Bændablaðið - 13.08.2015, Side 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015
Bændablaðið
Kemur næst út
27. ágúst
Smáauglýsingar
56-30-300
Microflex regngalli
Vnr. 5790 691935*
Blár Microflex regngalli.
Verð 22.676 kr.
COFRA leðurhanskar
Vnr. 7151 G120 KD00
Leðurhanskar með laska.
Stærðir 10 og 11.
Verð 990 kr.
Regnjakki
Vnr. 5790 LR9055
Regnjakki EN471 320 GR.
Uppfyllir sýnileikastaðal,
fáanlegur gulur eða
appelsínugulur.
Stærðir S–3XL.
Verð 9.781 kr.
DUNLOP Purof
Professional
Vnr. 9655 D460933
Létt stígvél með höggdeyfi
í sóla, hentug við
margskonar aðstæður.
Stærðir: 37–48.
Verð 9.900 kr.
Tech tappa-
viðgerðarsett
Vnr. 664 230 885
Með lofthylkjum fyrir
fjórhjól.
Verð 4.930 kr.
Þjarkur samfestingur
Vnr. 9628 120020
Þunnur samfestingur með
hnjápúðavösum, dökkblár
með heiðbláu á bringu.
Stærðir 48–72.
Verð 11.900 kr.
Sensor höfuðljós
Vnr. 893 03.5025
Stillanlegur fókus,
snertifrír rofi.
Verð 5.879 kr.
Fjórhjóladekk
Mikið úrval fjórhjóladekkja
frá Maxxis og Swamp lite
fyrir flestar gerðir hjóla.
Banner rafgeymar
Start- og neyslugeymar
í miklu úrvali.
Mobil smurolía
Mobil Delvac MX 15W-40
4 og 20 lítra. Mínerölsk olía
fyrir vinnuvélar.
www.n1.is facebook.com/enneinn
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.IS
E
N
N
75653 08/15
Ferð til fjár
Verslanir N1 um land allt bjóða gott
vöruúrval fyrir bændur í smalamennsku
Hluti af smalamennskuN1 verslanir og umboðs-
menn um land allt
Sími: 440 1000
Klettagarðar, Grindavík, Ólafsvík, Patreksfjörður, Höfn, Ísafjörður,
Reyðarfjörður, Reykjanesbær, Akureyri og Vestmannaeyjar.
Í selatalningunni miklu sem fram
fór vegum Selaseturs Íslands á
Hvamms tanga í liðnum mánuði
voru 446 selir taldir á strandlengj-
unni á Vatnsnesi og Heggstaðanesi
í Vestur-Húnavatnssýslu. Þetta er
minnsti fjöldi sem talinn hefur verið
á þessu svæði frá því talning hófst
árið 2007, eða í níu ár.
Markmið talningarinnar er að fylgj-
ast með fjölda og staðsetningu land-
sela á Vatnsnesi og Heggstaðanesi,
ásamt því að gefa almenningi tækifæri
á að kynnast og taka þátt í rannsóknar-
starfsemi Selaseturs Íslands.
Selir voru taldir á allri strandlengj-
unni á Vatnsnesi og Heggstaðanesi
í Húnaþingi vestra, samtals um 100
kílómetra. Í tilkynningu frá Selasetrinu
segir að sjálfboðaliðar hafi aðstoðað
sérfræðinga Selasetursins við talning-
una. Með því móti gefist færi á að
kanna stórt svæði á mjög stuttum
tíma. Í ár tóku um 50 manns þátt í
talningunni, sem er metþátttaka og
voru það bæði erlendir og íslenskir
ferðamenn á leið um landið. Sumir
landeigendur töldu sjálfir í sínu landi
og selaskoðunarbáturinn Brimill sem
gerir út frá Hvammstanga, aðstoðaði
einnig við talninguna.
Í ár sáust samtals 446 selir á svæð-
inu, aðallega landselir. Það er minnsti
fjöldi sem talinn hefur verið á þessu
svæði, en í talningum árin 2011–2014
hafi fjöldinn verið á bilinu 614 og 757
dýr og árin þar á undan (2007–2010)
yfir 1.000 dýr. Þrátt fyrir að tölurnar
gefi fækkun til kynna sé mikilvægt
að hafa í huga að talningarnar eru
aðeins vísbending um lágmarksfjölda
þeirra sela sem dvelja á þessu svæði.
Margir þættir hafi áhrif á fjölda sela
sem liggi uppi í látrunum hverju sinni
og er veður einn þeirra. Í ár var veðr-
ið verra en oft áður, þoka, rigning og
gola og hitastigið aðeins rúmlega sex
gráður. Skilyrðin fyrir selinn að liggja
upp á landi voru því sem verst þegar
talningin fór fram, því þeir kjósa helst
að liggja upp á landi í sólskini, logni
og blíðu.
Vantar fjármagn
Þá segir einnig í tilkynningu Sela-
setursins að athuga beri að tölurnar
segi ekki til um ástand landsselsstofns-
ins í heild. Stofnstærðarmat á landsel
ins verið talinn og bendi þær talningar
til töluverðar fækkunar á stofninn.
til að framkvæma heildartalningu á
stofninum, en Selasetrið vonist til
að geta framkvæmt slíkar talningar
á næsta ári. /MÞÞ
Alls voru 446 selir taldir á
strandlengjunni á Vatnsnesi og
Heggstaðanesi í Vestur-Húna-
vatnssýslu. Þetta er minnsti
fjöldi sem talinn hefur verið
á þessu svæði frá því talning
hófst árið 2007 eða í níu ár.
Mynd af vef Selaseturs Íslands
Metþátttaka í Selatalningunni miklu
Færri selir taldir en áður
Jón Gíslason áfram
forstjóri Mast
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra hefur skipað Jón Gíslason
for stjóra Matvælastofnunar frá 1.
ágúst til næstu fimm ára.
Starf forstjóra Matvælastofnunar
var auglýst 6. maí sl. og sóttu níu
ein staklingar um starfið. Sérstök
hæfisnefnd lagði mat á umsækjendur
og gerði tillögu til ráðherra.
Jón hefur gegnt starfi forstjóra
Matvælastofnunar frá því að hún var
sett á laggirnar árið 2007.