Bændablaðið - 13.08.2015, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015
Í tilefni Sveitasælu sem haldin verður
í Reiðhöllinni Svaðastaðir, Skagafirði
22. ágúst minnum við á
að Verslunin Eyri verður með kynningu
á Gallagher vörum o.fl.
Óskum sýningargestum góðrar
skemmtunar og vonumst til að
sjá sem flesta!
Eyrarvegi 21, 550 Sauðárkróki
Sími 455 4610
Opið: 8-18 virka daga / 10-13 laugardaga
N
ÝP
RE
N
T
Orðsending til bænda:
Munið að panta heysýnatöku
Það er mikilvægt að láta efnagreina
gróffóður því það er uppistaðan í
fóðri grasbíta. Það er margt sem
hef ur áhrif á gæði gróffóðurs eins
og áburðagjöf, veðurfar, sláttutími
og grastegundir. Þetta er breytilegt
á milli ára og það getur verið erfitt
að meta næringargildi fóðursins án
þess að láta efnagreina það. Með
því að láta efnagreina heysýni vita
bændur hvernig fóður þeir eru með
og geta skipulagt fóðrunina eftir
þörfum. Þannig vita menn hvaða
fóður er best að gefa á hverjum
tíma og eftir atvikum hvað þarf að
gefa með. Margir kaupa viðbótar-
fóður eins og bygg, fiskimjöl eða
kjarnfóðurblöndur hvort sem er
fyrir nautgripi, sauðfé eða hross,
það er mögulegt að spara útgjöld
og hámarka nýtingu gróffóðursins
ef upplýsingar um allan fóðurforð-
ann liggja fyrir, ekki bara viðbótar-
fóðrið.
Ráðunautar RML koma og taka
sýni úr fóðri og koma því til efnagrein-
ingar. Ráðunautar hafa upplýsingar
um þá möguleika sem bjóðast í
efnagreiningaþjónustu fyrir íslenska
bændur. Ef pöntuð er heysýnataka
hjá RML kemur ráðunautur sýnun-
um til efnagreiningar hvort held-
ur sem er til Efnagreiningar ehf.
á Íslandi eða Blgg í Hollandi, allt
eftir því sem bóndi ákveður. Óski
bændur eftir því að senda hirðinga-
sýni til efnagreininga geta þeir
haft samband við ráðunauta RML
og fengið upplýsingar um verð og
þjónustu sem er í boði og þannig
tekið upplýsta ákvörðun um hvert
sýnið fer.
Mögulegt er að fá túlkun niður-
staðna frá ráðunautum þegar niður-
stöður liggja fyrir. Eins geta ráðunaut-
ar veitt ráðgjöf um nýtingu fóðursins
og þörfina fyrir viðbótarfóður, hvað
hentar og hvers vegna. Ráðunautar
vinna fóðuráætlanir fyrir bændur
sem miða að hagkvæmri fóðrun sem
stuðlar að góðri framleiðslu, sniðnar
að þörfum hvers og eins. Hægt er
að panta heysýnatöku á heimasíðu
RML, www.rml.is.
Bænd ur eru vinsamlega beðnir að
hafa samband við ráðunauta RML
um nánari upplýsingar.
/Berglind Ósk Óðinsdóttir
fóðurfræðingur hjá RML
Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes
Söluskrifstofa - Vesturvör 29 - 200 Kópavogur
Netfang - sala@limtrevirnet.is
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350
limtrevirnet.is
Yleiningar fyrir
íslenska veðráttu
Hjá Límtré Vírnet færðu léttar stálsamlokueiningar
með polyúreþan- eða steinullareinangrun á milli.
Henta í útveggi og þök, milliveggi og loft, kæli- og frystiklefa, fyrir heimili
og fyrirtæki. Raka- og vindþéttar, einangra vel, auðþrifnar, iIltendranlegar,
gæðaprófaðar, léttar, fljótuppsettar, þaulreyndar og hagkvæmar.
Kynntu þér Yleiningar á limtrevirnet.is.
Eiga skógrækt
og sauðfjár-
rækt samleið?
Aðalfundur Skógræktarfélags
Ís lands verður haldinn í Menningar-
húsinu Hofi á Akureyri dagana
14. til 16. ágúst. Skógræktarfélag
Íslands er móðurfélag skógræktar-
félaga vítt og breitt um landið og í
röðum þeirra eru milli sjö og átta
þúsund félagsmenn.
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis-
og auðlindaráðherra, ávarpar fundar-
fólk í upphafi aðalfundarins á föstu-
dagsmorgun ásamt bæjarstjóranum á
Akureyri, skógræktarstjóra og for-
mönnum Skógræktarfélags Íslands
og Skógræktarfélags Eyfirðinga. Því
næst verða fluttar skýrslur og skipað
í nefndir að venju. Síðdegis er á dag-
skránni skoðunarferð til Siglufjarðar
þar sem reitur Skógræktarfélags
Siglufjarðar verður formlega opn-
aður undir merkjum Opins skógar.
Fjöldi erinda eru á dagskrá fund-
arins. Hrefna Jóhannesdóttir skóg-
fræðingur talar um skóg sem orku-
auðlind, málefni sem er ofarlega
á baugi um allan heim. Sigurður
Arnarson, höfundur Belgjurta-
bók arinnar, fjallar um belgjurt-
ir í skógrækt og Guðríður Gyða
Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur á
Nátt úrufræðistofnun Íslands, flytur
erindi sem hún kallar „Að sjá ekki
skóginn fyrir sveppum“. Einnig
flytur formaður Landssamtaka
sauð fjárbænda erindi, Þórarinn Ingi
Pétursson, og spyr: „Eiga skógrækt
og sauðfjárrækt samleið?“ /VH
Með kind
út að borða
Bílstjóri bifreið-
ar sem var stöðv-
uð á sveitavegi í
Yorkshire-skíri
reyndist vera
með kind í aftur-
sætinu og á leið á skyndibitastað þar
sem hann ætlaði að fá sér hamborgara
og bjóða kindinni upp á salat.
Lögreglan í Yorkshire-skíri á Bret-
landseyjum stöðvaði ökumann bif-
reiðar fyrir skömmu vegna einkenni-
legs farþega í aftursætinu.
Eftir að bifreiðin hafði verið stöðv-
uð kom í ljós að farþeginn reyndist
vera sauðkind. Aðspurður um hvers
vegna hann væri með sauðkind í
aftursætnu sagði bílstjórinn að hann
ætlaði að fá sér hamborgara og bjóða
kindinni upp á salat á nærliggjandi
McDonalds-stað.
Þegar lögreglan gerði athugasemd
við skýringu ökumannsins benti hann
þeim góðlátlega á að fjöldi manns
keyrði um með hunda í aftursætinu og
skotinu en hann kysi að bjóða kindinni
í bíltúr og upp á McDonalds annað
slagið. /VH