Morgunblaðið - 08.08.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
Lífrænt
Valið besta
heilsuefnið
www.thebeautyshortlist.com
Best Health Supplement - Overall Wellbeing
Grænni heilsu, Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup.
Hreinsar líkamann, bætir andadrátt og líkamslykt,
fegrar og frískar húðina
Bætir meltingu, gerir líkamann basískan,
kemur á réttu pH gildi
Yfir 100 lífræn næringarefni sem gefa orku,
einbeitingu og vellíðan
Spirulina, Chlorella&Barleygrass
Lifestream framkvæmir þrefaldar næringarprófanir; við uppskeru,
eftir framleiðslu og að lokummeð vottun frá óháðri prófunarstofu.
Dagleg græn upplyfting. Heilnæmt fæði, hámarks
upptaka og nýting á næringarefnum.
120 hylki
.
Jón Þór Ólafsson þingmaður Pír-ata hyggst láta af þingmennsku
í haust að loknu löngu og ströngu
sumarleyfi. Hann hefur fengið nóg
af malbikun á þingi og hyggst
stunda þá iðju á öðrum vettvangi.
Þetta er án efarétt ákvörðun,
en hún hefur orðið til
þess að umræða hef-
ur ágerst meðal al-
mennra pírata að
aðrir þingmenn
hyggist ekki fylgja
þeim vilja flokks-
manna og meintum
loforðum sínum að
sitja ekki lengur en
eitt kjörtímabil.
Birgitta Jóns-dóttir og Helgi
Hrafn Gunnarsson
hyggjast sitja sem
fastast þrátt fyrir að
það sé „hugmyndin,
að sitja í eitt kjör-
tímabil,“ eins og for-
maður framkvæmdaráðs Pírata orð-
aði það í samtali við Morgunblaðið.
Athyglisvert er að slíkar umræð-ur fari fram innan raða pírata,
en ekki síður að þær umræður hafa
farið hljótt, þar til fjallað var um
þær í fréttaskýringu í Morgun-
blaðinu í gær.
Ástæðan fyrir þögninni er sú aðumræður pírata fara fram á
læstum vef, sem er undarlegt þegar
höfð er í huga áhersla pírata á
gagnsæi til þess að almenningur geti
tekið upplýstar ákvarðanir. Án
gagnsæis sé ekki til „alvöru lýð-
ræði“.
Hvernig stendur á því að flokkurgagnsæisins heldur umræðum
um meint brot þingmanna á stefnu
flokksins frá almenningi? Er þess
háttar laumuspil engin ógn við lýð-
ræðið?
Jón Þór Ólafsson
Píratapukur
STAKSTEINAR
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Birgitta
Jónsdóttir
Veður víða um heim 7.8., kl. 18.00
Reykjavík 13 léttskýjað
Bolungarvík 7 alskýjað
Akureyri 12 alskýjað
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 22 þrumuveður
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 22 léttskýjað
Lúxemborg 33 heiðskírt
Brussel 27 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 25 heiðskírt
París 27 heiðskírt
Amsterdam 23 heiðskírt
Hamborg 22 léttskýjað
Berlín 33 heiðskírt
Vín 35 léttskýjað
Moskva 25 heiðskírt
Algarve 30 heiðskírt
Madríd 36 heiðskírt
Barcelona 28 heiðskírt
Mallorca 32 heiðskírt
Róm 32 léttskýjað
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 18 alskýjað
Montreal 20 skýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 26 léttskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:57 22:11
ÍSAFJÖRÐUR 4:44 22:33
SIGLUFJÖRÐUR 4:27 22:17
DJÚPIVOGUR 4:22 21:45
Heildarfjöldi frjókorna í lofti í
Garðabæ mældist 1.223 frjó á fer-
metra í júlí. Náttúrufræðistofnun Ís-
lands greinir frá þessu í fréttatil-
kynningu en þar segir að síðan
mælingar hófust árið 2011 hafi aldrei
mælst fleiri frjókorn í lofti.
Frjótalan fór tvisvar sinnum yfir
100 frjó á fermetra en langmest var
um grasfrjó, eða 616 frjó á fermetra.
Á Akureyri var aftur á móti fremur
kalt og úrkomusamt í júlí sem hafði
mikil áhrif á frjótölu. Heildarfjöldi
frjókorna varð 412 frjó á fermetra
sem er langt undir meðallaginu 870
frjó á fermetra.
Lítið um frjókorn á Akureyri
Heildarfjöldi frjókorna hefur að-
eins tvisvar sinnum verið lægri sam-
kvæmt því sem fram kemur í saman-
tekt Náttúrufræðistofnunar, eða
árin 2009 og 2010. Heildarfjöldi frjó-
korna fór aldrei yfir 100 frjó á fer-
metra. Önnur frjó sem mældust fyrir
norðan voru furufrjó, 47 frjó á fer-
metra, súrufrjó, 28 frjó á fermetra,
og frjó af sveipjurtaætt, 22 frjó á fer-
metra.
Mest var um grasfrjó eins og við
má búast og fór frjótala grasa hæst í
27 frjó á fermetra hinn 5. júlí. Gras-
frjó voru því ekki til mikils ama fyrir
þá sem þjást af frjóofnæmi. Veðrið
hefur mikil áhrif á frjótölur og ætti
það sem af er sumri að hafa reynst
þeim vel sem þjást af frjókornaof-
næmi skv. samantekt NÍ.
Mikið af frjókornum í Garðabæ
Frjókornatala lág á Akureyri og
grasfrjó íbúum ekki til mikils ama
Morgunblaðið/Ómar
Frjó Meira er um frjókorn á sunnan-
verðu landinu en fyrir norðan.
Tjón vegna elds-
ins sem kviknaði
í þaki Lauga-
lækjarskóla
hleypur á millj-
ónum króna að
sögn Björns M.
Björgvinssonar,
skólastjóra
Laugalækjar-
skóla. Hann segir
bókasafn skólans, eða upplýsinga-
ver eins og það er kallað í skól-
anum, hafa lent verst úti og verður
ekki tilbúið til notkunar að nýju fyrr
en um miðjan september.
„Það var mikið tjón. Núna þarf að
taka allar bækur og tæki og tól úr
þessu upplýsingaveri. Það þarf að
skipta um loftklæðningu og allt sem
því fylgir,“ sagði Björn í samtali við
mbl.is.
Hann sagði að eftir helgi hæfist
vinna við endurbætur en nemendur
skólans snúa aftur á skólabekk 24.
ágúst næstkomandi. Að sögn Björns
eru margar tölvur í upplýsinga-
verinu og á eftir að koma í ljós
hversu mikið skemmdar þær eru.
Eldurinn kom upp í gróðri á þaki
skólans skömmu fyrir klukkan eitt í
fyrrinótt. Björn sagði að talið væri
að um íkveikju væri að ræða.
Olli millj-
ónatjóni
Eldur lék Lauga-
lækjarskóla grátt