóknarverð
Sólveig segir að fyrst og fremst sé
það áhugi á Íslandi, íslenskri menn-
ingu og tungu sem fær ungmenn-
in til að yfirgefa heimahagana og
kynna sér siði og venjur Íslendinga.
„Markmið dvalarinnar er að kynnast
landi og þjóð og hápunkturinn er
svo auðvitað þegar þessir krakkar
hafa tileiknað sér menningu okkar
og renna saman við innfædda,“ segir
hún. „Þeir sem sækjast eftir að koma
hingað til lands eru yfirleitt miklir
náttúruunnendur og leita eftir ein-
hverju allt öðru en þeir búa við í sínu
heimalandi, margir nefna að kyrrðin
á Íslandi sé eftirsóknarverð.“
Sólveig segir að þó svo umtals-
vert fleiri skiptinemar hafi sótt um
Íslandsdvöl nú í ár og ásóknin sé
greinilega vaxandi muni samtök-
in halda sig við svipaða tölu og
áður. Það sé m.a. gert til að halda
uppi ákveðnum gæðum varðandi
dvöl þeirra hér á landi. „Það er
ekki á stefnuskránni að moka inn
skiptinemum, þótt greinilega væri
það hægt þegar horft er til fjölda
umsókna,“ segir Sólveig.
Finnum stað við hæfi
Aukin áhugi er meðal ungmenna
frá hinum ýmsu Evrópulöndum að
koma til Íslands og segir Sólveig
að þar skipti áhugi þeirra á íslenska
hestinum verulegu máli, sumir eigi
jafnvel íslenskan hest í sínu heima-
landi. Reynt er að koma þeim fyrir
á bæjum hér og hvar um landið þar
sem stundaður er hestabúskapur. Eins
hafi ungmenni sem stunda skíða-
íþróttina sóst eftir að dvelja hér á
landi og að sama skapi er þá fund-
in fyrir þá viðeigandi staður, t.d. á
Ísafirði eða á norðanverðu landinu.
„Við reynum að finna hverjum og
einum stað við hæfi. Reynslan sem
krakkarnir fara með heim að lokinni
dvöl á Íslandi skiptir meginmáli og
þá að hún standi undir væntingum
og sé góð,“ segir Sólveig. /MÞÞ
Fréttir
Auknar vinsældir Íslands meðal erlendra skiptinema
Mun færri komast
að en vilja
Sólveig Tryggvadóttir, deildarstjóri
erlendra nema hjá AFS á Íslandi.
Skiptinemabræðurnir Álfur og Yuki.
Álfur fór sem skiptinemi til Argent-
ínu og Yuki, sem er frá Japan, kom
til Ís lands og bjó hjá fjölskyldu hans
í Reykjavík.
Annisai frá Indónesíu reynir fyrir sér í sláturgerð með fjölskyldu sinni í
Vivi frá Kína í hesthúsi íslensku fjöl-
skyldu sinnar.
Tæplega 40 skiptinemar koma hingað til lands í lok næstu viku, en þessir
sem komið hafa sér fyrir í strætóskýli eru í hópi þeirra nema sem komu
hing að á liðnu ári. Myndir frá AFS á Íslandi.
Leyfisveitingar vegna innflutnings
á landbúnaðarvörum
Í lok júní samþykkti Alþingi breyt-
ingu á lögum um dýrasjúkdóma og
varnir gegn þeim. Lögunum er m.a.
ætlað að hindra að dýrasjúkdóm-
ar berist til landsins en óheimilt er
að flytja inn ákveðnar landbúnað-
arvörur nema með sérstöku leyfi.
Matvælastofnun mun framvegis
sinna þessum leyfisveitingum.
Fyrir fyrrgreinda lagabreytingu
gaf sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráð herra út leyfi til innflutnings og
þurftu umsækjendur að sækja um
leyfi til innflutnings til atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytisins. Frá og
með 21. júlí 2015 ber umsækjend-
um að sækja um leyfi til innflutn-
ings á neðangreindum vörum til
Matvælastofnunar:
• Hráar og lítt saltaðar sláturaf-
urðir, bæði unnar og óunnar, hrá
egg, ósótthreinsuð hrá skinn og
húðir, alidýraáburð og rotmassa
blandaðan alidýraáburði.
• Kjötmjöl, beinamjöl, blóðmjöl
og fitu sem fellur til við vinnslu
þessara efna.
• Hey og hálm.
• Hvers konar notaðar umbúðir,
reiðtygi, vélar, tæki, áhöld og
annað sem hefur verið í snert-
ingu við dýr, dýraafurðir og
dýraúrgang.
• Hvers konar notaðan búnað til
stangveiða.
Fjögur hross af sjö
komin í leitirnar
Voru gefin til heimaslátrunar í nóvember síðastliðnum
Við greindum frá því í lok júní síð-
astliðnum að það hefði verið aug-
lýst í smáauglýsinga hlutanum hér
í blaðinu eftir sjö hrossum sem
eig andanum hafði verið meinað
að fá til sín. Elín S. Kristinsdóttir,
eigandi þessara hrossa, greindi þá
frá sögu sinni þar sem fram kom
að frá því að hún varð að fullu
eigandi hrossanna sjö, hefði hún
ekkert séð til þeirra.
Forsögu þessa máls má rekja til
deilna á milli Elínar og fyrrum sam-
býlismanns hennar um eignarhald
á umræddum hrossum, sem endaði
með hæstarréttardómi í september
á síðasta ári, skiptafundi, uppboði í
lok nóvember og síðan útgáfu afsals
sýslumanns í byrjun desember.
Að sögn Elínar gaf maður sig
fram fljótlega í kjölfar umfjöllunar
blaðsins. „Þá hafði maður samband
og spurðist fyrir um nafnið á fyrrum
sam býlismanninum þar sem hann
grunaði að hann væri með fjögur af
þessum sjö hrossum í sinni umsjá.
Hann hafði fengið þau gefins til
heimaslátrunar og það hefði legið
fyrir að koma því í verk fljótlega.
Nafnið stemmdi en það var vinur
þess sem hringdi sem áttaði sig á
því að líklega væri hann með hluta
þeirra hrossa sem ég auglýsti eftir.
Ég fór svo fljótlega í heimsókn til
hans til að ganga úr skugga um
þetta og ég þekkti hrossin strax. Við
vildum bæði láta lesa örmerkin á
þeim og var það gert daginn eftir
og hrossin síðan afhent. Lögreglan
var viðstödd svo ekki færi á milli
mála að ég hefði fengið hrossin í
mína vörslu. Maðurinn sem afhenti
mér þau hafði ekki hugmynd um
örmerkingar hrossa og það að koma
þeim í heimaslátrun hefur sennilega
átt að leiða til þess að ekki yrði hægt
að fá vitnesku um afdrif þeirra,“
segir Elín.
Kæran stendur
Málinu er enn ekki lokið og kæran
stend ur gagnvart fyrrum sambýlis-
manni Elínar og samverkafólki hans.
Enn vantar þrjár hryssur, þær Fold frá
Krossi dökkjarpa (sn. IS2003235761),
Freyju frá Krossi rauða tvístjörnótta,
(sn. IS2001235760) og Svöl frá Skarði
1, móvindótta (sn. IS2003235761).
„Kæran lýtur að því að halda hesta
sem eru í minni eign með ólögmæt-
um hætti og neita að afhenda þá eða
upplýsa hvar þeir eru,“ segir Elín. Í
kærunni kemur fram það mat að kærði
hafi með háttsemi sinni brotið gegn
ákvæðum almennra hegningarlaga nr.
19/1940, einkum ákvæðum um fjár-
drátt. Þá hafi samverkafólk hans gerst
brotlegt við ákvæði sömu laga um
hlutdeild eða eftir atvikum hylmingu.
Freyr Karlsson, maðurinn sem fékk
hrossin fjögur í sínar hendur í nóv-
ember síðastliðnum, ætlaði að slátra
þeim til neyslu fyrir sig og fjölskyldu
sína nú í haust. Hann staðfestir að
maðurinn sem kom með þau til sín
sé fyrrum sambýlismaður Elínar. Hann
segir að skýrt hafi verið tekið fram
að þetta væru ekki reiðhestar; þeir
væru með tungubasl, hentu fólki af
sér og fleira. Þar af leiðandi væri best
að slátra þeim. Ástæðuna fyrir því að
fyrrum sambýlismaðurinn kom þeim
ekki í sláturhús sagði hann við Frey
vera þá að það væri langur biðtími í
sláturhúsum. Freyr er sjálfur trésmiður
að atvinnu og tómstundarbóndi með
nokkrar kindur og kálfa í Vogum.
Hann segist gefinn fyrir hrossakjöt
og honum hefði ekki þótt verra að fá
það gefins eins og raunin átti að vera
með hross Elínar. /smh
Fengur frá Krossi er kominn í leitirnar.