Bændablaðið - 13.08.2015, Page 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. ágúst 201542
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Renault Captur er
bíll sem tekið er eftir
Á sumrin eru ekki mörg bíla-
umboð sem eru með opið á laug-
ardögum. Þar sem ég prófa bíla,
vélar og tæki í aukavinnu um
helg ar þá er ekki úr mörgum
um boðum að velja þegar kemur
að helgarprófunum. Þessir pistlar
mínir eru svolítið farnir að litast
af Heklu og BL! Að þessu sinni
varð fyrir valinu Renault Captur
frá BL, bíll sem ég ætlaði að vera
búinn að prófa fyrir löngu síðan.
Litasamsetning flott
og litaúrval mikið
Frá því að ég sá þennan bíl fyrst
hefur mér alltaf fundist hann flottur
og þá sérstaklega litasamsetningin.
Hægt er að fá Renault Captur í
a.m.k. níu mismunandi litasamsetn-
ingum sem eru að mínu mati allar
flottar (mundi örugglega vera mikið
hugarstríð fyrir mig að velja). Þó svo
að bíllinn sé bara með drif á einum
öxli er hann svolítið jepplingslegur
í útliti þar sem hátt er undir hann.
Þrátt fyrir að hann virki hár eru ekki
nema 17 cm undir lægsta punkt, en
aftari hluti bílsins er samt töluvert
hærri. Það getur verið varhugavert
á niðurgröfnum vegslóðum.
Prufuaksturinn
Bíllinn sem ég prófaði er með 1500
cc díselvél sem á að skila 90 hestöfl-
um og var sjálfskiptur. Ég ók bílnum
tæpa 170 km og byrjaði á rúmum
100 km í langkeyrslu. Sæti eru mjög
góð og fara vel með bæði ökumann
og farþega í aftursætum. Sem dæmi
settist fullorðinn einstak lingur í
aftursætið hægra megin og var þá
framsætið í öftustu stöðu. Þessi
vinur minn er um 185 cm hár og
var nóg pláss fyrir framan hnén á
honum, en það hefði örugglega
verið þröngt til hliðanna ef þrír
jafningjar hans hefðu setið með.
Seinni hluti prufuakstursins
var innanbæjarakstur og á hraða-
hindrun um fannst mér bíllinn
höggva leiðinlega á fjöðrunina,
en aftur á móti fannst mér mjög
gott að keyra hann á malarvegi þar
sem hann var stöðugur og fjöðr-
unin virkaði mjög vel. Krafturinn
var allt í lagi (sjálfur á ég bíl með
nánast sömu vél, en beinskiptan).
Sjálfskiptingin er góð og finnur
maður nánast ekkert fyrir því þegar
bíllinn skiptir sér upp eða niður.
Kostir mun fleiri en ókostir
Kostir Renault Captur eru ótvírætt
útlit, verð og lítil eldsneytiseyðsla.
Uppgefin eyðsla í blönduðum akstri
er 3,9 lítrar af dísel á hundraðið (þar
sem ég byrjaði á langkeyrslu sá ég
eftir um 70 km akstur að mín eyðsla
var 4,1 lítrar á hundraðið). Eftir 160
km akstur skoðaði ég eyðsluna á
ný og reyndist hún vera 4,7 lítrar
á hundraðið. Það finnst mér mjög
gott miðað við sjálfskiptan bíl (best
er ég að ná mínum beinskipta bíl
í 4,6 lítra á hundraðið með nánast
sömu vél). Mjög mikið af aukabún-
aði er í bílnum svo sem leiðsögu-
kerfi á 7 tommu skjá, Bluetooth,
USB og AUX tengi, bakkskynjari,
sjálfvirk brekkuhemlun og margt
fleira. Ókostur er að ekkert vara-
dekk er í bílnum sem ég er alltaf
ósáttur við. Bíllinn var á 17 tommu
vetrardekkjum (ég vil vera á sumar-
dekkjum á sumrin). Að mínu mati
hefði mátt minnka felgustærðina
niður í 16 tommur og fá þannig
betri fjöðrun út úr dekkjunum,
sérstaklega á hraða hindrunum.
Renault Captur má ekki draga
nema 1200 kg kerru eða vagn með
bremsum.
Gott verð og lánakjör
Ódýrasti Captur bíllinn er beinskipt-
ur og kostar frá 3.490.000 kr. Bíllinn
sem ég prófaði er sjálfskiptur með
sex þrepa sjálfskiptingu og kostar
3.790.000. Hægt er að fá 90% lán
hjá BL við kaup á nýjum bílum og
miðað við svoleiðis lán væri mánað-
argreiðsla 55.858 kr. á mánuði ef
keyptur væri sjálfskipti bíllinn.
Hæð 2.031 mm
Breidd 1.778 mm
Lengd 4.122 mm
Þyngd 1.245 kg
Helstu mál og upplýsingar
Með aukinni umferð reið hjóla
hefur reiðhjólaslysum á lands-
vísu fjölgað. Flestir sem hjóla sér
til heilsubótar og ánægju nota
ör ygg is hjálm. Reiðhjólahjálma
skal endurnýja á fimm ára fresti
Ástæða þess að endurnýja skal
reiðhjólahjálminn reglulega er að
með tímanum harðnar efnið í þeim
og þornar. Gamlir hjálmar geta því
verið brothættir og gefið falska
öryggiskennd. Hjálmurinn verður
einnig að passa vel á höfuð þess sem
hann notar.
Flestar konur eiga til dæmis að
nota hjálma sem merktir eru S sem
táknar small. Stærð S í sentímetrum
frá enni, fyrir ofan eyru, og aftur á
hnakka er 55 til 56. Hjálmar merktir
M sem er medium eru aftur á móti
57 til 58 sentímetrar að stærð sem er
algeng stærð fyrir meðalkarlmann.
Hjálmar eiga að sitja þétt á höfð-
inu og sé höfuðið hrist á hjálmur-
inn að fylgja hreyfingum þess en
ekki dingla laus því þá er hann of
stór. Þessa mælingu má nota fyrir
allar gerðir hjálma hvort sem það
eru reið-, vélsleða-, fjórhjóla- eða
mótor hjólahjálmar.
Slysum fjölgar samfara auknum
hjólreiðum
Varla hefur farið framhjá neinum að
vinsældir reiðhjóla, reiðhjólafélaga
og reiðhjólakeppna eru miklar. Varla
líður sú helgi að ekki sé ein hvers
staðar verið að keppa á reið hjólum
á vegum úti. Miðað við hversu veg-
ir eru þröngir er með ólíkindum
hversu fá slys eru á reiðhjólafólki
og árekstrar bíla fátíðir sem rekja
má til reiðhjólaumferðar á vegum.
Þegar ég var að alast upp var
mér ráðlagt að hjóla á móti umferð
í vegkantinum. Í dag er fátítt að
mað ur rekist á reiðhjólafólk á öfug-
um vegar helmingi, þó gerist það. Í
sum ar mætti ég fjölskyldu norður á
Ströndum sem kom hjólandi á móti
mér í vegkantinum. Fyrir mína parta
fannst mér þetta betra, allavega þarna
á malarveginum sem ég var á.
Algengt er að sjá hjólafélaga hjóla
hlið við hlið og þegar þeir heyra í bíl
er farið í einfalda röð. Hins vegar
brá þeim reiðhjólamönnunum sem
ég kom aftan að í fyrrasumar þegar
ég var að prófa rafmagnsbíl og kom
hljóðlaust aftan að þeim.
Með auknum fjölda hljóðlausra
rafmagnsbíla ættu menn að huga að
því hvort ekki væri öruggara að hjóla
á öfugum vegarhelmingi á fáförnum
vegum.
Hjólahópar vina oft hættulegastir
Fyrir skemmstu fylgdist ég með
hundrað kílómetra alþjóðlegum
hjóla túr kvenna sem kona mín tók
þátt í. Það var að sjá og heyra að
konurnar sem tóku þátt skemmtu
sér vel. Því miður gáðu þær þó ekki
alltaf að sér og voru of margar hlið
við hlið á þjóðveginum. Nokkrum
sinnum mynduðust hættulegar
aðstæður þar sem illa hefði getað
farið. Konur fá þrátt fyrir það plús
hjá mér fyrir litríkan klæðnað þannig
að þær sáust vel og það hægði tíman-
lega á umferðinni. Það er nefnilega
marg sannað að áberandi klæðnaður
reiðhjólafólks hægir á umferðinni
og gefur öðrum meira svigrúm til að
bregðast við í tíma.
Höldum endilega áfram að hjóla;
hreyfingin er holl og góð.
Hjálmurinn verður að passa og má ekki vera gamall
liklegur@internet.is
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI Hjörtur L. Jónsson
Gott aðgengi að vél og auðvelt að skipta um perur – jafnvel þótt bíllinn sé
franskur!
Captur er lægri að framan en virðist
við fyrstu sýn.
varadekks.
Þótt framsætið sé í öftustu stöðu er
Álmennt eru þjóðvegir ekki hannaðir nema fyrir bílaumferð og þegar reiðhjól
bætast við getur verið þröngt fyrir alla.
Hjörtur L. Jónsson