Morgunblaðið - 08.08.2015, Side 14
Verkfallsbunk-
inn er að baki
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Starfsmenn Sýslumannsins á höfuð-
borgarsvæðinu eru búnir að fara yfir
flest mál sem lögð voru inn til þinglýs-
ingar meðan á verkfalli lögfræðinga
stóð og gott betur.
Þuríður Árnadóttir, sviðsstjóri og
staðgengill sýslumanns, sagði að þeg-
ar verkfalli lögfræðinga var frestað
um miðjan júní hafi um 10-11 þúsund
skjölum verið óþinglýst hjá embætt-
inu. Síðan þá hefur annað eins bæst
við. Skjölum er þinglýst eftir þeirri
dagsetningu sem þau berast. Skjöl
sem lögð hafa verið inn til þinglýs-
ingar eftir að verkfallinu var frestað
bíða því á meðan unnið er í eldri mál-
um og þar til kemur að þeim í tíma-
röðinni. „Halinn“ styttist þó með
hverjum degi sem líður.
Frá því að vinna hófst eftir verk-
fallið hefur um 14-15 þúsund skjölum
verið þinglýst, það er skjölum sem
lögð höfðu verið inn til og með 1. júlí
sl. Skjöl sem lögð hafa verið inn eftir
1. júlí eru um sjö þúsund talsins og
eru þau enn óafgreidd. Í lok júlí voru
innlögð skjöl hjá Sýslumanninum á
höfuðborgarsvæðinu orðin alls 32.559
á þessu ári. Nú er verið að vinna í mál-
um sem lögð voru inn fyrir 4-5 vikum.
Verkfallinu lauk í þann mund sem
starfsmenn fóru að fara í sumarfrí og
það hafði sín áhrif.
Ólíkar vinnsluaðferðir mála
Mál söfnuðust einnig upp á öðrum
sviðum. Þuríður sagði vinnsluaðferð-
irnar mjög mismunandi eftir mála-
flokkum. Hvað varðar mál á fjöl-
skyldusviði þá geta mörg þeirra verið
tímafrek eins og t.d. skilnaðarmál og
ágreiningsmál sem af þeim leiðir, um-
gengnismál og ættleiðingarmál. Ekki
er endilega gengið í mál sem berast
fjölskyldusviði eftir tímaröð, eins og í
þinglýsingum, heldur eftir því hve
brýn málin eru. Gengið var í að af-
greiða öll búsetuleyfi, einkaskipta-
leyfi og önnur slík mál sem safnast
höfðu upp. Útgáfa leyfa er að mestu
komin í eðlilegan farveg.
Uppboð, fjárnám og önnur slík mál
eru ekki enn komin á rétt ról eftir
verkfallið, að sögn Þuríðar. Talsvert
langur aðdragandi er að fyrirtöku í
þeim málum. Ekki var því hægt taka
þau strax fyrir um leið og verkfallinu
lauk heldur þurfti að byrja á að boða
fólk og taka málin fyrir eftir þeim
reglum sem um fullnustugerðir gilda.
Yfirvinna og fleira starfsfólk
Starfsmenn hjá Sýslumanninum á
höfuðborgarsvæðinu hafa unnið
mikla yfirvinnu og m.a. tekið vinnu-
helgar til að vinna á bunkunum sem
hlóðust upp í verkfallinu. Einnig var
bætt við starfsfólki til að vinna á
bunkunum sem söfnuðust upp í verk-
fallinu. Enn er því talsverð vinna
framundan hjá embættinu og ekki séð
fyrir endann á uppsöfnuðum málum.
Um sjö þúsund skjöl bíða þinglýsingar
hjá Sýslumanni höfuðborgarsvæðisins
Morgunblaðið/Eggert
Útifundur Verkfall lögfræðinga
innan BHM stóð vikum saman.
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Glæsilegur hótelrekstur
Viðskiptatækifæri:
í miðbæ Reykjavíkur
Til leigu nýtt og glæsilegt 52 herbergja boutique hótel í virðulegu
húsi á rólegum stað í miðbæ Reykjavíkur.
Hótelið verður innréttað og afhent tilbúið um mitt ár 2016.
Mikið verður lagt í innréttingar og aðbúnað og verður hönnun
innanstokksmuna og innra útlits unnin í samráði við leigjendur.
Áhugasamir aðilar þurfa að geta lagt fram tryggingu fyrir
húsaleigu og geta sýnt fram á þekkingu á atvinnugreininni.
Verulega spennandi verkefni í ferðaþjónustu í höfuðborginni.
Nánari upplýsingar: Guðni Halldórsson, gudni@kontakt.is
H
a
u
ku
r
0
8
.1
5
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Þetta er stórkostleg tilfinning,“ seg-
ir Teitur Árnason nýkrýndur heims-
meistari í gæðingaskeiði á Heims-
leikum íslenska hestsins í Herning í
Danmörku á hestinum Tuma frá
Borgarhóli, en hann hlaut 8,50 í ein-
kunn. Teitur skaut fyrrum heims-
meistara í þessari grein, Guðmundi
Einarssyni á Sprota frá Sjávarborg,
ref fyrir rass en hann hlaut silfur-
verðlaun. Teitur er ungur að árum,
verður 24 ára í haust, en hefur náð
góðum árangri á Tuma í skeið-
greinum síðustu ár og eru þeir m.a.
núverandi Íslandsmeistarar í gæð-
ingaskeiði.
Mikil tækni í gæðingaskeiði
„Fyrst og fremst er þessi hestur
snillingur. Hann er gríðarlega tekn-
ískur. Hann vill læra og á auðvelt
með það og finnst gaman að skeiða
og er einfaldur af stökki og inn í
skeið,“ segir Teitur um Tuma.
Teitur segist hafa farið í gæðinga-
skeiðið með það að markmiði að leysa
verkefnið án þess að gera mistök.
Það gekk greinilega eftir.
Gæðingaskeið er mikil tæknigrein,
þar þarf að halda spennustigi hests-
ins í lágmarki því hestur á að fara inn
í braut á tölti, svo er honum hleypt af
krafti upp í stökk á stuttum kafla þá
er hann látinn skeiða af afköstum til
að ná góðum tíma og svo er hann
hægður niður á stuttum kafla. Allt
þarf þetta að gerast snurðulaust og
verða áferðarfallegt. „Hestarnir
þurfa að vera vel búnir undir þetta og
vera með knapanum,“ segir Teitur.
Hann á eftir að keppa í tveimur
skeiðgreinum til viðbótar, 250 metra
skeiði og 100 metra skeiði og er til
alls líklegur þar. Þessar greinar hafa
verið sterkar hjá þessu pari.
Teitur segist ætla að „láta finna vel
fyrir sér“ í næstu skeiðgreinum en
bendir á að andstæðingarnir séu
verðugir, m.a. Bergþór Eggertsson
sem er fjórfaldur heimsmeistari í 250
metra skeiði á Lótus frá Aldengor
sem keppa einnig fyrir hönd Íslands.
Í 250 metra skeiði eru riðnir fjórir
skeiðsprettir, tveir sitt hvorn daginn.
Í kvöld skýrist hver verður heims-
meistari í 250 metra skeiði en á
sunnudaginn verður keppt í 100
metra skeiði. Þá eru riðnir tveir
skeiðsprettir. Sömu hestar eru
gjarnan í þessum þremur skeið-
greinum og fara þeir því marga
spretti á mótinu.
„Frábær,“ svarar Teitur þegar
hann er spurður út í stemningu ís-
lenska liðsins og bætir við: „Það hef-
ur gengið alveg svakalega vel hjá lið-
inu og það er góð heild í hópnum. Við
ætlum að halda áfram að láta finna
fyrir okkur,“ segir Teitur.
Góður árangur í tölti
eftir forkeppni
Íslendingarnir stóðu sig gríðarlega
vel í forkeppni í tölti sem lauk í gær.
Jóhann Skúlason, ríkjandi heims-
meistari í tölti, stendur efstur á Garpi
frá Højgaarden með 8,07 í einkunn.
Þá komust tveir aðrir Íslendingar í
A-úrslit, Sigurbjörn Bárðarson á
Jarli frá Mið-Fossum er í þriðja sæti
og fast á hæla hans í því fjórða kemur
Kristín Lárusdóttir á Þokka frá
Efstu-Grund með 7,77 í einkunn.
Samkvæmt tölfræðinni eru því tölu-
vert miklar líkur á að tölthornið,
verðlaunin eftirsóttu í tölti, falli Ís-
lendingi í skaut.
Jóhanna Margrét Snorradóttir
hélt öðru sæti í slaktaumatölti í ung-
mennaflokki á Stimpli frá Vatni með
einkunnina 6,38. Þýski knapinn Luc-
ie Maxheimer sigraði með einkunn-
ina 6,42 einungis fjórum kommum
betur en Jóhanna, en hún var eini
fulltrúi Íslands í þessari grein.
Í fyrramálið er yfirlitssýning stóð-
hesta og eru töluvert miklar líkur á
gullverðlaunum þar. Í dag eru B-
úrslit í öllum greinum og A-úrslit á
sunnudaginn.
Tumi á auðvelt með að læra
Teitur heimsmeistari í gæðingaskeiði á Tuma Gerir atlögu að fleiri titlum Jóhann ríkjandi
heimsmeistari í tölti er efstur eftir forkeppni Þrír af fimm í A-úrslitum í tölti eru Íslendingar
Ljósmynd/Óðinn Örn Jóhannsson
Skeið Teitur Árnason og Tumi frá Borgarhóli á fljúgandi ferð í gæðingaskeiði sem skilaði gullverðlaunum.
Heimsleikar íslenska hestsins í Herning Danmörku 2015