Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015 lagið Fjaðrir en þau báru þó ekki sig- ur úr býtum. „Mér fannst þetta alveg stór- kostlegt ferli. Ég hef alltaf verið að gera tónlist en aldrei gert neitt svona áður og ákvað því að demba mér bara í djúpu laugina,“ segir hann glaður, en best hafi verið að fá að vinna að atriðinu með vinum sínum, Hildi Kristínu og Loga Pedro. „Þau eru bæði svo miklar hæfileikabomb- ur að þetta var alveg frábært.“ Mikil vinna fór í hvert smáatriði svo að allt myndi smella saman í lokaútgáfunni uppi á sviði. „Þetta var því bæði það skemmtilegasta og það erfiðasta sem ég hef gert, en það helst einmitt yf- irleitt í hendur,“ segir hann. Guðfinnur er einnig meðlimur hljómsveitarinnar For a minor reflection, þar sem hann spilar bæði á gítar og hljómborð. Spurður um næstu skref í tónlistini segist hann vera farinn að vinna í eigin efni ásamt því að æfa aftur á píanóið. Hægt er að styrkja Guðfinn og þar af leiðandi Geðhjálp inni á vef- svæðinu hlaupastyrkur.is, þar sem hann er valinn úr hópi hlaupara. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Áfram Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Guðfinnur tekur á rás til styrktar góðu málefni. „Það er gaman að hlaupa og gerir geðheilsunni gott.“ Morgunblaðið/Eggert Tónar Guðfinnur hleypur ekki bara því hann er líka tónlistarmaður sem tók þátt í Söngvakeppninni 2015 með Hildi og naut aðstoðar Loga Pedro. Nánar i upp l ýs inga r á he imas íðu VM www.vm. i s VM-Félag vélstjóra og málmtæknimanna - Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - 575 9800 Landsfélag í vél- og málmtækni FÉLAGSFUNDUR VM >> Þriðjudaginn 11. ágúst í Reykjavík VM húsinu, Stórhöfða 25, 3. hæð. kl. 20:00 Fundurinn verður sendur út í beinni á heimasíðu félagsins, www.vm.is >> Miðvikudaginn 12. ágúst á Akureyri Skipagötu 14, í sal Einingar-Iðju 2. hæð. kl. 17:30 Dagskrá fundarins: 1. Staðan í kjaraviðræðum 2. Önnur mál Félagsfundir VM verða haldnir í Reykjavík og á Akureyri vegna kjaraviðræðna VM við SA Fjölmörg orð eru til í hinsegin orðaforðanum sem enn hafa ekki fengið íslenska þýðingu, en hinseg- in hugtök og orð endurspegla svo sannarlega þá breidd sem eru til staðar í hinsegin samfélaginu, segir í tilkynningu Samtakanna ’78 um Nýyrðasamkeppni þeirra, Hýryrði 2015. „Það er mikilvægt að við getum öll talað um hinsegin reynslu og hinsegin líf á móðurmáli okkar.“ Hægt er að leggja inn tillögur að nýyrðum á vefsvæði keppninnar: samkeppni.samtokin78.is. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar. Dómnefnd sem skipuð er hinseg- in fólki, sérfræðingum í íslensku máli og kynjafræði mun velja bestu orðin. Í dómnefndinni sitja Ágústa Þorbergsdóttir, Gyða Margrét Pétursdóttir, Guðmunda Smári Veigarsdóttir, Setta María, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir og Örn Danival Kristjánsson. Viðurkenningar verða veittar fyrir bestu orðin á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Frestur til að skila inn tillögum rennur út 4. september. Hvaða orð vantar nýyrði? Kyntjáning: Androgynous – Butch – Femme Kynvitund: Agender – Andro- gyne – Bigender – Gender fluid – Non-binary – Pangender Kynhneigð: Asexual – Aromantic Ókyngreind frændsemisorð: Frænka/frændi – Kærasti/kærasta – Mamma/pabbi – Sonur/dóttir – Vinkona/vinur Taktu þátt í að móta íslenska tungu Morgunblaðið/Styrmir Hýryrði Samtökin ’78 standa fyrir nýyrðasamkeppni um orð í hinsegin orða- forðanum sem hafa enga íslenska þýðingu. Úr því verður nú snarlega bætt. Finnum hýryrði í nýyrðasamkeppni Geðhjálp vinnur að því að bæta þjónustu, verja réttindi og vinna gegn fordómum með hags- munagæslu, ráðgjöf, upplýs- ingum og þekkingarmiðlun. Gildi Geðhjálpar eru hug- rekki, mannvirðing og samhygð. Taka samtökin virkan þátt í opinberri umræðu til að upp- ræta fordóma ásamt því að standa fyrir málefnafundum. Hugrekki og mannvirðing STYRKJUM SAFNAÐ Í dýragarði í Prag í Tékklandi fæddist þessi ofurkrúttlegi og varnarlausi api á dögunum og foreldrarnir gerðu allt sitt til að verja hann fyrir hitanum sem hefur verið mikill í Evrópu undanfarið. Í dýraríkinu sjáum við jafn mikla ást og umhyggju hjá foreldrum afkvæma sinna eins og hjá okkur mannfólkinu. AFP Umhyggja Móðirin fór með ungann sinn í skugga upp í tré í hitanum. Móðurástin söm við sig AFP Hitabylgja Heitt hefur verið í Evrópu og blessaðar skepnurnar leita skjóls í skugganum. Górillan Kijivu var kældur niður með vatnsbunu og líkaði vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.