Bændablaðið - 13.08.2015, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015
Ég skulda mörgum eigendum
forystu fjár hér á landi greinargerð
um íslenska forystuféð. Snemma
á árinu 2009 hófst ég handa við
að reyna að afla upplýsinga um
allt forystufé í landinu sem sett
var á haustið 2008. Ætlunin var
að safna upplýsingum um féð til
að geta gefið lýsingu á stofninum
og hvernig varðveisla hans hefur
tekist á undanförnum áratugum.
Hafði ég sambandi við mjög
mikinn fjölda fólks um allt land sem
ég taldi að gæti safnað fyrir mig á
einhvern hátt þessum upplýsingum.
Eins og ætíð þegar ég hef þurft
þannig að leita til bænda voru
viðbrögð mjög jákvæð. Eins og í
allri smalamennsku varð leitin að
síðustu gripunum mjög seinleg. Ég
veit raun ar að ekki var kollheimt
enda líklega nær óframkvæmanlegt
þegar um jafn ósamstæðan hóp er
að ræða og hér. Þegar í hús voru
komnar þær upplýsingar sem
mér virtist mögulegt að ná til
for fallaðist ég um langan tíma
frá störfum. Rétt er að geta þess
að í rannsókninni tókst að koma
höndum yfir 1422 kindur sem
settar voru á vetur haustið 2008.
Þannig má ætla að stofninn hafi
talið um 1500 kindur á þeim tíma.
Það er um 0,3% af öllu ásettu fé
í landinu og í samanburði við
rannsókn Lárusar G. Birgissonar
nær tveim áratugum áður (sjá hér
síðar) má ætla að þessu fé fari
frekar fjölgandi.
Árið 2014 gat ég fyrst ein beitt
mér að verkinu að nýju. Af rakst-
ur inn mun nú á haustdögum birt-
ast sem grein í tímaritinu Nátt-
úru fræðingnum. Greinin er unnin
í samvinnu við fjölda áhuga-
samra samstarfsmanna. Um allar
niðurstöður vísa ég því lesendum
til þeirrar greinar þegar hún birtist.
Hér á eftir mun ég hins vegar ræða
nokkur atriði sem tengjast þessari
mestu og leyndustu náttúruperlu
íslensks búfjár.
Eldri heimildir
Forystuféð hefur um aldaraðir ver-
ið eins konar huldufé í íslenskri
sauðfjárrækt. Í raun eru haldbærar
upplýsingar um stofninn verulega
takmarkaðar. Árið 1993 vann Lárus
G. Birgisson lokaverkefni sitt við
Landbúnaðarháskólann þar sem
hann kortlagði stofninn í fyrsta skipti.
Rúmum tíu árum síðar eða 2004
vann síðan Sigríður Jóhannesdóttir
við sama skóla lokaverkefni um
þróun stofnsins á síðustu áratugum
með tilliti til skyldleikaræktar en
söfnun ætternisupplýsinga reyndist
henni nokkuð snúin. Gögn þau sem
þau öfluðu í þessum verkefnum
komu samt að ómældu gagni við
þetta verkefni. Það fólst í raun í
samþættingu þessara upplýsinga
með nýjum og heilstæðari gögnum.
Eins og þegar hefur verið sagt
þá voru eldri heimildir um þetta
fé mjög takmarkaðar. Til er að
vísu hið einstaka verk Ágeirs
Jónssonar frá Gottorp, bókin
Forystufé. Hana má að vísu
aðeins nota með varkárni sem
heimildaverk um stofninn. Væri
hún tekin bókstaflega mætti álykta
að stofninn hafi verið bundinn
Norðurlandi vestra að mestu leyti
á fyrri hluta síðustu aldar, sem ég
held að sé alrangt. Engu að síður er
ljóst að þegar fjárskiptin voru um
miðja síðustu öld féll umtalsverður
hluti af forystufé í landinu. Þá
voru menn áhyggjufullir um að
stofninum yrði eytt og Hjörtur
Eldjárn lagði þá líklega til fyrstu
varnaraðgerðir til varðveislu á
erfðaauðlindum þegar hann lagði til
að reynt yrði að bjarga stofninum frá
eyðingu með varðveislu í úteyjum
fyrir Norðurlandi. Skömmu áður
hafði Halldór Pálsson lagt til
að þá nýstofnaður þjóðgarður á
Þingvöllum yrði nýttur til slíkra
hluta. Fram kemur víða í skrifum
Halldórs á fjárskiptaárunum að
hann taldi tvísýnt að stofninum yrði
bjargað. Góðu heilli hafa áhyggjur
þessara góðu manna reynst óþarfar.
Gengisfelling
forystufjáreiginleikans
Það var annað en niður skurðar-
hnífurinn sem ógnaði forystufé
á þessum tíma. Mikilvægi þess í
fjárbúskapnum fór ört dvínandi.
Þegar beitarbúskapur, sem hafði
verið undirstaða fjárbúskapar
í landinu um aldarraðir, var að
hverfa, hvarf um leið veigamesta
hlutverk þessa fjár. Einnig leiddi
þróun flutn ingatækni á þessum
árum til þess að síður var þörf fyrir
aðstoð þessa fjár við fjárrekstra um
langa vegu og torleiði. Ekki bjó
það yfir framleiðslueiginleikum á
við flest annað fé. Hlutverk þess á
nýjum tímum var því öðru fremur
ánægjuauki fyrir eigendur þess og
um leið varð brýnt að vinna að því
að varðveita þennan merka stofn.
Núverandi dreifing
Örfá orð um dreifingu forystufjár
um landið. Þetta fé er að finna
um allt land nema í Vestur-
Barðastrandasýslu fannst slíkt
hreinræktað fé ekki en þar hygg
ég að menn séu á góðri leið, með
skipulegri notkun sæðinga, að koma
sér upp slíku fé að nýju. Mestan
fjölda forystufjár er að finna á
Norðausturlandi en tvo svæði eru
öðrum þunnskipaðri af þessu fé
og er það annars vegar svæðið frá
Markarfljóti austur og norður að
Egilsstöðum og hins vegar á Vest-
fjörðum. Á Vestfjörðum er samt að
finna tvær öflugar hjarðir sem hafa
orðið þessari ræktun mikilvægar á
síðustu árum vegna þess að þær eru
á fjársölusvæðum.
Perlan í íslensku búfé
Eftir vinnu við þessar rannsóknir
í nokkur ár hefur mér orðið ljósar
en áður að forystuféð er líklega
dýrmætasta erfðaauðlindin sem
finnst hér á landi. Það má fullyrða
að eiginleika þess er hvergi að finna
hjá öðru sauðfé í heiminum. Þetta
gerir skyldur okkar um varðveislu
enn mikilvægari.
Fyrir mörgum árum þegar við
Ágúst Sigurðsson vorum að vinna
að gerð BLUP-kynbótamats fyrir
kjötgæði hjá sauðfé hér á landi þar
sem forystuféð sýndi sín sérkenni
og var auðlesið úr niðurstöðunum
fyrir þá eiginleika, sagði hann mér
að hér værum við tvímælalaust með
einstaka möguleika í höndunum til
að markaðssetja mjög sérstakan
eiginleika. Ég var ekki uppnuminn
og hafði efasemdir en eftir því sem
ég hef meira unnið að þessu efni
hef ég sannfærst betur og betur
um að þarna hafði Ágúst, eins og
svo oft, lög að mæla. Þarna bíður
stórverkefni forystufjáreigenda á
Íslandi á næstu árum og áratugum.
Kynning þess verður að vísu
að heppnast betur en hjá okkur
Stefáni Aðalsteinssyni fyrir rúm-
um tveim áratugum þegar við
á heimsráðstefnu í Kanada um
bú fjárerfðafræði og -kynbætur
vorum að kynna niðurstöður
rann sóknar Lárusar á þeim tíma.
Undirtektir voru að vísu góðar en
menn trúðu vart okkar orðum. Héldu
líklega að við hefðum sloppið inn á
þessa virðulegu ráðstefnu til að gera
grín að mönnum líkt og Baldur og
Konni forðum með íkjusögum. Það
sem okkur vantaði voru mælingar
til að sýna framá eiginleikann. Þær
hafa nú verið gerðar og vísast til
greinarinnar sem nefnd er í byrjun.
Félagi okkar, Ástralíumaðurinn
Piper, sem nokkrum árum síðar
gaf út heimsrit sitt um erfðir hjá
sauðfé og sauðfjárkynbætur, víkur
að þessu í sínu riti. Hann bætir um
betur með því að láta að því liggja
að við værum slíkir einfeldningar
að við áttuðum okkur ekki á að
þarna hefðum við mætt kindum
sem hefðu verið hræddar við okkur.
Það ánægjulega hefur gerst að
komið er Forystufjársetur austur
í Þistilfirði sem hefur vakið verð-
skuld aða athygli en á vonandi eftir
að vekja hana enn meira á komandi
árum. Fyrir meira en áratug var
stofn að Forystufjárræktarfélag
Ís lands en starfsemi þess hefur
verið öllu minni en þyrfti að vera.
Nú stendur til að blása lífi að nýju
í þennan félagsskap og tengja hann
betur Forystufjársetrinu. Með því
að kalla nýtt fólk til starfa tekst
vonandi að hefja kyndilinn á loft að
nýju. Verkefnin bíða í að samræma
alla vinnu betur í upplýsingaöflun
um þessa einstæðu erfðalind sem
forystuféð er og hefja markvissa
kynn ingu þess erlendis. Samvinna
þessara tveggja aðila sem báðir
stefna að sama markinu, að efla
veg og virðingu forystufjár, er þar
lykilatriði.
Forystufjárfélagið
Ástæða er því að kalla sem allra
flesta forystufjáreigendur í landinu
og aðra áhugamenn um ræktun og
varðveislu forystufjár til að mæta
á aðalfund félagsins sem haldinn
verður sunnudaginn 23. ágúst í
For ystufjársetrinu á Svalbarði í
Þistilfirði og hefst klukkan 13.30.
Í framhaldi af aðalfundinum mun
verða fræðslufundur í setrinu. Á þeim
fundi mun Ólafur R. Dýrmundsson
fjalla um frænda sinn, þann einstaka
mann Ágeir Jónsson frá Gottorp sem
skrifaði bíblíuna Forystufé. Síðan
mun ég fjalla um einhver atriði úr
rannsóknum mínum og samstarfsfólks
um íslenska forystuféð. Hittumst sem
flest í Forystufjársetrinu.
Í næsta blaði mun birtast frekari
umfjöllun um nokkur atriði sem fram
koma í rannsókninni sem ástæða er
til að fjalla frekar um. Það eru þættir
eins og hvernig varðveisla stofnsins
síðustu áratugina hefur tekist og
umfjöllun um útleikseiginleika
þessa fjár.
Íslenska forystuféð – fyrri hluti
Fyrrum voru bjöllur í hornum forystufjár en þær eru nú sjaldséðar. Myndin
er af forystuá á Sauðadalsá á Vatnsnesi. Mynd / smh
Þessi virðulegi sonur Blesa 98884 á Innri-Múla á Barðaströnd verður vonandi
ættfaðir að nýju forystufé í framtíðinni. Það er vitað að forystufé hefur verið
keypt í V-Barðastrandarsýslu eftir að úttekt á íslenska forystufjárstofninum
fór fram. Þetta fé er nú í öllum sýslum landsins. Mynd / Sigurður Sigurðarson
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Jón Viðar Jónmundsson
Ráðunautur hjá RML
jvj@bondi.is