Bændablaðið - 13.08.2015, Qupperneq 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015
Utan úr heimi
Í júní sl. héldu félagar í Félagi
vest firskra sauðfjárbænda í stutta
fagferð til Skotlands en megin til-
gangur ferðalagsins var að fara
á landbúnaðarsýninguna Royal
Highland Show auk þess að kynn-
ast bæði landbúnaði og menningu
landsins eins og hægt væri á örfá-
um dögum, en ferðin stóð frá föstu-
deginum 19. júní til þriðjudags-
ins 23. júní. Bæði sýningunni og
fyrri hluta ferðarinnar hafa verið
gerð skil hér í Bændablaðinu fyrr
í sumar og fer nú hér síðari hluti
ferðalýsingarinnar.
Sauðfjárbú í Mið-Skotlandi
Segja má að hápunktur ferðarinn-
ar hafi verið heimsókn til John og
Margret Maxwell sem búa myndar-
legu búi við þorpið Fintry í Mið-
Skotlandi. Margret rekur ferðaþjón-
ustu í formi heimagistingar, en John
sér um sauðfjárbúið Jaw Farm sem
telur um sexhundruð svarthöfða ær
auk þess að vera með á þriðja tug
holda kúa af Simmental og hvítu
Galloway kyni. Þau hjón tóku ein-
stak lega vel á móti hópnum en John,
sem er á áttræðisaldri, byrjaði á því
að smala öllum íslensku kollegum
sínum upp í tvo aftanívagna og svo
var haldið til fjalls! Sagði hann að
ekki væri hægt að átta sig á staðhátt-
um nema með því að fara aðeins upp
í hálendið. Þegar þangað var komið,
var bæði hægt að virða fyrir séð
hið fallega sauðfé og holdakýrnar,
en John hafði smalað saman í lítið
aðhald bæði kúnum og ánum svo
unnt væri að komast í námunda við
skepnurnar.
Úti allt árið
Landgæði Jaw Farm eru allgóð en
bæði eru tún á láglendi en einnig all-
nokkurt beitiland sem flokkast sem
hálendi. Ærnar og kýrnar eru úti
allt árið en John flokkar ærnar eftir
frjósemi og velur þeim beitarsvæði
eftir lambafjölda. Í því sem kalla
mætti heimahaga voru tvílemburn-
ar og holdakýrnar en einlemburnar
urðu að sætta sig við ófrjórra land og
vera lengra uppi í landi. Túnin slær
John einu sinni og notar það fóður til
þess að skerpa á orkujafnvægi ánna í
kringum tilhleypingarnar, sem og til
þess að geta bætt við beitilandið ef á
þarf að halda yfir háveturinn. Hann
sagði þó svæðið afar snjólétt og því
ekki alltaf sem gefa þyrfti á fjallið.
Einstakur bóndi
Það var hrein unun að heyra John tala
um skepnurnar sínar og augljóst að
þarna fór sauðfjárbóndi sem hafði
vit á búskapnum. John er jafnframt
þekktur og virtur kynbótadómari
og dæmir bæði sauðfé og nautgripi
reglu lega á sýningum. Hann hefur
sjálfur náð góðum árangri bæði með
sölu á hrútum og einnig kynbótanaut-
um, en gerði nú ekki mikið úr því í
samtali við hópinn. Sagði bara að
hann hefði verið heppinn í nokkur
skipti, en öllum sem hlýddu á John
mátti þó vera ljóst að þarna var á
ferð einstakur bóndi sem hafði náð
langt á sínum langa ferli. Eftir góða
skoðunarferð um beitarlandið, smal-
aði John saman nokkrum efnilegum
lambhrútum sem hann taldi að gætu
gefið vel af sér á uppboðsmarkaði í
haust og eftir skoðun á lambhrútun-
um var svo boðið í kaffi heima.
Magnað kerfi
Sunnudaginn 21. júní var farið á
land búnað ar sýninguna á ný og eftir
hálfs dags heimsókn þar var farið til
Edinborgar þar sem hægt var að njóta
lífsins og skoða þessa miklu heims-
borg, auk þess sem heimsókn í viský-
sögusafn borgarinnar var auðvitað
skylda! Mánudagurinn 22. júní var
svo tekinn snemma enda var förinni
heitið á hinn þekkta uppboðsmark-
að Lanark Agricultural Market, en
þar eru lífdýr seld við hamarshögg.
Yfir maður markaðarins, William
S. McCulloch, tók á móti íslenska
hópnum og sýndi fyrst aðstöðuna
en heimsóknin endaði svo á sauð-
fjáruppboði kynbótagripa. Uppboð
lífdýra er ein af sérstöðum Stóra-
Bretlands en hefur aðeins smitað út
frá sér til annarra landa í Evrópu en
fullyrða má þó að hvergi sé meiri sala
lífdýra enda selja bændur t.d. ekki
gripi í sláturhús heldur eingöngu á
lífdýramarkaði og þar eru svo kaup-
endur staddir, sem geta verið frá
sláturhúsum en einnig t.d. beint frá
stórverslunum sem kaupa þá gripi á
fæti og láta slátra fyrir sig!
12 þúsund fermetrar
Lanark uppboðsmarkaðurinn er
hreint ótrúlega stór enda eru þar boðn-
ar upp þúsundir gripa á degi hverjum
þegar mest gengur á! Fyrir vikið þarf
gríðarlegt húsnæði fyrir biðstíur og
annað sem tengist uppboðum á grip-
unum. Alls eru 12 þúsund fermetrar
undir þaki og langstærsti hlutinn er
biðrými gripanna en hver bóndi fær
sér stíu fyrir gripi sína og geta tugir
bænda verið með gripi í húsnæðinu
á sama tíma. Allar biðstíurnar eru
svo samtengdar með göngum sem
ná að uppboðssvæðinu en eftir upp-
boðið fara gripirnir svo í sérstakar
afhendingarstíur og geta gripaflutn-
ingabílar sótt gripina beint í þær en
alls geta 12 flutningabílar athafnað
sig samtímis á afhendingarsvæðinu.
Þó svo uppboð séu nánast allt árið
um kring, nýtist þetta stóra athafna-
svæði þó ekki jafn vel allt árið og
hafa eigendur Lanark markaðarins
því leigt út salarkynni og aðstöðu
fyrir margskonar uppákomur eins og
vélasýningar en allar stíur í hinum
stóra móttöku- og afhendingarsal eru
lausar og hægt að taka niður með ein-
földum hætti. Þá eru einnig haldnar
stórveislur þarna og er fullbúið eld-
hús og kaffiaðstaða á staðnum enda
oft margt um manninn.
Bjóða í með blikki
Uppboðssalirnir eru tveir og er annar
sérhannaður fyrir uppboð á sauðfé
og hinn fyrir uppboð á nautgripum.
Þegar íslenski hópurinn var þarna
stóð yfir uppboð á kynbótasauðfé og
var afar áhugavert að fylgjast með
uppboðunum. Hver hópurinn á fætur
öðrum var rekinn inn í uppboðs-
salinn og um leið birtust upplýsingar
um gripina, aldur, kyn og þunga á
flatskjám í salnum. Uppboðsstjórinn
hóf svo uppboðið á verði sem hann
taldi líklegt til árangurs fyrir við-
komandi hóp og svo hófust lætin.
Lætin voru reyndar eingöngu í upp-
boðsstjóranum sjálfum sem benti á
hvern manninn á fætur öðrum og
þuldi upp tölur og hækkaði jafnt og
þétt. Áhorfendur sáu vart hvað var í
gangi en þegar betur var að gáð mátti
sjá að stundum hækkuðu tilboðin við
það eitt að einhverjir bjóðendur klór-
uðu sér í enninu eða blikkuðu öðru
auganu. Aðspurður sagði William að
skýringin á þessu leynimakki fælist í
því að ef menn bjóði mjög augljós-
lega í, þá fara stundum aðrir að bjóða
í á móti til þess eins að hækka verðið
og hrekkja viðkomandi. Þetta hefði
því þróast þannig að uppboðsstjórinn
veit hvernig hver og einn býður í
og fáir aðrir, en þess má geta að til
þess að geta boðið í þarf viðkomandi
bjóðandi að fá fyrirfram samþykki
Lanark uppboðsmarkaðarins enda
ábyrgist Lanark að seljandi fái greitt
samkvæmt uppboðinu.
Uppboðsmarkaðir tryggja gott
verð
Þegar hann var inntur eftir því hvaða
gang verð væri á lambhrútum á upp-
boðinu þá sagði William það afar
misjafnt en góður lambhrútur færi
oft á þetta í kringum 4-500 pund eða
um 80-100 þúsund krónur. Hæsta
verð fyrir lambhrút hefði þó fengist
í fyrra en þá fékkst næst hæsta verð
í sögu Stóra-Bretlands fyrir hrút
er 152 þúsund pund fengust fyrir
einn lambhrút, en það eru rúmlega
31 milljónir króna. Næsta óskiljan-
leg upphæð fyrir okkur Íslendinga
en kaupendurnir, þrír bændur frá
Ayrshire, keyptu hrútinn í þeim
tilgangi að selja úr honum sæði en
það er afar algengt í Stóra-Bretlandi
að bændur láti taka sæði úr hrútum
sínum og selja á frjálsum markaði í
samkeppni við kynbótastöðvar. Þess
má geta að hvert strá úr honum hefur
verið selt á 100 pund eða um 20 þús-
und krónur.
Með 1.600 ær
Síðasta faglega heimsókn ferðarinn-
ar var til Bush Estate sem er eitt af
tilraunabúum skoska landbúnaðarhá-
skólans. Þar tók Alex Mohr, tilrauna-
stjóri háskólans, á móti hópnum og
sýndi búið en það er engin smásmíði
enda með 1.600 ær, 320 holdakýr,
120 gyltur og tæplega 1.000 hekt-
ara af graslendi, auk 74 hektera með
korni og 25 hektara skóglendis. Búið
er í raun mun stærra en þörf er á fyrir
tilraunastarfsemina en þar sem búið
er sjálfstætt, þ.e. fær ekki fjárfram-
lög frá skólanum, þarf það að vera í
stærri kantinum svo unnt sé að reka
það. Tilraunastarfsemin er afar fjöl-
þætt en margar rannsóknirnar snúast
um umhverfismál. Þannig voru t.d.
nokkrar ær í tilraun á láglendi þar
sem verið er að skoða hvort draga
megi úr ormalyfjagjöf með beitar-
stjórn svo dæmi sé tekið.
Ein fullkomnasta
rannsóknaaðstaða Evrópu
Þó svo að margt áhugavert væri að
sjá á búinu var án efa eftirtektarverð-
ust tilraunaaðstaðan fyrir öndunar-
og gas mælingar frá búfé. Um er að
ræða sérstakt hús sem í eru nokkrar
einstaklings eða hópstíur sem eru
hver um sig inni í þéttu lokuðu rými.
Hægt er að mæla nákvæmlega öll
loftskipti frá hverju rými fyrir sig og
þannig fylgjast t.d. með metangas-
eða hláturgasframleiðslu gripa og
áhrif mismunandi fóðurs á þessar
gastegundir. Þrátt fyrir að þarna væri
einhver fullkomnasta aðstaða sem
til er í Evrópu, var ekki ein einasta
skepna þar innandyra þegar okkur
bar að garði. Alex kvað því miður
það vera oft þannig með stuðn-
ingskerfið í Evrópusambandinu, að
mun auðveldara væri að fá styrki
til framkvæmda en rannsókna og
að það hefðu fengist myndarlegir
styrkir til þess að byggja þessa frá-
bæru aðstöðu en svo fáist minna af
fjármagni til þess að standa undir
rannsóknum í aðstöðunni.
Eftir þennan fína fag lega dag var
svo haldið til Glasgow þar sem síð-
asta síðdeginu var varið og notuðu
víst margir tækifærið og gerðu góð
innkaup í þessari miklu verslunar-
borg. Lauk þar með stuttri en afar
fróðlegri ferð til Skotlands.
Snorri Sigurðsson
sns@seges.dk
Ráðgjafi hjá SEGES P/S í Danmörku
Skotlandsferð Félags vestfirskra sauðfjárbænda – síðari hluti
Mynd / Jóhann Pétur og Halldóra
-
Mynd / Jóhann Pétur og Halldóra
Mynd / SS
Mynd / Jóhann Pétur og Halldóra
Mynd / SS