Bændablaðið - 13.08.2015, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015
„Nyrsta nef Hornbjargs heitir
Horn og draga Hornstrandir
nafn sitt af því. Horn er jafnframt
nyrsti tangi Vestfjarða og miðja
Hornstranda en þar skiptast þær í
Austur- og Vesturstrandir.“ (Land
og saga, Vestfirðir, 2007.)
Það hafði lengi staðið til að skella
sér í ferð norður á Hornstrandir, til
að heimsækja vin okkar Halldór Haf-
dal sem stundum er staðarhaldari í
Hornbjargsvita í Látravík á Strönd-
um. Létum við loks verða af því í
byrjun ágúst árið 2013.
Fyrirvarinn var stuttur og erfitt
var að fá far til baka þar sem ferða-
manna tímabilinu á Hornstrandir var
að ljúka og þegar það loksins tókst
höfðum við misst farið í Hornvík,
þaðan sem við ætluðum að ganga
í Látravík. Nú voru góð ráð dýr.
Haft var samband við hina ýmsu
ferðaþjónustuaðila fyrir vestan en allt
kom fyrir ekki. En að síðustu voru
það Borea Adventures sem bentu
okkur á þann möguleika að fljúga
í Hornvík.
Séð ofan í Fljótavík úr lofti
Haft var samband við Örn Ingólfsson
flugmann og var erindinu vel tekið.
Áttum við stefnumót við hann
um hádegisbil á flugvellinum á
Ísafirði, og því var snemma lagt af
stað úr bænum. Vinafólk okkar úr
Skagafirði, þau Ása Jakobsdóttir og
Pálmi Ragnarson, slógust svo í för
með okkur á Borðeyri þar sem þau
fengu að geyma sinn bíl á meðan.
Komið var við í Bónus á Ísafirði
fyrir „vitaverðina“ og náð í vistir.
Lagt var upp í blíðskaparveðri,
og ótrúlega fagurt og gaman var
að fljúga yfir Hornstrandir. Svo
var lent í fjöruborðinu í Hornvík.
Flugmaðurinn dreif sig strax til baka.
Hornbjarg og Hælavíkurbjarg eru
vestan og austan við Hornvík. Vestan
við Hælavíkurbjarg er Hælavík en
austan við Hornbjarg er Látravík og
Hornbjargsviti. Stórkostlegt var að
virða landslagið fyrir sér úr lofti.
Halldór hafði lagt okkur
lífsreglurnar og mælt með því að við
færum Kýrskarð, um 340 m hátt, yfir
í Látravík. Það mun vera styttri leið
en torfærari, þar sem að við vorum
með talsverðar byrðar.
Óðum við Kýrá. Ferðin sóttist
ágætlega en fegurð Hornvíkur þar
sem hún blasti við á leið upp skarðið
tafði för því sífellt var verið að snúa
sé við og horfa til baka, sitja og njóta.
Efst í skarðinu var rok, rigning
og þoka. Kom sér því vel að leiðin
er stikuð.
Þegar sást til okkar úr vitanum
þustu staðarhaldari og hans fólk á
móti okkur, léttu af okkur byrðunum
og urðu þar fagnaðarfundir. Hefur
þau væntanlega verið farið að lengja
eftir okkur og þótt við taka þetta held-
ur rólega.
Frábært var að koma niður úr
þok unni og sjá vitann og Látravíkina
birtast. Listaverk eru um allt við
vitann og í húsinu eftir fyrrverandi
og núverandi staðarhaldara og vita-
verði.
− Hallfríður M. Pálsdóttir
Séð ofan í Fljótavík úr lofti. Mynd / Málfríður M. Pálsdóttir.
Horn.
Lent var í fjöruborðinu í Hornvík. Flugmaðurinn dreif sig strax til baka.
Hælavíkurbjarg séð úr lofti.
„Hælavíkurbjarg er þverhníptur hamraveggur sem rís í 258 metra hæð.
Bjargið dregur nafn sitt af klettadrangi sem stendur upp úr sjónum
framan við bjargið og heitir Hæll. Annar drangur við hlið hans heitir
Göltur. Í Hælavíkurbjarg austanvert gengur dalhvilftin Hvannadalur.
Neðan við hann ganga fallegir berggangar, Langikambur og Fjöl, með
þrönga vík sem heitir Kirfi á milli. Skammt frá, undir bjarginu er þriðji
berggangurinn, Súlnastapi, sem stendur í sjónum laus frá bjarginu.“
(www.nat.is/travelguide/ahugav_st_hornbjarg.htm)
„Að Látrabjargi undanskildu eru Hornbjarg og Hælavíkurbjarg mestu
fuglabjörg landsins. Á vorin verpa þar fjölmargar tegundir bjarg- og
sjófugla. Einnig eiga aðrar tegundir fugla sér varpstaði í grasbölum og
urðum sem myndast hafa ofan og neðan við björgin. Þegar á heildina
er litið er mestu svartfuglabyggð á landsins að finna í Hælavíkurbjargi
en Hornbjarg er talið aðalbústaður langvíu, en auk þeirra má sjá
stuttnefju, máva og ritu í milljónatali. Aðrar fuglategundir sem er vert
að nefna er hvítmávur, álka, fýll, æðarfugl, svartbakur, hávella, toppönd,
óðinshani, lundi og teista. Hornbjarg er þéttsetnast af fugli á Jörundi
og í þræðingum Dyraskarða sem liggja milli hans og Kálfatinda. (Land
og saga, Vestfirðir, 2007.)