Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
„Sú stefna að halda mjólkurverði
lágu dregur úr framlegð í mjólkur-
framleiðslu, sem er í raun mesta
hindrunin fyrir aðkomu nýrra aðila
á markað,“ segir Helgi Rafn Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri mjólk-
urvinnslunnar Bíóbú, aðspurður
um þau ummæli forstjóra MS að að-
stæður fyrir lítil fyrirtæki sem vilji
framleiða úr mjólk hafi batnað
verulega undanfarið.
Framlegðin er minnst í fram-
leiðslu á þeim vörum þar sem verð
er ákveðið af verðlagsnefnd, til
dæmis léttmjólk, rjóma og smjöri.
Vörur sem eru ekki undir verðlags-
nefnd gefa betri afkomu. „Það er
ástæða þess að ný fyrirtæki fara
ekki í framleiðslu á vörunum sem
eru með ákveðið verð, heldur öðr-
um eins og til dæmis mygluosti eða
jógúrt,“ segir Helgi Rafn.
Rekstraraðstæður skýrari
„Þegar heildsöluverð á hrámjólk
frá framleiðanda var ákveðið af
verðlagsnefnd í mars í fyrra þá
urðu rekstraraðstæður skýrari,“
segir Hálfdán Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Örnu, mjólkurvinnsl-
unnar í Bolungarvík.
Hann segir aftur á móti margt
við hækkun heildsöluverðs á mjólk
vera undarlegt, en 1. ágúst síðast-
liðinn var heildsöluverð á mjólk og
mjólkurafurðum hækkað. Ólafur
Friðriksson, formaður verðlags-
nefndar, sagði það vera vegna
launahækkana og hærra raforku-
verðs en Hálfdán segir líta úr fyrir
að ekki hafi verið litið á kostnaðar-
liði sem hafi lækkað. „Á sama tíma
hafa ýmsir kostnaðarliðir MS dreg-
ist saman, t.d. hefur olíuverð farið
lækkandi og krónan styrkst gagn-
vart evrunni, á meðan hluti launa af
kostnaði er aðeins 15%,“ segir Hálf-
dán. sigurdurt@mbl.is
Lítil arðsemi mjólkur
er helsta hindrunin
Forsendur til
reksturs mjólkur-
búa hafa skýrst
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Mjólk Forsvarsmaður Örnu segir
hækkun heildsöluverðs undarlega.
Það sem af er ári hefur Seðlabanki
Íslands keypt 816 milljónir evra á
millibankamarkaði inn í gjaldeyr-
isforða sinn, eða sem jafngildir lið-
lega 120 milljörðum króna á núver-
andi gengi. Kaup bankans í síðasta
mánuði voru þau mestu frá upphafi
þegar bankinn keypti 265 milljónir
evra á millibankamarkaði, að því er
fram kemur í umfjöllun í Morg-
unkorni Íslandsbanka. Á tveimur
mánuðum í júní og júlí keypti
Seðlabankinn gjaldeyri fyrir sam-
tals 466 milljónir evra en til sam-
anburðar námu kaup bankans frá
janúar til júní í fyrra alls 340 millj-
ónum evra.
Þrátt fyrir kaupin hefur gengi
krónunnar styrkst lítillega, sem
endurspeglar mikið hreint gjaldeyr-
isinnflæði til Íslands á tímabilinu.
Mikill vöxtur í ferðaþjónustu skýrir
hluta innflæðisins en Íslandsbanki
bendir á að fleira komi til, meðal
annars fjárfestingarverkefni í iðn-
aði og sala innlendra fyrirtækja
fyrir gjaldeyri, auk verðbréfafjár-
festinga erlendra aðila. Að mati Ís-
landsbanka er útlit fyrir áframhald-
andi innflæði gjaldeyris og að
Seðlabankinn haldi áfram að kaupa
talsverðan gjaldeyri inn í gjaldeyr-
isforðann út þetta ár.
Tvöföldun hreins forða
Í lok júní var gjaldeyrisforði
Seðlabankans 605 milljarðar króna.
Vegna kaupa ríkissjóðs á eigin
skuldabréfum fyrr í vikunni, og
greint var frá í ViðskiptaMoggan-
um á fimmtudaginn, telur Íslands-
banki líklegt að gjaldeyrisforðinn sé
heldur minni nú, þrátt fyrir mikil
gjaldeyriskaup í júlí. Samkvæmt
tölum Seðlabankans var hreinn
gjaldeyrisforði, þ.e. gjaldeyriseignir
að frádregnum skuldum í gjaldeyri,
119 milljarðar króna í lok júní.
Hann hafði þá rúmlega tvöfaldast
frá áramótum en þá nam hann 47
milljörðum króna.
Seðlabankinn aldrei keypt meiri gjaldeyri
Í júní og júlí keypti Seðlabankinn
gjaldeyri fyrir tæplega 70 milljarða
Gjaldeyriskaup Seðlabankans og hreinn gjaldeysiforði (ma.kr.)
Heimild: Seðlabanki Íslands
Júl. ´15Apr. ´15Jan. ´15Okt. ´14Júl. ´14Apr. ´14Jan. ´14
120
100
80
60
40
20
0
-20
-40
Gjaldeyriskaup nettó Hreinn gjaldeyrisforði
Margar tillögur eru af veitingum á
heimasíðu okkar. Einnig er hægt að
panta einstaka rétti eða eftir óskum.
Veislusalur okkar er bjartur og fallegur
salur á jarðhæð, gott aðgengi.
Öll þjónusta, kaffi og gos eru innifalin í
verði þegar erfidrykkja er í sal.
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is ·www.veislulist.is
Veitingar í erfidrykkjur
af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal
okkar, í aðra sali eða í heimahús.
Skútan