Morgunblaðið - 08.08.2015, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta var viss óvissuferð. Við erum
núna á tímamótum, á þriðja starfsári.
Barnið er að vaxa upp úr bleyju-
standinu. Þurfum að taka saman
reynsluna, endurmeta starfið og
marka stefnuna til næstu ára,“ segir
Einar Kristinn Jónsson, stjórnar-
formaður Ferðaþjónustu Vestfjarða,
Westfjords Adventures, á Patreks-
firði. Ferðaskrifstofan hefur vaxið
hratt og er enn í uppbyggingarferli
undir stjórn Einars Kristins og
Gunnþórunnar Bender fram-
kvæmdastjóra.
Ferðaþjónustan á ríkan þátt í að
koma suðurhluta Vestfjarða á ferða-
mannakortið en ljóst er þó að mikið
starf er enn óunnið í því að kynna
svæðið og markaðssetja.
Westfjords Adventures hóf starf-
semi í maí 2013. Ákvörðun um að
stofna ferðaskrifstofu tengdist bygg-
ingu hótels á vegum Fosshótela á
Patreksfirði, sem tók til starfa á sama
tíma. Fosshótel, einstaklingar og fyr-
irtæki á staðnum ákváðu að gera átak
til að auka afþreyingarmöguleika fyr-
ir ferðafólk sem leggur leið sína um
sunnanverða Vestfirði.
Westfjords Adventures tók við
gönguþjónustu sem svæðisleið-
sögumenn voru með. Það hefur alla
tíð verið mikilvægur þáttur í starf-
seminni en aðrir þættir hlaðist utan
á. „Við höfum stöðugt verið að þróa
nýjar vörur og það hefur gengið feiki-
lega vel,“ segir Einar Kristinn. Sett
var upp hjólaleiga og hjólafólk að-
stoðað við skipulagningu ferða og
bílaleiga í samvinnu við Bílaleigu Ak-
ureyrar. Boðið er upp á ýmsar nátt-
úruskoðunarferðir, til dæmis ljós-
myndaferðir, fuglaskoðunarferðir og
selaskoðunarferðir. Í síðastnefndu
ferðinni fer bóndi á Rauðasandi með
fólkið á dráttarvélarkerru að selalátr-
unum. Ferðaþjónustan er með rútu-
ferðir að helstu náttúruperlum svæð-
isins, svo sem út á Látrabjarg, á
Rauðasand og að Dynjanda. Erlendir
ferðamenn nota þær mikið, jafnvel
þótt þeir komi vestur á bílaleigu-
bílum. Margir treysta sér ekki til að
aka ómalbikuðu vegina. Sjóstanga-
veiði er vaxandi og þar eru Íslend-
ingar í meirihluta.
Gönguferðirnar fyrir íslensku hóp-
ana eru afar vinsælar, að sögn Gunn-
þórunnar. Westfjords Adventures
sér um skipulagningu, leiðsögn, rútu-
skutl og utanumhald. Vinsælustu
gönguleiðirnar eru um brúnir Látra-
bjargs, frá Geldingaskorardal og að
Bjargtöngum. Vitaskuld er komið við
í Minjasafni Egils Ólafssonar á
Hnjóti til að fræðast frekar um björg-
unina við Látrabjarg.
Eins og sést á þessu er Látrabjarg
vinsælasti áningarstaðurinn og sá
staður sem flestir ferðamenn, inn-
lendir jafnt sem erlendir, vilja sækja
heim í ferð sinni vestur.
Vaxin upp úr bleyjustandinu
Stöðug aukning í starfsemi ferðaþjónustunnar Westfjords Adventures Látrabjarg er aðalsegullinn
Stjórnarformaður fyrirtækisins segir tímabært að endurmeta starfsemina og marka nýja stefnu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Vestfirsk ævintýri Einar Kristinn Jónsson og Gunnþórunn Bender byggja
upp og reka Westfjords Adventures á Patreksfirði. Þau leigja meðal annars
út hjól og skipuleggja hjólaferðir, gönguferðir og náttúruskoðun.
Ferðaþjónustan er opin allt árið en á haustin er skipt um gír, að sögn
Gunnþórunnar Bender. Þá hefst undirbúningur undir næsta sumar, skipu-
lagning og markaðssetning. Áfram þarf að sinna þeim ferðamönnum sem
leggja leið sína vestur, með bókunarþjónustu og miðasölu og ferðir fyrir
Breiðafjarðarferjuna Baldur. Minjagripaverslunin er opin allt árið.
Einar Kristinn Jónsson vekur athygli á því að 500
manns hafi sótt ráðstefnur sem Ferðaþjónustan sá um
fyrrihluta sl. vetrar. Það sé hrein viðbót við hina hefð-
bundnu þjónustu.
Þá sér Westfjords um helgar- og ævintýraferðir
vestur og njóta þær vaxandi vinsælda. Ferðirnar eru
gjarnan skipulagðar á vorin, þegar fuglinn er byrj-
aður að koma í Látrabjarg, en einnig á haustin. Ekki
spillir fyrir að norðurljósin eru skær á Vest-
fjörðum á þessum tíma.
Ráðstefnur og ævintýri
SKIPT UM GÍR Á HAUSTIN
• R-Line ytra útlit og 18” álfelgur
• Litað gler
• Alcantara áklæði
• Webasto bílahitari með fjarstýringu
• Hraðastillir
• Bluetooth fyrir farsíma og tónlist
• Climatronic - 3ja svæða loftkæling
• Bílastæðaaðstoð
• Aðfellanlegt dráttarbeisli
• Bakkmyndavél
• Leiðsögukerfi fyrir Ísland
• Panorama sólþak
Staðalbúnaður í Tiguan R-Line 4Motion 2.0 TDI dísil, fjórhjóladrifnum og sjálfskiptum
Er ekki kominn
tími á Tiguan?
VW Tiguan er vel útbúinn með öllu því helsta sem gerir bíl að jeppa.
Taktu skrefið til fulls og fáðu þér Tiguan. Góða skemmtun!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirðiwww.volkswagen.is
5.990.000
kr.
Tiguan R-Li
ne vel búin
n, dísil,
fjórhjóladri
finn og sjál
fskiptur: