Morgunblaðið - 08.08.2015, Qupperneq 20
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Við metum það svo út frá þeim gögn-
um sem aðgengileg eru að gjaldeyris-
tekjur af ferðaþjónustu í maí, júní og
júlí nemi 104 milljörðum króna,“ segir
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF).
Yfir sama tímabil í fyrra námu tekj-
urnar 80 milljörðum og því hafa gjald-
eyristekjur af atvinnuveginum hækk-
að um 24 milljarða milli áranna 2014
og 2015. Í tölunum eru ekki meðtaldar
gjaldeyristekjur íslenskra fyrirtækja
sem starfa í ferðaþjónustu utan land-
steinanna.
„Sú sprenging sem orðið hefur í
fjölda ferðamanna og auknum flug-
samgöngum milli Evrópu og Banda-
ríkjanna, með tengingu í gegnum Ís-
land, veldur þessari miklu hækkun.
Erlendir ferðamenn kaupa fjölbreytta
vöru og þjónustu um allt land, meðal
annars í tengslum við flug og skipa-
samgöngur, gistingu, leigubíla, far-
miða með rútum, bílaleigubíla, leið-
sögn, ýmsa afþreyingu, mat og
veitingaþjónustu og þess vegna er
þessi tekjuauki að skila sér vítt og
breytt um samfélagið,“ bætir Helga
við.
Aldrei fleiri í einum mánuði
Í gær birti Ferðamálastofa nýjar
tölur yfir fjölda ferðamanna í júlí-
mánuði. Í þeim kemur fram að
straumur ferðamanna til og frá land-
inu hefur aldrei mælst meiri í einum
mánuði. Þannig voru 180.679 manns
sem yfirgáfu landið í gegnum Flugstöð
Leifs Eiríkssonar í mánuðinum. Fyrra
fjöldamet var slegið í ágústmánuði í
fyrra en þá fóru 153.457 manns um
flugstöðina samkvæmt sömu talningu.
Í júlí í fyrra fór 144.571 ferðamaður
um Leifsstöð og því nemur fjölgunin í
júlí 25%. Helga segist búast við því að
nýtt fjöldamet verði slegið í yfirstand-
andi mánuði. „Reynslan kennir okkur
að flestir ferðamenn eru hér á landi í
ágúst og ef fjölgunin verður að meðal-
tali sú sama nú og í júlí, þá má búast
við nýju meti þegar þessi mánuður er
genginn um garð.“
Sífellt mikilvægari grein
Helga segir tölurnar staðfesta
hversu mikilvægur hlekkur í efna-
hagskerfi landsins ferðaþjónustan er
orðin.
„Efnahagslegt mikilvægi ferðaþjón-
ustu eykst stöðugt sem ein helsta út-
flutningsatvinnugrein þjóðarinnar.
Hún ýtir undir fjölbreytni í atvinnulífi
um allt land, hún skapar störf og þar
með verðmæti og hún styður og styrk-
ir þá innviðauppbyggingu sem byggð
hefur verið upp, um allt land, á undan-
förnum árum.“
Þá segir hún að hlutfall ferðaþjón-
ustunnar í landsframleiðslunni sé
vaxandi og að líkur standi til að sú
þróun haldi áfram.
„Ferðaþjónusta hefur þegar skilað
Íslandi miklum efnahagslegum ávinn-
ingi eins og fram kemur í nýjum
ferðaþjónustureikningum Hagstof-
unnar fyrir tímabilið 2009-2013. Þar
kemur fram að hlutfall ferðaþjónustu
í landsframleiðslu hafi verið um 7% á
árinu 2013. Gera má ráð fyrir að þetta
hlutfall haldi áfram að vaxa þegar
horft er til þess að erlendum ferða-
mönnum fjölgaði um 24% á árinu 2014
og vísbendingar um svipaða aukningu
ef ekki meiri í ár,“ bætir Helga við.
Ferðaþjónustan hefur skilað
24 milljörðum meira í sumar
Morgunblaðið/RAX
Ferðaþjónusta Spár um fjölgun ferðamanna hafa ekki staðist á síðustu árum og lítið lát virðist á fjölguninni í ár.
Mikið umfang
» Í fyrra námu heildar gjald-
eyristekjur ferðaþjónust-
unnar 304 milljörðum króna.
» Árið 2013 voru heildartekj-
urnar metnar 274 milljarðar.
» Áætluð meðalútgjöld
hvers ferðamanns á dag í
sumar eru um 26 þúsund
krónur.
» Samtök ferðaþjónustunnar
telja meðalútgjöldin varlega
áætluð en þau námu 22 þús-
und krónum árið 2013.
Gjaldeyristekjur frá maí til júlí 104 milljarðar 181 þúsund ferðamenn í júlí
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á svínið
!"
! #
"$
% "#
$"
!#!"
#%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
!"
!#
!
"%
% !
$ #"
%
!
#%#
%"
!#%
! $
"%##
% $
$
%
!#
#!
%"
! %$
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Vöruskipti í júlí voru óhagstæð um
rúma 4,4 milljarða, reiknuð á fob verð-
mæti, samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Hagstofu Íslands. Útflutningur var 51,9
milljarðar króna og innflutningur var
tæpir 56,4 milljarðar króna. Hagstofna
vekur athygli á því að áætlun um elds-
neytiskaup íslenskra flutningsfara er-
lendis er nú meðtalin í bráðabirgðatöl-
um um vöruskipti.
Vöruskipti óhagstæð
um 4,4 milljarða í júlí
● Farþegum Wow air fjölgaði um 43% í
júlí miðað við sama mánuð í fyrra. Alls
flutti flugfélagið 104 þúsund farþega til
og frá landinu í júlí og hefur félagið
aldrei flutt fleiri farþega í einum mán-
uði. Sætanýting Wow air í júlí var 90%
og fjölgaði framboðnum sætis-
kílómetrum um 65% í júlí frá því á
sama tíma í fyrra. Skúli Mogensen,
stofnandi og forstjóri, segir það magn-
að að Wow air hafi flutt fleiri farþega í
júlí en allt fyrsta ár félagsins, 2012.
Fleiri farþegar hjá Wow
air í júlí en allt árið 2012
Morgunblaðið/Golli
STUTTAR FRÉTTIR ...
Í júlí urðu til 215.000 ný störf í
Bandaríkjunum og hefur störfum nú
fjölgað að meðaltali um 235.000 á
mánuði síðastliðna þrjá mánuði.
Eykur það enn frekar á væntingar
vestanhafs um hækkun stýrivaxta.
Í tilkynningu peningastefnu-
nefndar seðlabanka Bandaríkjanna í
lok júlímánaðar sagðist nefndin telja
það skynsamlegt að hækka stýri-
vexti þegar hún sæi fram á að staðan
á vinnumarkaði héldi áfram að
batna.
Atvinnutölur að undanförnu hafa
ekki gefið annað í skyn en að at-
vinnuhorfur fari batnandi og í kjölfar
birtingar þeirra hækkaði ávöxtunar-
krafa á stuttum ríkisskuldabréfum.
Bandaríkjadalur styrktist verulega í
gær gagnvart evru og pundi í kjölfar
birtingar atvinnutalnanna, þótt hann
hafi gefið eftir þegar leið á viðskipta-
daginn. Samkvæmt gögnum frá
Bloomberg benda vextir á framtíðar-
samningum (e. futures) til þess að
það séu 58% líkur á að stýrivextir
verði hækkaðir í kjölfar næsta fund-
ar peningastefnunefndar í septem-
ber.
Í júlí urðu til um 210.000 störf í
einkageiranum, flest í smásölu, á
meðan 5.000 störf urðu til í opinbera
geiranum. Þá hækkuðu laun um
0,2% í júlí frá fyrri mánuði og er
tímakaupið nú að meðaltali 24,99 dal-
ir, sem er 2,1% hærra en fyrir ári síð-
an. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum
stendur í 5,3% sem er það lægsta í
sjö ár eða frá fjármálakreppunni árið
2008. Atvinnuleysi hjá táningum
lækkaði úr 18,1% í 16,2% frá júní til
júlí. sigurdurt@mbl.is
AFP
Bandaríkin Atvinnuleysi er hið
lægsta frá fjármálakreppu 2008.
Störfum fjölgar í
Bandaríkjunum
Vaxandi líkur á
því að það styttist í
hækkun stýrivaxta