Morgunblaðið - 08.08.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
Mallorca
Síðsumarsólinbíðurþín
20. ágúst í 2 vikur
Verð frá
*á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð
með 2 svefnherbergjum og stofu í IRIS
raðhúsagarðinum í Sa Coma.
Flugsæti fram og til baka frá49.900 kr.
119.900 kr.*
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Í hverjum mánuði stendur Skraflfélag Íslands
fyrir mánaðarlegu skraflmóti á Café Haiti þar
sem skrafláhugamenn hittast og etja kappi.
Skraflmót mánaðarins var þó með óhefðbundnu
sniði í gær því Skraflfélag Noregs tók þátt og
hélt mót samhliða Skraflfélagi Íslands. Sigur-
vegarar hvors móts fyrir sig öttu síðan kappi á
„blandinavísku“, en þá er leyfilegt að mynda orð
úr öllum Norðurlandamálunum, nema finnsku.
Skraflfélög Íslands og Noregs öttu kappi
Morgunblaðið/Eva Björk Ægisdóttir
Skraflmót ágústmánaðar á Café Haiti var með óhefðbundnu sniði í gær
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Aldrei hafa eins margir farið um
Hvalfjarðargöngin á einum mánuði
og í júlí sem leið. Rúmlega 268 þús-
und farartæki fóru um göngin, en
það er rúmlega 12 prósent aukning
frá fyrra ári þegar fjöldi farartækja í
júlímánuði var 239 þúsund. Að með-
altali fóru 8.653 farartæki um göngin
í mánuðinum sem leið.
Ríkið „fær lyklana“ árið 2019
Gylfi Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Spalar, sem reka göngin, segir
að þrátt fyrir aukninguna hafi ekki
myndast neinar umferðarteppur í
mánuðinum en hann telur sólríkt
veður á suðvesturhorninu í ár, sam-
anborið við rigningatíð í fyrra, sé
helsta ástæða aukningarinnar. Gísli
Gíslason, stjórnarformaður Spalar,
bendir á að frá árinu 2013 hafi far-
artækjum fjölgað sem um göngin
fara, en þeim fækkaði nokkuð á tíma-
bilinu 2008 til 2012.
Spölur lýkur sínu verkefni fyrri
part árs 2019 og verða íslenska rík-
inu þá „afhentir lyklarnir“ að göng-
unum en Gísli segir að huga þurfi að
framtíðinni því ef þróunin heldur
áfram með sama hætti og undanfarin
ár muni þau springa.
Verkefni Spalar snerist um fram-
kvæmd ganganna og ljúka upp-
greiðslu lána vegna framkvæmdar-
innar. „Lánunum lýkur haustið 2018
og þá er frágangur eftir. Svo verða
göngin afhent ríkinu til eignar og
rekstrar,“ segir Gísli.
Hann segir að samkvæmt evr-
ópsku regluverki sem Vegagerðin
vinni eftir megi meðalfjöldi farar-
tækja ekki fara yfir 8 þúsund á sólar-
hring. Fari meðalfjöldi á sólarhring
yfir árið yfir þann fjölda færast
göngin upp um öryggisflokk sem
kalli á önnur göng við hlið þeirra sem
fyrir eru.
Einkaframtak byggði göngin
Kostnaður við gerð annarra ganga
hleypur á bilinu átta til tíu milljarðar
króna að sögn Gísla, en hann vísar
þar til áætlunar frá árinu 2008. Gísli
segir stjórnvöld skorta stefnu um
gjaldapólitík og svarar því til að-
spurður að án þeirrar aðferðafræði
sem var beitt á sínum tíma sé líklegt
að Hvalfjarðargöngin væru ekki til
staðar enn þann dag í dag.
Stærstu hluthafar í Speli eru
Faxaflóahafnir, Elkem, íslenska rík-
ið og Hvalfjarðarsveit en af öðrum
hluthöfum má nefna Akraneskaup-
stað, Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi og Reykjavíkurborg.
Met í Hvalfjarðargöngunum
Fjöldamet slegið í göngum í júlí 268 þúsund farartæki Rúmlega 12 pró-
senta aukning frá sama mánuði í fyrra Ríkið tekur við rekstrinum árið 2019
Morgunblaðið/Golli
Göng Kostnaður við gerð annarra
ganga hleypur á 8 til 10 milljörðum.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Berjauppskera hefur verið bág víða
um land það sem af er sumri. Mögu-
lega verður kuldanum í vor og sum-
ar kennt um, en óvíst er hvort upp-
skeran nær sér á strik fyrir
sumarlok.
Að sögn Loga Helgasonar, eig-
anda verslunarinnar Vínbersins á
Laugavegi, hafa engin ber borist
enn sem komið er. Úr íslensku flór-
unni hefur búðin boðið upp á kræki-
ber, bláber, aðalbláber og rifsber af
og til.
„Ég á ekki von á því að þetta taki
við sér fyrr en um 20. ágúst,
kannski kemur ekki neitt, maður
veit aldrei. Þetta var þó komið í
fullan gang um þetta leyti í fyrra. Í
ár er þetta um þremur vikum á eft-
ir,“ segir hann.
Kaldast hefur verið á Norður-
landi. Logi segist helst hafa sótt
berin norður, minna sé um gott
berjalyng annars staðar.
„Menn gerðu sér vonir um að það
yrði meira af berjum hér suð-
vestanlands, en það eru ekki eins
mikil berjalönd hér í kring. Útlitið
er ekki gott á Norðausturlandi, sem
er gott berjasvæði, það hefur verið
kalt þar. Ég hef ekki heyrt í þeim á
Vestfjörðum, ég hef oft fengið ber
þaðan,“ segir Logi.
Fagnar 40 ára afmæli í vor
Þann 13. apríl nk. á Vínberið
fjörutíu ára afmæli. Þar hefur
lengst af verið boðið upp á ber en
áður var það matvöruverslun. Í dag
er Vínberið sælgætisbúð, en hefur
þó haldið í berjahefðina.
Logi segir Íslendinga vera
stærsta kúnnahóp Vínbersins, er-
lendir ferðamenn líti þó einnig inn
á göngu sinni um Laugaveginn.
„Þeir hafa áhuga á að prófa ís-
lensku berin og líkar vel,“segir
hann.
Bíður eftir berjunum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bláber Vínberið hefur boðið upp á
úrval íslenskra berja í um 40 ár.
Kuldinn hefur
hægt verulega á
Ákveðið hefur
verið að fresta
hönnunarsam-
keppni um fyrir-
hugaða nýbygg-
ingu Lands-
bankans í
Austurhöfn við
Hörpu sem hefj-
ast átti síðar í
þessum mánuði.
Það er meðal ann-
ars gert til fara yfir þau sjónarmið
sem fram hafa komið á síðustu vikum.
Nánar verður gerð grein fyrir fram-
haldinu opinberlega þegar frekari
ákvarðanir liggja fyrir. Þetta kemur
fram í tilkynningu á vef bankans.
Hönnunarsamkeppnin átti að hefj-
ast 17. ágúst nk. „Það hefur bara ver-
ið ákveðið að fresta samkeppninni og
fara yfir það sem hefur komið fram í
umræðunni. Það hefur ekkert annað
verið ákveðið á þessu stigi,“ sagði
Kristján Kristjánsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsbankans, í samtali við
mbl.is. „Það hafa margir tekið til máls
og sett fram sín sjónarmið og það er
bara sjálfsagt mál að fara yfir þau,“
sagði hann ennfremur og vísar þá til
gagnrýni fjölmargra þjóðþekktra ein-
staklinga á áform Landsbankans að
byggja höfuðstöðvar sínar í Austur-
höfn.
Segir ekki útilokað að staðsetn-
ingin verði endurskoðuð
Aðspurður hvort væntanleg stað-
setning verði mögulega endurskoðuð
segir Kristján að það sé aldrei neitt
alveg útilokað. „En það liggur ekkert
fyrir um það og þetta er bara það sem
hefur verið ákveðið,“ segir Kristján.
„Í ljósi umræðunnar töldum við rétt
að staldra við og bíða með samkeppn-
ina.“
Fresta
hönnunar-
samkeppni
Flutningur Höfuð-
stöðvar bankans.
Landsbankinn
skoðar gagnrýni
Rigningu er spáð síðdegis í dag í
Reykjavík þegar gleðigangan fer
fram. Hlýjast verður á Norður-
landi, 10 til 17 stig yfir daginn, en
vinda- og vætusamt á Suðurlandi.
Vindur getur náð 17 metrum á
sekúndu í Vestmannaeyjum. Á
morgun verður hlýjast sunnan-
lands og hiti allt frá 8 og upp í 18
stig. Norðanlands verður víða
súld og rigning og vindhraði 5-10
m/s.
Gæti rignt á gleði-
gönguna í Reykjavík