Bændablaðið - 13.08.2015, Síða 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 2015
Langvirk - 6 klukkutíma sólarvörn.
Lyktarlaus og vatnsheld.
JÁ, VIÐ ÞURFUM GÓÐA SÓLARVÖRN!
Pantanir: celsus@celsus.is - 551 5995
Fæst í apótekum, Nettó, Hagkaup og víðar.
Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð.
Sara Hrönn Viðarsdóttir
Búfræðingur og „kúahvíslari“
Hef notað Proderm s.l. þrjú sumur á kýrnar og það
virkar ótrúlega vel. Hef ég ekki verið í vandræðum
með sólbrunna spena á kúm síðan ég prófaði fyrst og
engin kýr sparkað eða verið með læti. Spenarnir
haldast mjúkir og hreinir. Ber á eftir morgunmjaltir og
það dugar. 1 brúsi dugar á 30 kýr í 4-5 daga.
www.lbhi.is
Enn eru laus pláss
á háskólabrautum
Landbúnaðarháskóla Íslands
Áhugasömum er bent á að hafa
samband við kennsluskrifstofu LbhÍ á netfanginu
kennsluskrifstofa@lbhi.is eða í síma 433-5000.
- Umhverfisskipulag
- Skógfræði og landgræðsla
- Náttúru- og umhverfisfræði
- Hestafræði
- Búvísindi
Meistaranám í skipulagsfræði
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna:
Matvælavísitala FAO sú
lægsta í tæp sex ár
Lífland flytur verslun sína að Óseyri 1 á Akureyri:
Stærri verslun og aukið vöruval
Mikil lækkun á verði mjólkur-
afurða og jurtaolíu keyrir vísi-
töluna nið ur í lægsta gildi frá því
í september 2009.
Verðlækkun mjólkurafurða og
jurta olíu er það mikil að vísitalan
hefur snarlækkað þrátt fyrir að verð
á sykri og korni hafi hækkað og verð
á kjöti staðið í stað.
Matvælavísitala FAO mælir verð
á fimm fæðuflokkum á alþjóðamark-
aði, korni, kjöti, mjólkurafurðum,
jurta olíu og sykri. Í júlí síðastliðn-
um hafði vístalan fallið um 7,2% frá
júní mánuði. Ástæða lækkunarinnar
er minnkandi innflutningur á mat-
vælum til Kína, Miðausturlanda,
og Norður-Afríku samhliða auk-
inni mjólkurframleiðslu í löndum
Evrópusambandsins og þar af leið-
andi aukningu í framboði á mjólk-
urafurðum.
Í júlí mældist jurtaolíuvístala
5,5% lægri en í júní og sú lægsta
frá því í júlí 2009. Lækkunin er
rakin til lækkunar á verði pálmaolíu
á alþjóðamarkaði vegna aukinnar
framleiðslu á henni í Suðaustur-Asíu
samhliða lækkun á útflutningsverði
sojaolíu frá Suður Ameríku.
Kornvísitalan hækkað um 2%
frá júní til júlí en er samt sem áður
10,1% lægri en í júlí 2014. Verð á
hveiti og maís hefur hækkað tvo
mánuði í röð vegna óhagstæðs veð-
urfars í Evrópu og Norður-Ameríku.
Verð á hrísgrjónum hefur aftur á móti
lækkað.
Kjötvísitala FOA stóð nánast í
stað í júní og júlí. Verð á nautgripa-
kjöti á alþjóðamarkaði hækkaði en
lækkun á verði svína- og lamba-
kjöts olli því að vísitalan stóð nánast
óbreytt. Verð á alifuglakjöti hefur
staðið í stað.
Vístala sykurs hækkaði um 2,5%
frá júní til júlí. Ástæða hækkunarinn-
ar er spár um samdrátt í uppskeru
á Brasilíu vegna slæmra ræktunar-
skilyrða.
Lífland hef ur flutt verslun sína
norð an frá Lónsbakka í húsnæði
að Óseyri 1 á Akureyri, þar sem
Múr búðin var áður. Lífland hef-
ur stundað verslunarrekstur á
Akur eyri frá árinu 2008 og hefur
Ellert Jón Gunnsteinsson stjórnað
henni frá upphafi. Húsnæðið sem
Lífland hefur yfir að ráða er tæpir
800 fermetrar, sem er mun meira
pláss en var á Lónsbakka og gefur
aukna möguleika á að auka við
vöruúrval.
Jákvæð viðbrögð
„Við höf um aukið vöruval okkar
umtalsvert og á það við um alla þá
vöruflokka sem við bjóðum upp á,“
segir Ellert Jón, en nefna má að vöru-
val fyrir bændur hefur aukist, sem og
fyrir hestamenn og eigendur gælu-
dýra. „Það var orðið nokkuð þröngt
um okkur og því nauðsynlegt að kom-
ast í rúmbetra húsnæði. Það hefur nú
gerst og við erum himinlifandi. Við
höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð,
það hefur gengið vel það sem af er hér
á nýja staðum og viðskiptavinir okkar
eru ánægðir.“
Ellert Jón segir að auk þess sem
verslunin sjálf sé stærri, sé aðgengi
að henni einkar gott, næg bílastæði og
einnig eigi þeir sem koma með vörur
eða eru að sækja þær hægar um vik
að athafna sig á svæðinu.
Allt fyrir bændur
Bændur hafa um tíðina verið stór hluti
viðskiptavina Líflands og segir Ellert
Jón gaman að geta nú gert enn betur
við þá. Undanfarið hafa bændur verið
önnum kafnir við girðingarvinnu og
býður Lífland gott úrval af girðingar-
efni af öllu tagi. Hið sama er upp á
teningnum þegar kemur að heyskap,
en Lífland býður upp á gott úrval af
öllu því sem lýtur að pökkun og verk-
un heyfengs. /MÞÞ
Vill banna erfðabreytta ræktun í Skotland:
Bændur segja bannið gera
þá ósamkeppnishæfa
Þingmaður í Skotlandi legg ur
til að bann verði sett alla rækt-
un á erfðabreyttum matvælum í
landinu til vernda hreinleika inn-
lendra afurða og ímynd landsins.
Bændur segja bannið takmarka
möguleika þeirra til ræktunar.
Skoski þingmaðurinn Richard
Lochhead segist ætla að leggja fram
frumvarp á þingi landsins sem legg-
ur bann við ræktun á erfðabreyttum
matvælum í Skotlandi, verði það
samþykkt. Meðal raka Lochhead er
að Skotar hafi ekki ráð á því taka
áhættuna sem fylgir því að rækta
erfðabreytt matvæli þar sem enginn
viti fyrir víst hvað slíkt getur haft í
för með sér fyrir landbúnað í fram-
tíðinni. Hann segir einnig að með
því að banna ræktun á erfðabreyttum
matvælum muni Skotland tryggja
ímynd sína sem hreint og fallegt land.
Hugmyndin hefur mætt tals-
verðri gagnrýni meðal bænda og
sérfræðinga sem tengjast ræktun
og landbúnaði. Bændur benda á að
verði bannið að veruleika muni það
takmarka möguleika þeirra til rækt-
unar verulega og gera þá ósamkeppn-
ishæfa gagnvart löndum þar sem
ræktun á erfðabreyttum matvælum
er leyfð. /VH
Ellert Jón Gunnsteinsson.