Bændablaðið - 13.08.2015, Qupperneq 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015
Vaxandi útbreiðsla lúpínunnar
hefur verið til umræðu í fjölmiðlum
í sumar sem og síðustu sumur, sam-
hliða tillögum um hvað hægt sé
að gera til að stemma stigu við
henni, t.d. með eitri, slætti eða
áburði. Alaskalúpínan var fyrst
flutt til Íslands 1885 en náði þá ekki
fótfestu. Hún var flutt inn að nýju
haustið 1945 af Hákoni Bjarnasyni
þáverandi skógræktarstjóra og
hefur frá þeim tíma dreift sér víða
um land. Til eru yfir 200 tegundir
lúpínu. Lúpínan er belgjurt sem
vinnur köfnunarefni úr lofti með
hjálp niturbindandi baktería sem
sitja í rótarkerfi hennar. Eins
og mjög margar niturbindandi
belgjurtartegundir (t.d. grænar
baunir) eru fræ lúpínunnar stór
og próteinrík og margar tegundir
hennar hafa verið til nytja, bæði
til manneldis og húsdýrafóðr unar
víða um heim í þúsundir ára.
Nytja tegundirnar eru almennt
nefndar „sætar lúpínur“ – en til
eru einnig fjölmargar tegundir sem
eru eitraðar og er alaskalúpínan
Lupinus nuutkatensis þeirrar
gerðar. Hún er mjög fljót til sprettu
á vorin og nær með því forskoti á
aðrar tegundir. Hún nær með því
að skyggja út aðrar tegundir sem
láta undan og hverfa þar sem hún
fer yfir.
Dreifing alaskalúpínunnar
á Íslandi
Fyrr í sumar kom fram í fréttum
að svo virtist sem lúpínan væri að
dreifa sér sífellt hraðar og að það
væru komnir smáblettir af lúpínu
víða meðfram vegum og upp um
hálendi. Í þessu samhengi er vert
að minnast þess að sumarið 1989
var smituðu (virku) lúpínufræi
dreift ómarkvisst um landið. Voru
nokkur fræ sett í litla plastpoka með
slaufu og þeim komið á fjölmargar
bensínstöðvar víða um land. Var
fólk hvatt til að taka þessa poka með
sér og sá fræjunum þar sem þeim
sýndist henta. Þetta sama sumar var
lúpínufræi einnig dreift úr flugvél
– m.a. yfir Reykjanesskagann.
Því er það ekki ólíklegt að lúpínu-
plönturnar sem nú eru að verða
áber andi við vegi landsins eigi ræt ur
sínar að rekja til þessarar fræ dreif-
ingar árið 1989 – þegar fólk tók með
sér poka í bílinn og dreifði þeim á
næsta áfangastað við veginn.
Hegðun ágengra tegunda
Þegar nýjar tegundir eru að ná fót-
festu fylgja þær tilteknu mynstri. Í
byrjun eru plönturnar fáar og dreifa
sér hægt. Eftir því sem plöntun-
um fjölgar eru fleiri að sjá um
dreifinguna og eftir nokk urn tíma
eru þær farnar að fjölga sér með
veldisvexti – þ.e., farnar að marg-
falda útbreiðslu sína á skömm um
tíma. Dreifing nýrra plantna er oft
teiknuð upp eins og sýnt er á með-
fylgjandi línuriti (sjá mynd 1). Mörg
ár geta liðið frá því að tegund kemur
inn á svæði þar til að hún fer að
fjölga sér til muna, en þá fjölgar
henni líka líka mjög hratt. Víðast
þar sem við erum að verða vör við
lúpínuna núna er hún enn rétt í fasa
A – búin að ná fótfestu og byrjuð að
fjölga sér en ekki enn komin í fasa
B – þar sem hún er farin að dreifa sér
með veldishraða. Til að berjast við
aukinni dreifingu lúpínunnar er því
mikilvægt að uppræta nýjar breiður
meðan þær eru enn litlar, því vanda-
málið verður næstum óvinnandi ef
lúpínan nær að komast á stig B. Það
er því mikilvægt að kippa upp með
rótum öllum nýjum plöntum þar
sem þær eru að koma sér fyrir.
Tilraunir til að sporna við
útbreiðslu alaskalúpínunnar
Mikið hefur verið talað og skrifað um
hvernig best sé að hefta útbreiðslu og
– helst – útrýma lúpínunni. Plöntu-
eitur hefur verið reynt en það tekur
ekki bara lúpínuna heldur drepur
mikið til annan gróður einnig. Það
skilur því eftir sig dautt land og
margar tegundir plöntueiturs sitja líka
lengi í jarðveginum – mun lengur
en áður var talið og valda mengun
og eitrun á grunnvatni. Eitrun er því
alls ekki æskileg leið. Einnig hefur
verið reynt að slá lúpínuna og virðist
það oft heldur halda aftur af henni
en hængurinn þar á að við slátt nást
ræturnar ekki og fræforðinn er alltaf
orðinn það mikill að ný planta kemur
í stað þeirrar sem náð er að uppræta.
Því þarf að slá árlega í langan tíma og
það er bæði tímafrekt, erfitt og dýrt
til lengri tíma.
Beit til að hefta útbreiðslu
alaskalúpínunnar
Það er athyglisvert að lúpína á mjög
erfitt með að dreifa sér þar sem sauð-
fjárbeit er. Þetta sést mjög greinilega
þar sem lúpínu hefur verið sáð innan
girðinga, t.d. landgræðslu- og skóg-
ræktargirðinga. Innan girðinganna,
þar sem engin beit er, eru oft þéttar
lúpínubreiður en utan er ekki lúpínu
að sjá (sjá mynd 2). Þannig virðist
sauðfjárbeit geta haldið lúpínunni í
skefjum, þó svo að ekki sé um þunga
beit að ræða. Þótt að lúpínan sé tölu-
vert eitruð þá er hún líka næringarrík
og sauðfé sækir í að bíta hana, svo
framalega sem þær hafa annað að
bíta með til að þynna út eituráhrifin.
Séu þær hins vegar neyddar til að
bíta hana eingöngu þá koma eiturá-
hrifin fram og féð veikist. Létt beit
sauðfjár þar sem lúpína er að dreifa
sér í ný gróðurlendi er því góð leið
til að halda lúpínunni niðri – og til
lengd ar jafnvel að eyða henni. Í þétt-
um breið um lúpínu væri reynandi að
slá lúpínuna í byrjun en fylgja síðan
eftir með sauðfjárbeit. Samkvæmt
fyrstu rannsóknaniðurstöðum frá
Náttúrustofu Vesturlands í Stykkis-
hólmi þá fjölgar tegundum þar sem
lúpína hefur verið slegin (http://
www.ruv.is/frett/fleiri-tegundir-thar-
-sem-lupina-er-slegin). Þar skapast
því grundvöllur fyrir að beita sauð-
fé með til að leggjast enn frekar á
lúpín una og fylgja eftir slættinum
til að veikja hana. Ræturnar verða
þó alltaf eftir. Það er þó nokkur von
um að hestar geti komið þar við sögu.
Hestar Guðrúnar Guðmundsdóttur
og Jóhannesar Guðjónssonar í
Efra-Hreppi í Skorradal hafa þróað
með sér aðferð við að sparka upp
lúpínurætur og éta þær. Þar sem
fæðunám er mikið til lært atferli
þá ætti að vera hægt að kenna öðr-
um hestum atferlið og dreifa þekk-
ingunni til annarra hestahópa sem þá
gætu séð um að „róta upp“ lúpínu-
breiðum. Víða erlendis hafa verið
myndaðir hópar beitardýra sem sjá
um „þrif“ á tilteknum svæð um (sjá
„prescribed grazing“ – t.d. https://
www.co.weld.co.us/assets/268B3d-
85BCbCCBDDB98D.pdf). Leigja
bændur þessa hópa út og sjá um að
beita þau svæði sem þarf á hverjum
tíma. Full ástæða er til að reyna þessa
aðferð á Íslandi – beitardýr gegn
lúpínunni – og hugs an lega einnig
skógarkerflinum sem nú breiðir hratt
úr sér.
Anna Guðrún Þórhallsdóttir
prófessor og námsbrautarstjóri
náttúru- og umhverfisfræða,
Landbúnaðarháskóla Íslands
Fuglafælurnar frá Scarecrow eru
mannúðleg og vistvæn lausn sem
halda fuglum varanlega frá.
Nánari upplýsingar
www.fuglavarnir.is
sala@fuglavarnir.is
Sími 896 1013
Þarftu að
halda fuglum frá?
Haltu
starra, gæ
sum
og álftum
frá
Lesendabás
Anna Guðrún Þórhallsdóttir
Beitarpistill 2:
Um lúpínu og beit
Tími
D
re
if
in
g
o
g
þ
ek
ja
Byrjunarfasi - A
Fjölgunarfasi – B
Full þekja
Mynd / AGÞ