Morgunblaðið - 08.08.2015, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
SÓFADÖGUMLÝKURUMHELGINA
* afsláttur gildir af öllumsófumnemamerktum”EverydayLowPrice”
SPARAÐU
75.000 kr.
Kingston-sófi
Nú224.900kr.
25% afsláttur af öllum sófum*
2½sætameð legubekk. Grátt áklæði.
L 271 cmxD161 cm. 299.900 kr. Nú 224.900 kr.
Kingston-sófi
Stjórn Minningarsjóðs
Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar auglýsir
eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum.
Markmið sjóðsins er stuðningur við nýjungar í
læknisfræði, einkum á sviði heila- og taugasjúkdóma,
hjarta- og æðasjúkdóma, augnsjúkdóma og
öldrunarsjúkdóma.
Með umsóknum skulu fylgja greinargerðir um
vísindastörf umsækjenda, ítarlegar kostnaðaráætlanir
og upplýsingar um það, hvernig þeir hyggjast verja
styrknum. Umsóknir skulu staðfestar með undirskrift
umsækjanda og meðumsækjanda/enda, ef einhverjir
eru.
Umsóknarfrestur er til 31. október n.k. og ber að
senda umsóknir í pósthólf 931, 121 Reykjavík, merktar
„Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar.“ Stefnt er að því að tilkynna um
úthlutun í lok nóvember n.k.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Þeir eru allnokkrir stuðningsmenn
ensku liðanna sem beðið hafa með
eftirvæntingu eftir því að dagurinn í
dag rynni upp þegar 1. umferð
ensku úrvalsdeildarinnar hefst. Á
hádegi tekur Manchester United á
móti Tottenham. Morgunblaðið tók
hús hjá þremur veitingahúsum sem
sýna fótboltann á skjám, eða fót-
boltapöbbum eins og þeir eru nefnd-
ir í daglegu tali, Ölveri, Spot og
Rauða ljóninu. Starfsmennirnir sem
rætt var við eru allir sammála um að
eftirvænting sé mikil og segja þeir
marga bíða óþreyjufulla eftir því að
tímabilið hefjist. Er það þrátt fyrir
að lokaumferð síðasta tímabils hafi
farið fram fyrir einungis um tveimur
og hálfum mánuði.
Leedsarar duglegir að mæta
Magnús Páll Halldórsson,
framkvæmdastjóri á Ölveri í
Glæsibæ, segir að 400-500 manns
mæti þegar stærstu leikirnir fara
fram hjá Manchester United og Liv-
erpool. Að auki er staðurinn „heima-
bar“ fyrir aðdáendur Leeds, West
Ham, Tottenham, Everton, Arsenal
og Chelsea. Spurður hvað heimabar
sé þá segir hann það þann bar sem
stuðningsmannaklúbbar liðanna
mælast til að stuðningsmenn mæti á
þegar leikur fer fram.
Að sögn hans mæta langflestir
þegar Liverpool og Manchester
United spila, auk þess sem margir
mæti þegar Arsenal leikur. Þá mæti
einnig margir þegar Tottenham,
Everton og Leeds spila. „Það er svo-
lítið gaman af Leedsurunum því lið-
inu hefur ekkert gengið sérstaklega
vel undanfarin ár og verið í neðri
deildum, en það mæta oft 50-60
manns, og eru alltaf glaðir,“ segir
Magnús.
250 lítrar af bjór yfir leik
Hann segir að fjöldinn sem
komi hafi farið vaxandi ár frá ári og
hópurinn sem mætir sé þverskurður
samfélagsins. Að sögn hans má gera
ráð fyrir að fólk kaupi að meðaltali
einn bjór á mann sem umreiknast í
200-250 lítra þegar fullt hús er. „En
þegar landsleikur er í gangi þá gæti
ég trúað því að nærri 1.000 manns
komi nærri húsinu. Þó ekki séu allir
inni í einu þá má segja að hálfgert
partí sé umhverfis Glæsibæ,“ segir
Magnús.
Árni Björnsson, starfsmaður
Spot í Kópavogi, segir að stuðnings-
mannaklúbbar Manchester United
og Liverpool venji komur sínar á
veitingastaðinn. Hann segir að 400-
600 manns mæti á toppleikina. „Hins
vegar er svolítið annað þegar
Chelsea og Manchester City eru að
spila, sem voru tvö efstu liðin í fyrra,
og 20 manns mæta,“ segir Árni sem
samsinnir blaðamanni um það að
peningar kaupi ekki hollustu þó þeir
laði leikmenn til liðanna.
Liverpool-menn einu stuðn-
ingsmennirnir sem syngja
„Það er alltaf gaman á góðum
leikjum og mikil stemning. Liver-
pool-mennirnir eru þeir einu sem
syngja og taka reglulega You never
walk alone,“ segir Árni. Hann segir
að sjaldnast séu svokölluð fyllirí
tengd þessari menningu. Áhorf-
endur láta sér yfirleitt nægja að
horfa á leikina áður en þeir fara
heim. Hann segir að mýtan um að
eingöngu piparsveinar horfi á leik-
ina á börunum sé ósönn. „Einn og
einn er þannig að ekkert kemst að í
kollinum á honum annað en Liver-
pool eða Manchester United, en svo
eru flestir ósköp venjulegt fólk sem
horfir á leikinn, jafnvel með börnin
og konuna með sér,“ segir Árni.
Þúsundir á börum landsins
Fjöldi minni veitingastaða hef-
ur tekið upp á því að sýna íþrótta-
kappleiki á stöðum sínum og gera
má ráð fyrir því að fleiri hundruð
manns, jafnvel þúsundir, utan þeirra
sem mæta á þessa tvo stærstu, horfi
á stærstu leikina á börum landsins.
Þá eru ótaldir þeir sem horfa á leik-
ina heima fyrir. Rauða ljónið í Vest-
urbæ hefur pláss fyrir um 150 gesti
að sögn Hafsteins Egilssonar, eig-
anda staðarins. Hann segir vinalega
stemningu fylgja enska boltanum og
gjarnan sé fullt út úr dyrum þegar
leikir toppliðanna fara fram. „Menn
eru farnir að telja niður og kýtast
um það hverjir verða meistarar,“
segir Hafsteinn. Hann segir algengt
að stuðningsmenn bauni góðlátlega
hvor á annan þegar liðin þeirra
leika. „Svo tekur maður alltaf af-
stöðu með liðinu sem fáir halda með.
Ég held með United sjálfur, en segj-
um að Liverpool og Everton séu að
spila, þá held ég alltaf með Ever-
ton,“ segir Hafsteinn.
Grýtti glasi í vegginn
Hann segir að það hafi aldrei
gerst að mönnum hafi lent saman í
kjölfar gríns á kostnað hins liðsins.
„En það var einn sem brjálaðist þeg-
ar lið hans fékk mark á sig og kast-
aði glasi í vegginn. Hann áttaði sig
strax á því hvað hann hafði gert og
baðst afsökunar. Ég henti honum
ekkert út, þetta var augnabliksbrjál-
aði hjá fastakúnna. Liðið fékk
ósanngjarnt mark á sig og í ein-
hverju kasti lét hann glasið vaða.
Menn verða stundum æstir,“ segir
Hafsteinn og hlær.
Þúsundir fylla fót-
boltapöbba landsins
AFP
Enski boltinn rúllar Gylfi Sigurðsson verður á sínum stað í Sweansea sem spilar í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
400-600 manns á bar þegar stærstu leikirnir fara fram
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stemning Mikil stemning getur myndast þegar knattspyrnuleikir eru í
gangi. Dæmi eru um að um þúsund manns séu í Glæsibæ fyrir landsleiki.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Hulda A. Arnljótsdóttir, talsmaður
íbúa við Klettaskóla í Suðurhlíða-
hverfi, er ósammála ummælum Ein-
ars H. Jónssonar, verkefnisstjóra
framkvæmda við skólann, í Morgun-
blaðinu í gær. Í máli hans kom fram
að engar reglur hefðu verið brotnar
við framkvæmdir vegna viðbygging-
ar við skólann. Tók hann m.a. fram að
framkvæmdum hefði verið seinkað
enda kæmi það sér betur fyrir um-
hverfið að sprengja meira á styttri
tíma.
„Í staðinn fyrir að sprengja einu
sinni á dag hafa þeir sprengt hátt í
fimm sinnum á dag,“ segir Hulda, en
íbúarnir fengu vilyrði frá borginni
fyrir því á kynningarfundi í vor að
ekki yrði sprengt oftar en einu sinni á
dag. Að sögn Huldu var ekki haft
samráð við íbúana um að sprenging-
um yrði fjölgað og verktíminn stytt-
ur, en í upphafi til stóð að hefja fram-
kvæmdir í byrjun sumars.
Hulda segir rangt að engar reglur
hafi verið brotnar við framkvæmdirn-
ar. Í reglugerð um sprengiefni komi
skýrlega fram í 2. mgr. 38. gr. að íbú-
ar í nágrenninu sem ætla megi að
verði fyrir ónæði af sprengingum
skuli fá viðvörun þess efnis. Hulda
segir framkvæmdaraðila ítrekað hafa
brotið þessa reglu.
Aðrar leiðir við jarðvinnuna
Að sögn Einars eru hagsmunir
íbúa í nágrenninu teknir til greina við
vinnuna við Klettaskóla og tók hann
fram að sprengingar yllu minna
ónæði fyrir íbúana en önnur fær leið
við grunnvinnu, fleygun.
Hulda er ósammála þessari full-
yrðingu og bendir á að slík sé nálægð-
in við húsin að skemmdir séu þegar
komnar fram. „Fleygun fylgir vissu-
lega ofboðslegur hávaði. Þó fylgja því
alltaf ákveðnir áhættuþættir að
sprengja og skemmdir koma oft fram
síðar. Auk steypuskemmda geta
komið fram skemmdir í lögnum í
jörðu, vatnsbúskapur lóða getur
breyst og gluggaeinangrun getur far-
ið úr skorðum,“ segir hún.
Eins og áður hefur komið fram
hafa íbúarnir farið fram á stöðvun
framkvæmdanna, en málið er til af-
greiðslu hjá úrskurðarnefnd um-
hverfis- og auðlindamála og hlýtur af-
greiðslu á næstu vikum.
Íbúarnir ósáttir
við borgina
Segja borgaryfirvöld brjóta reglur