Bændablaðið - 13.08.2015, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015
Fréttir
Á kúabúinu Flatey á Mýrum í
Hornafirði rís eitt stærsta fjós
landsins þessa dagana. Forsvars-
menn búsins, sem er í eigu Selbakka
ehf., hyggjast tvöfalda mjólkur-
framleiðslu á Flateyjarbúinu en nú
eru þar framleiddir um 900 þús-
und lítrar á ársgrundvelli. Eftir
stækk unina verður mögulegt að
auka mjólkurframleiðsluna í tvær
milljónir lítra á ári.
Selbakki er dótturfélag útgerðar-
fyrir tækisins Skinney–Þinganes.
Það vakti þónokkra athygli þegar
fréttist að menn úr sjávarútvegi
hygðust kaupa Flateyjarbúið af
Landsbankanum. Bankinn hafði
áður tekið yfir reksturinn af fyrir-
tækinu Lífsvali sem átti tugi bújarða
um allt land fyrir nokkrum árum. Nú
byggja nýir eigendur upp af miklum
myndarbrag bú sem á sér vart hlið-
stæðu á Íslandi.
Friðrik Reynisson er bústjóri í
Flatey og hefur verið þar frá upp-
hafi þegar fyrri eigendur ákváðu að
breyta gamalli graskögglaverksmiðju
í fjós með tveimur mjaltaþjónum.
Bænda blaðið hitti Friðrik að máli
og ræddi við hann um framkvæmd-
irnar og hagkvæmni þess að byggja
jafn stóra framleiðslueiningu og þá
í Flatey.
Aukin rekstrarhagkvæmni er
drifkrafturinn
Friðrik segir að grunnurinn að því
að fara út í stækkun búsins sé að ná
aukinni rekstrarhagkvæmni. „Ég tel
að það verði auð veldari rekstur á
svona einingu en á fjósi með tveim-
ur mjaltaþjónum. Við getum nýtt
fjárfestinguna betur og jörðina.“ Í
gamla fjósinu eru um 130 kýr mjólk-
andi ásamt geldkúm. Sú bygging
var áður graskögglaverksmiðja en
var breytt með ærnum tilkostnaði
í fjós þegar Lífsval rak búið. Öll
klæðning var rifin utan af húsinu,
bitar og sperrur sandblásnar og klætt
með yleiningum. Nú eru tveir Lely-
mjaltaþjónar í gangi en þeir verða
fjórir í nýja fjósinu. Ætlunin er að
nýta eldri bygginguna til uppeldis
að sögn Friðriks.
300 kýr rúmast í nýja fjósinu
Framleiðslan hjá búinu hefur aukist
síðustu ár og slagar hátt í milljón lítra
á ári. „Það var raunar metmánuður
í júlí þegar við fórum í 88 þúsund
lítra framleiðslu,“ segir Friðrik sem
metur það svo að framleiðslugeta í
nýja fjósinu geti orðið allt að tveimur
milljónum lítra á ári. Greiðslumark í
Flatey er rúmlega 700 þúsund lítrar
og nú þegar framleiðir búið tölu-
verða umframmjólk. Aðspurður um
kvótamálin segir Friðrik að eigendur
viti ekki frekar en aðrir hvernig þau
þróist. „Við höld um bara áfram veg-
inn,“ segir hann.
Byggingarstjórnun er á hendi
Birkis Birgissonar en að sögn
Friðriks koma nokkrir aðilar að
hönn un og annarri ráðgjöf í kringum
fjósbygginguna. Heildarflatarmál
nýja fjóssins er um 4.700 fermetrar
sem er tæpur hálfur hektari. Margir
aðilar koma að byggingunni en aðal-
verktaki fjóssins er hornfirska verk-
takafyrirtækið Mikael ehf.
„Það er stefnan að vera komin
inn með gripi í bygginguna í haust
en við keyptum kýr á Suðurlandi
fyrir nokkru. Stefnt er að því að vera
með um 300 kýr og dreifa burðinum
alveg jafnt yfir árið,“ segir Friðrik.
Reglufesta er mikilvæg
Framleiðsluskipulagið í fjósinu
verður eins og víða tíðkast í fjósum
af þessari stærðargráðu og íslenskir
bændur þekkja af skoðunarferðum
sínum í dönsk fjós. „Draumurinn er
– hvort sem hann rætist nú endanlega
eða ekki – að þetta verði eins konar
hringur sem kýrnar fara inni í fjósinu.
Þá byrja kýrnar sem eru í geldstöðu
á ákveðnum stað í húsinu. Þegar
þær bera fara þær í burðarstíur og
þaðan yfir í velferðina. Þegar mjólkin
minnkar í kúnum og þær verða aftur
kálfafullar fara þær á annað svæði.
Þegar svona margir gripir eru í
fjósinu verður að vera rútína og regla
og henni er ætlað að ná með þessu
skipulagi,“ segir Friðrik. Útivist
kúnna er þannig skipulögð að beit-
arhólf eru rétt við fjósið. Hjörðinni
verður tvískipt og ekki allur flotinn
úti í einu að sumarlagi.
Kalt fjós
Burðarvirkið í nýja fjósinu er úr
lím trésbitum en á því verða ekki
yleiningar eins og tíðkast í flest-
um nýjum fjósum heldur verður
eingöngu bárujárn. Fjósið verður
óeinangrað en það verður möguleiki
á að breyta því ef þarf á seinni
stigum. Stórir þakgluggar verða á
byggingunni og loftræsting með
góðri stýringu. Hollenskir steypt-
ir gólfbitar verða í öllu húsinu
og flórar undir. Í burðarstíum og
á smákálfasvæði verður notaður
undirburður. Eins og áður segir
verða fjórir nýir Lely-mjaltaþjónar
í fjósinu. Dælubúnaður sér um að
flytja mykjuna úr haugkjallaran-
um yfir í þró sem stendur við hlið
fjóssins.
Haugþró af stærri gerðinni
Ný haugþró var steypt í vor. Hún er
engin smásmíði, 6 metrar á dýpt og
30 metrar í þvermál. „Það var nær
engin jarðvinna undir henni. Bara
ýtt ofan af og þá vorum við fljót lega
komnir niður á möl,“ segir Friðrik.
Gunnar Gunnlaugsson bygg inga-
meistari sér um alla uppsteypu í
Flatey. Haugtankurinn er járnabund-
inn og staðsteyptur með súlu í miðj-
unni. Þar er möguleiki að setja segl
en bændurnir í Flatey stefna þó á að
hafa þróna opna. Reynslan á eftir
að sýna hvaða áhrif rigningarvatnið
hefur á magnið í tanknum. Gunnar
útbjó sérstakar lamir á festingarnar
á flekamótin til þess að geta sleg-
ið þeim upp í hring. Að hans sögn
er auðvelt að slá upp mótum fyrir
hvaða stærð af haugþróm sem er
með þessum hætti.
Nær allt hey í útistæðum
Áætlað er að heilfóðra gripina í nýja
fjósinu. Sú nýlunda var gerð í hey-
skapnum í sumar að nær allt fóðr ið var
verkað í útistæður. Að sögn eigandans
var kostnaður við plastkaup og tíma-
frekur heimakstur á rúllum það sem
réði úrslitum þegar sú ákvörðun var
tekin að hætta nær alfarið rúlluverkun
á búinu. Ef allt hefði verið bundið í
rúllur væri plastkostnaður í kringum
2,5 milljónir króna. Annað, sem er
athyglisvert á jafn stóru búi, er að í
ár sáu verktakar um heyskapinn að
mestu leyti. Alls var heyjað af um
200 hekturum og tók verkið ekki
nema fjóra sólarhringa, frá því að
byrjað var að slá og þar til allt hey var
komið heim í stæður við nýja fjósið.
Að auki eru Flateyjarbændur með
slægjur á bænum Einholti þar sem
enn er heyjað í rúllur.
Búið að rækta upp fjölda hektara
Flatey er landmikil jörð með gnægð
af ræktanlegu landi. Mikil ræktun
hefur átt sér stað á undanförnum
árum. Áður en Lífsval eignaðist
jörðina var búskapur lagður af á
bæn um og graskögglaverksmiðj unni
lokað. „Það var öllu snúið við á fyrstu
árunum og allt girt upp á nýtt. Við
erum ennþá að rækta upp og með
fyrirliggjandi stækkun búsins höldum
við áfram á þeirri braut“ segir Friðrik.
Jarðvegurinn er góður, jarðvatnsstaða
er há og stutt niður á möl. Að sögn
Friðriks notar hann um 550 kg af
áburði á hektarann.
„Landið er nokkuð fjölbreytt og
ekki allsstaðar rýrt, við getum valið
úr. Í viðbót við það sem komið er í
ræktun má segja að við höfum um
130 hektara þar sem ekkert annað
þarf að gera en að stinga plógnum
niður. Heildartúnastærð sem við
höfum nú til umráða, með Einholti,
er um 300 hektarar og elstu túnin eru
síðan 2008,“ segir Friðrik.
Fuglinn gerði út um kornræktina
Á búinu var ræktað korn í stórum stíl en
í ár eru engir kornakrar. „Kornræktin
reyndist okkur dýr og við ákváðum
að setja ekkert korn niður þetta árið.
Fuglinn er svo skæður og mun verri
en haustlægðirnar. Það kom ekkert
veður í fyrra sem eyðilagði kornið,
bara fuglinn. Maður ræður ekkert við
álftina,“ segir Friðrik.
Góðir starfsmenn eru lykillinn
að farsælum búrekstri
Alls eru nú fimm starfsmenn á Flat-
eyj ar búinu en þeir hafa verið þrír
síðastliðin ár. Friðrik hefur starfað
við búið frá upphafi en áður var faðir
hans, Reynir Sigursteinsson, bú stjóri.
Kristín Egilsdóttir er fjósa meist ari og
er lykilstarfsmaður að sögn Friðriks
við að láta hlutina ganga upp í fjósinu.
„Við höfum ver ið með harðduglegt
fólk í vinnu og óskaplega heppin með
það. Stína hefur verið hér frá upphafi
svo að segja en hún sér nær alveg um
fjósið og flest sem því við kemur, allt
bókhald og fleira sem tengist rekstri
þess. Það er gott að hafa fólk sem
maður getur treyst.“
Reynslan mun skera úr um hvort
rekstrarmarkmið náist
Friðrik segir að bú af þessari stærðar-
gráðu skipti miklu máli fyrir land-
búnað á svæðinu og það hafi verið
heillaspor þegar útgerðarmenn frá
Höfn hefðu ákveðið að koma inn í
reksturinn. Aðspurður um kostnað
við stækkunina segist bústjórinn
ekki hafa þær tölur á reiðum hönd-
um. Áætlanagerð og framkvæmd sé
á hendi eigenda Selbakka ehf.
Reynslan mun síðan skera úr um
hvort kúabú sem framleiðir tvær
milljónir lítra af mjólk á ári, eða
kringum 1,5% af heildarframleiðsl-
unni í landinu, komi til með að reyn-
ast hagkvæm framleiðslueining og
skila eigendum sínum viðunandi
hagnaði.
/TB
Miklar framkvæmdir á Mýrum í Hornafirði
Nýtt fjós í Flatey er tæpur
hálfur hektari að stærð
Framleiðslugetan verður um tvær milljónir lítra á ári
Friðrik Reynisson bústjóri segir að markmiðið með því að stækka búið í Flatey sé að ná aukinni rekstrarhagkvæmni.
Ný haugþró er sex metrar á dýpt og 30 metrar í þvermál. Myndir / TB
Verktakar sáu um heyskapinn í Flatey í ár og heyið var keyrt í útistæður.
Nýja fjósið í Flatey er engin smásmíði og minnir helst á íþróttahöll. Við hlið þess er gamla fjósið sem áður var
graskögglaverksmiðja.