Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015 ✝ Magðalena Sig-ríður Halls- dóttir fæddist á Siglufirði 28. júní 1928. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar 31. júlí 2015. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Jónsdóttir hús- móðir, f. 15.12. 1897 á Sléttu í Fljótum, d. 10.8. 1983, og Hallur Garibalda- son verkamaður, f. 24.6. 1893 á Mannskaðahóli í Skagafirði, d. 15.4. 1988. Systkini hennar eru: 1) Garibaldi, f. 1918, d. 1920, 2) Pétur, f. 1920, d. 1991, 3) Mar- grét Petrína, f. 1922, d. 2004, 4) Garibaldi, f. 1926, d. 1927, 5) Helgi, f. 1931, d. 2007, 6) Jón, f. 1932, 7) Guðjón Hallur, f. 1939. Auk þess bjuggu á heimilinu Óskar, f. 1908, d. 1984, bróðir Halls, Jóhannes, f. 1908, d. 1993, Jósef faðir hans og dóttir Magda- lena Björk, f. 1934. Magðalena giftist 6.9. 1952 Guðlaugi Helga Karlssyni, loft- skeytamanni og símafulltrúa frá Siglufirði , f. 25.12. 1928, d. 11.10. 2014. Foreldrar hans voru hjónin Herdís Hjartardóttir hús- móðir, f. 1894 í Langhúsum í Fljótum, d. 1987, og Karl Stur- laugsson húsasmíðam., f. 1886 í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd, d. hjúkrunarfræðingur, f. 17.6. 1969, maki Nils Gústavsson, framkvæmdastjóri, f. 5.2. 1966, börn þeirra: a) Margrét, f. 1998, b) Andrea, f. 2001 og c) Gústav, f. 2003. Magðalena var fædd og uppal- in á Siglufirði og bjó þar allt sitt líf. Hún var gagnfræðingur frá Gagnfræðaskóla Siglufjarðar 1944 og stundaði nám við Hús- mæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði 1946-47. Magðalena var „ein af stelpunum á Stöðinni“ og hóf störf hjá Símanum árið 1945. Hún starfaði sem talsímavörður, yfirtalsímavörður og síðar fulltrúi. Hún gegndi ýmsum trúnaðarstörfum sem fulltrúi í BSRB og fyrir félag íslenskra símamanna. Hún lét af störfum árið 1996 eftir 51 ár í starfi. Magðalena var virk í félags- og sjálfboðaliðastörfum og stóðu málefni aldraðra hjarta hennar næst. Hún gekk í Kvenfélag Siglufjarðar 16 ára gömul og í tugi ára sá hún um fjáröflun fyrir Kvenfélagið Von með skrifum minningarkorta. Magðalena var formaður Kvenfélags Sjúkrahúss Siglufjarðar í 28 ár og var í byggingarnefnd fyrir byggingu Dvalarheimilis aldraðra á Siglu- firði. Hún var alla tíð virk í hinu kirkjulega starfi, söng með Kirkjukór Siglufjarðar í yfir 70 ár og var í Systrafélagi kirkj- unnar. Magðalena var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 2010. Útför Magðalenu fer fram frá Siglufjarðarkirkju sunnudaginn 9. ágúst 2015 og hefst athöfnin kl. 14. 1948. Börn Magða- lenu og Guðlaugs eru: 1) Guðný Sig- ríður, ljósmóðir og hjúkrunarfræð- ingur, f. 23.11. 1953, maki Ómar Ein- arsson, sviðsstjóri hjá ÍTR, f. 14.2. 1954, börn þeirra eru: a) Einar, f. 1981, sambýliskona Unnur Gísladóttir, f. 1983, dóttir Karen Emmý, f. 2010, b) Soffía Arna, f. 1985, maki Ari Þorleifsson, f. 1982, sonur Ómar, f. 2013, 2) Guðrún Herdís, skrifstofum., f. 24.4. 1957, maki Kristján Sigfús Sig- mundsson stjórnarformaður, f. 9.6. 1957, börn þeirra eru: a) Sig- mundur, f. 1983, maki Svanhild- ur Birgisdóttir, f. 1982, börn Þóra Marín, f. 2011, og Kristján Sigfús, f. 2013, b) Magðalena Sig- ríður, f. 1988, sambýlismaður Arnþór Gíslason, f. 1988, sonur Gunnar Helgi, f. 2014, c) Guð- laugur Helgi, f. 1994, sambýlis- kona Sóley Ósk Benediktsdóttir, f. 1994, 3) Karl tannlæknir, f. 7.4.1966, maki Kristjana Sæberg Júlídóttir, hjúkrunarfræðingur, f. 22.10. 1963, börn þeirra eru: a) Sara Margrét, f. 1986, b) Sigríð- ur, f. 1992, c) Júlí, f. 1996, unn- usta Brynja Þórðard., f. 1997, d) Lív, f. 2002, 4) Guðbjörg Jóna, Kveðja til mömmu Þú komst á fallegum sumardegi. Lítil hnáta – ljúfa káta elskuð af öllum – konum og köllum. Þú sveifst um bæinn við fjöllinn og sæinn með flygsandi fléttur – vissir hver var þinn réttur. Þú fékkst dýrmætt veganesti – og Guð þinn í hjarta festi. Naust þess að geta hjálpað – helst fólki sem var stálpað eða bara sungið – svo tilfinn- ingaþrungið. Á símanum þú svaraðir kalli – hann kom svífandi af fjalli. Ástin þín eina – með brúna lokka hreina. Hann gaf þér nælonsokka – og kossa til að lokka – og Lordinn kom sem ávöxtur af ykkar þokka. Það var gaman í þá daga – þið byggðuð upp ykkar haga. Vinirnir kæru sem stjörnurnar skæru, stöðin í stuði – kórinn í kruði. Þú bættir við þig blómum – sem him- neskum hljómum. Á eftir Lordinum kom Þvargarinn, síðan elsku Drengurinn og loks Höfuðverkurinn. Þvílík barnaflóra – var í þessu einhver glóra? Þú naust þess að gleðja – og okkur að seðja. Þú hélst þínu striki – með góð- mennskubliki. Þú gekkst að því gefnu – við myndum fylgja þinni stefnu, að Guð þinn gæfi okkur hið sama – trú- festu í hjarta okkur til frama. Þú bauðst okkur í veröld þína – í lífinu við fylgdum þér, og þökkum fyrir elsku blíða – sem þú í hjarta sáðir hér. (Gjg) Guðný Sigríður, Guðrún Herdís, Karl og Guðbjörg Jóna. Elskuleg tengdamóðir mín, Magðalena Sigríður Hallsdóttir, hefur kvatt þessa jarðvist, södd lífdaga. Hana þekkti ég best sem Möddu Halls. Í fjörutíu ár, hef ég fengið að njóta návistar hennar í heimsókn- um til Siglufjarðar og þegar hún dvaldi hjá okkur sunnan heiða. Í öllum störfum hennar, í sjálfboðavinnu fyrir mörg samtök á Sigló eins og fyrir Kvenfélag sjúkrahúss Siglufjarðar í þágu aldraðra og sjúkra,fyrir kirkju- kór Siglufjarðarkirkju, þar sem hún byrjaði að starfa 13 ára göm- ul og í vinnu sinni í áratugi fyrir Póst og síma, vann hún af þvílík- um heilindum og trúnaði að það gat ekki endað með öðru en að forseti Íslands veitti henni ridd- arakross hinnar íslensku fálka- orðu fyrir fimm árum. Gleði hennar og ánægja yfir barnabörnum og barnabarna- börnum var líka slík að öll elsk- uðu þau ömmu og langömmu Möddu. Sparibaukarnir sem hún kom upp fyrir hvert þeirra og safnaði saman peningum í, til að tryggja framtíð þeirra, sýndi slíka ást og kærleika til barnanna og von hennar var að þannig myndu þau öll muna eftir henni. Von hennar mun svo sannarlega rætast. Veislur Möddu, á öllum tíma- mótum, voru sérstakir viðburðir sem allir hlökkuðu til að fá að vera með í og kæmi einhver ætt- ingi til Siglufjarðar var ekki í kot vísað hjá Möddu. Sögustundir Möddu af ólíkum viðburðum og fólki, þar sem hlátur hennar og glettni naut sín, voru líka ógleym- anlegar. En Madda átti líka Gulla og all- ir töluðu um Möddu Halls og Gulla Kalla,eða Gulla Kalla og Möddu Halls. Þau hafa saman alla tíð sýnt tengdabörnum trún- að og traust til að taka að sér börn þeirra og stutt okkur saman í öllu því sem við höfum gert. Þegar Madda og Gulli komust á efri ár og ákváðu að yfirgefa heimili sitt, höllina að Fossvegi, og fluttu í Skálahlíð eignaðist fjöl- skyldan saman þá höll, þvílíkt lán. Þangað hefur fjölskyldan kom- ið árum saman með fjölskyldur, vini og frændfólk og mun svo verða áfram með börnum og barnabörnum um ókomna framtíð. Þannig verða böndin við Siglufjörð og minning- in um Möddu og Gulla mun lifa. Öllum þeim starfsmönnum á Heilbrigðisstofnuninni á Siglu- firði sem hafa veitt Möddu umönnun á liðnum árum eru færðar þakkir fyrir frábær störf, hlýju og umhyggju í garð Möddu. Að leiðarlokum vil ég þakka tengdamóður minni, Möddu Halls, fyrir allt það sem hún hefur gert fyrir fjölskyldu okkar í gegn- um árin. Megi hún nú hvíla í friði við hlið síns elskulega maka, Gulla Kalla. Ég efast ekki um að Guð al- máttugur, sem hún starfaði fyrir og trúði á allt sitt líf, mun taka vel á móti henni. Ef Madda hefði fengið að kveðja okkur öll hefði hún sagt: Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ breið þú blessun þína á barnæskuna mína. (Páll Jónsson.) Ómar Einarsson. Að minnast góðrar móður er mannsins æðsta dyggð. Þessar ljóðlínur komu upp í hugann þegar ég settist niður til að minnast tengdamóður minnar Magðalenu Sigríðar Hallsdóttur. Á tvítugsafmæli Guðrúnar dóttur hennar var Madda stödd í bænum og þótti þá tilhlýðilegt að kynna mig fyrir henni. Móttök- urnar sem ég fékk strax í byrjun einkenndust af hlýju og væntum- þykju, enda voru samskipti okkar þannig alla tíð. Ég hafði eignast góða tengdamóður, sem átti oft eftir að reynast mér vel á lífsleið- inni og fyrir það er ég ævinlega þakklátur. Umhyggja fyrir öðrum og sérstaklega fyrir öldruðu fólki var henni ofarlega í huga, enda mátti hún aldrei neitt aumt sjá og hafði mjög sterka réttlætiskennd. Hvort sem það var Kvenfélagið Von, Kvenfélag Sjúkrahússins eða Byggingarnefnd Dvalarheim- ilisins valdist hún til forystu. Fræg eru bingóin sem Madda hélt í yfir 25 ár til styrktar m.a. byggingu Dvalarheimilisins, enda umtöluð vegna veglegra vinninga. Þær voru ófáar ferðirnar norður þar sem hluti farangursins var bingóvörur. Hún var baráttukona sem stóð á sannfæringu sinni, sérstaklega ef það varðaði einhverja sem ekki gátu svarað fyrir sig. Hún var framsýn á mörgum sviðum, t.d. þegar verið var að byggja Dval- arheimilið, þá barðist hún fyrir því að þar yrði lítil sundlaug og snyrti- og hárgreiðslustofa. Við áttum mörg samtölin og vanga- velturnar um hvað þyrfti inn á eina hárgreiðslustofu og það var alveg skýrt frá hennar hendi að það skyldi vera allt það besta sem völ væri á. Eitt af því ánægjulegasta sem Madda gerði var að syngja í Kirkjukórnum, enda byrjaði hún þar þrettán ára gömul og söng með honum í sjötíu ár. Hún var mjög trúuð og sagði sjálf að hún væri aldrei ein. Síðustu árin eftir að hún var farin að missa sjónina kom það ekki að sök, sagði hún, því hún kunni alla textana í sálmabókinni. Heimili þeirra Möddu og Gulla að Fossvegi 8 var nokkurs konar miðstöð fyrir ættmenni þeirra sem áttu leið til Siglufjarðar. Allt- af var komið við hjá þeim, enda var þar ekki í kot vísað þegar kom að veitingum. Madda var ekki lengi að slá upp veislu og var iðu- lega mjög gestkvæmt hjá þeim, sem sést best á öllum gestabók- unum sem til eru, en það var regla að allir þurftu að kvitta fyrir kom- una. Þrátt fyrir að vinna fullan vinnudag á Símstöðinni og öll fé- lagsstörfin var henni mjög annt um fjölskyldu sína. Hún hvatti börnin sín til dáða og að láta drauma sína rætast. Alltaf var hún boðin og búin að taka á móti barnabörnunum til dvalar á Sigló meðan heilsan leyfði og eiga mörg þeirra yndislegar minningar frá dvöl sinni þar. Eftir að sjóninni og minninu hrakaði er mér efst í huga ynd- islega brosið sem ávallt tók á móti mér þegar ég var búinn að segja hver væri kominn. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð geymi þig. Þinn tengdasonur, Kristján S. Sigmundsson. Hún tók á móti mér af ein- stakri hlýju og kærleika með sín- um brosandi fallegu augum. Það var ekki eins og við hefðum aldrei þekkst, en þarna var ég mættur á Fossveginn í fyrsta sinn. Hún bauð upp á dýrindis hangikjöt því hún vissi að það var mitt uppá- hald. Hún vildi taka vel á móti mér og það gerði hún svo sannar- lega. Þetta var fyrsta minningin um Möddu, tengdamóður mína. Nú, rúmum tveimur áratugum síðar, kveð ég þessa óviðjafnan- legu konu sem alltaf hafði sama hlýja viðmótið og við fyrstu kynn- in. Hún tók vel á móti öllum og allir voru ávallt velkomnir í hús þeirra hjóna, Möddu og Gulla. Í þessari ástríku manngerð leynd- ist líka mikið keppnisskap og bar- áttuvilji. Verkefni hennar voru óþrjótandi og sjaldan tími fyrir hana að slaka á. Hún hafði svo sannarlega sínar skoðanir og gat blótað meira en flestir ef á þurfti að halda. Madda var alla sína tíð í senn einstaklega kærleiksrík, fórnfús og framtakssöm. Hún lét til sín taka í samfélaginu á Siglufirði, í góðgerðarmálum og menningar- lífi. Hún barðist fyrir jafnræði og réttlæti og sá til þess að allir í hennar umhverfi hefðu í sig og á. Umhyggjusemin var alltaf til staðar, án landamæra. Hún lifði eftir þeim kristnu gildum sem henni voru kennd og var með sterka trúarsannfæringu. Þær voru góðar stundirnar sem ég átti með tengdamóður minni við kaffiborðið þar sem hún dýfði suðusúkkulaðinu ofan í kaffið og í ökuferðum milli Siglu- fjarðar og Reykjavíkur. Sérstak- lega var það dýrmætt fyrir mig, Siglfirðinginn sem flutti í burtu úr firðinum fjögurra ára gamall, að heyra hana lýsa mannlífinu á Siglufirði hér áður fyrr. Hún þekkti alla og þetta voru góðir tímar og gott fólk. Gleði, já- kvæðni og virðing fyrir fólki ein- kenndi frásögn hennar. Það var aðdáunarvert hversu fallega hún talaði um aðrar manneskjur. Ég er afar þakklátur fyrir það að hafa kynnst Möddu og að börnin mín hafi fengið að njóta nærveru ömmu sinnar, fundið all- an kærleikann og manngæskuna sem frá henni streymdi. Þau hafa fengið í veganesti þessi góðu gildi sem hún stóð fyrir og bera von- andi gæfu til að lifa eftir þeim alla tíð líkt og hún gerði. Ég þakka Guði fyrir Möddu og allt það sem hún færði okkur. Nils Gústavsson. Elsku besta amma mín. Hjartahlýja, hjálpsama, gjaf- milda, kærleiksríka og góða amma mín, það er með miklum söknuði en jafnframt þakklæti í hjarta mínu sem ég skrifa kveðju til minningar um þig. Margar minningar koma upp í huga minn þegar ég fer yfir þær mörgu stundir sem við höfum átt saman. Sem barn var ég ekki sendur í sveit, heldur fór ég til ömmu Möddu og afa Gulla á Sigló. Þar eyddi ég oft heilu sumrunum; frá þeim tíma á ég ótal góðar minningar. Ég var vanur að hanga yfir ömmu og öðrum á símstöðinni í von um að fá klink fyrir blandi í poka. Á Fossveginum var alltaf mikið líf, rúnstykki og bláberja- súpa í hádeginu og amma bauð mér reglulega á rúntinn þar sem hún sagði sögur og rifjaði upp gamlar minningar. Amma hafði svo gaman af því að rifja upp gamla tíma og minnast fjölskyldu sinnar og vina. Mér þykir vænt um minningar mínar frá barns- árum á Sigló með ömmu og afa. Á unglingsárum fjarlægðist ég Siglufjörð. Ég hélt samt tengingu við ömmu, hringdi í hana og spjallaði reglulega. Hún var alltaf svo áhugasöm um hvað ég væri að gera og sýndi mér virðingu og hlýju og hvatti mig áfram. Árið 2005 fékk ég svo tækifæri til að tengjast ömmu enn betur, vera til staðar og gefa til baka. Kirkjukór Siglufjarðar var að fara til Ungverjalands í rúmar tvær vikur. Það var ljóst að amma þurfti á aðstoðarmanni að halda í þeirri ferð og ég bauðst til þess að fara með henni. Sú ferð er mér ógleymanleg og ég held líka öllum sem voru með okkur í ferðinni. Þar var ég yngstur og fékk að kynnast fjölmörgum frábærum Siglfirðingum, einna helst fékk ég að kynnast ömmu minni betur. Í þeirri ferð áttum við amma ótal stundir saman þar sem við rædd- um um trú, virðingu, ást og hjálp- semi við aðra. Mér er minnisstætt þegar við vorum í siglingu á Dóná og hún brosti út að eyrum og sagði mér hvað hún væri ánægð með að hafa farið í þessa ferð og hvað hún væri hamingjusöm. Vegna veikinda voru síðustu ár ömmu erfið. Ég er þakklátur fyrir að hún tengdist konunni minni, þær áttu margar stundir saman þar sem amma sagði henni sögur af ömmu hennar. Dóttir mín var líka efni mikils hláturs og gleði, en amma var mikil barnagæla og það gladdi hana að fá Karen Emmý í heimsókn. Amma var alltaf glöð og ánægð þegar við litla fjölskyldan komum í heim- sókn og það var alltaf gott að koma til hennar. Það verður skrítið að koma til Siglufjarðar og fara ekki í Skálahlíð eða á spít- alann að knúsa og kyssa ömmu, ég á eftir að sakna hennar mikið en ég mun geyma minninguna um hana allt mitt líf. Síðustu dagar ömmu voru frið- sælir og er ég þakklátur fyrir að hafa fengið að vera með henni þegar hún kvaddi okkur. Ég sendi þakkir á sjúkrahúsið á Siglufirði fyrir að hafa sýnt ömmu ótrúlega nærgætni og virð- ingu. Elsku amma, þú ert og verður mér mikil fyrirmynd, minning þín lifir í hjarta okkar. Ástarkveðja frá Einari, Unni og Karen Emmý. Elsku besta amma mín er nú búin að kveðja þessa veröld eftir langa og farsæla ævi. Ég er svo þakklát fyrir að hafa getað verið hjá henni síðustu daga hennar og fengið að kveðja hana í síðasta sinn. Amma var einstök kona, um- hyggjusöm, einlæg, hjartahlý og gjafmild. Hún var góð amma og minnist ég þess hve notalegt var að koma í heimsókn á Sigló og fá að eyða tíma með ömmu og afa. Það sem var dekrað við mann. Dýrindis máltíðir, ísbíltúrar um bæinn, berjamór, heimsóknir á símstöðina, bingó og kúrt í ömmu og afa koti. Amma túrbó kunni að dekra við sína. Fjölskyldan skipti ömmu miklu máli og vorum við barnabörnin í miklu uppáhaldi hjá henni. Hún hugsaði um okkur af ást og alúð og stundirnar sem við áttum saman voru fullar af ást og gleði. Það sem einkenndi ömmu fyrst og fremst var hversu stórt hjarta hún hafði og var hún alltaf reiðubúin að hjálpa öllum. Hún ætlaði sér alltaf að verða hjúkr- unarkona en varð að gefa þann draum upp á bátinn. Hún var því ákaflega stolt af ömmustelpunni þegar ég ákvað að gerast hjúkr- unarfræðingur. Það verður öðruvísi að koma til Sigló það sem eftir er, engin amma og afi til að heimsækja, en Sigló verður alltaf ömmu og afa staður þar sem ég á margar hlýj- ar og góðar minningar sem ég mun varðveita í hjarta mínu alla ævi. Þú varst góð amma og ég vil þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og kenndir mér í gegn- um lífið. Nú kveð ég þig í hinsta sinn með bæninni sem við fórum svo oft með saman. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín ömmustelpa, Soffía Arna. Í dag kveð ég mína elskulegu ömmu Möddu, mína fallegu og helstu fyrirmynd. Hún var svo gjafmild og jákvæð og kom alltaf vel fram við annað fólk. Hún elsk- aði að gleðja aðra og bar svo mikla umhyggju fyrir öllum í kringum sig. Hún hafði rosalega sterka réttlætiskennd og vildi alltaf berjast fyrir þeim sem minna máttu sín. Amma var þrjósk og hafði hún vinninginn að vera þrjóskasti einstaklingurinn í fjölskyldunni og eru nú margir þrjóskir fyrir. Þó að amma hafi alltaf búið langt frá okkur þá var hún alltaf hjá okkur í anda. Á kvöldin áður en við fórum að sofa hringdi hún oft frá Sigló til að bjóða okkur góða nótt og fór með kvöldbænirnar með okkur í gegn- um símann. Þá sváfum við vel. Stundum bjó hún líka hjá okkur fyrir sunnan og þá fengum við krakkarnir að njóta návistar hennar sem var svo kósý. Við heimsóttum hana líka oft til Siglu- fjarðar og þá var klassískt að fá ísblóm og dökkar súkkulaðirúsín- ur ásamt ömmuknúsi. Ég minnist ömmu Möddu með söknuði og þakklæti fyrir allt sem hún gaf mér og okkur barnabörn- unum. Blessuð sé minning ömmu Möddu. Margrét Nilsdóttir. Þegar ég var yngri fór ég á hverju ári til Sigló með mömmu og pabba. Minningin að keyra úr göngunum og beint upp á Foss- veg þar sem amma stóð alltaf við eldhúsgluggann, tilbúin með kvöldsnarl handa okkur. Alltaf beið hún í eldhúsglugganum. Best var að fá bláber með sykri og rjóma. Þegar ég varð eldri fór ég stundum ein til ömmu og afa, en ég gleymi aldrei tíu tíma rútu- ferðinni sem við frænkurnar fór- um í þar sem stoppað var á hverj- um einasta bæ á leiðinni. Amma tók alltaf vel á móti mér og var ýmislegt brallað á Sigló. Magðalena Sigríð- ur Hallsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.