Morgunblaðið - 08.08.2015, Side 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 109.990
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 137.489
Meira en bara
blandari!
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Auðkýfingurinn Donald Trump var
miðdepill fyrstu sjónvarpskapp-
ræðna forsetaefna repúblikana í
Bandaríkjunum í fyrrinótt en er samt
ekki álitinn helsti sigurvegari þeirra.
Nokkrir fréttaskýrendur höfðu
spáð því að Trump myndi vera ró-
legri, varfærnari og „forsetalegri“ í
kappræðunum en hann hefur verið til
þessa í kosningabaráttunni, en þeir
reyndust ekki vera sannspáir.
Flestir hinna frambjóðendanna
voru varfærnir og málefnalegir,
reyndu að vera landsföðurlegir og
létu stjórnendur kappræðnanna um
að þjarma að Trump. Dan Balz,
fréttaskýrandi The Washington
Post, telur að kappræðurnar hafi lítil
áhrif á fylgi forsetaefnanna í skoð-
anakönnunum.
Peningamennirnir
mikilvægastir núna?
„Engum urðu á mikil mistök sem
gera möguleika þeirra að engu,“ hef-
ur fréttaveitan AFP eftir stjórnmála-
skýrandanum Geoffrey Skelley,
fræðimanni við Virginíuháskóla.
Hann segir að öldungadeildarþing-
maðurinn og frjálshyggjumaðurinn
Rand Paul hafi verið eini frambjóð-
andinn sem hafi þjarmað að Trump.
Paul sakaði auðkýfinginn um að hafa
reynt að „kaupa“ stjórnmálamenn
með fjárframlögum í kosningasjóði
þeirra.
Stjórnmálaskýrandinn Peter
Brown, við Quinnipiac-háskóla, segir
að á þessu stigi kosningabaráttunnar
skipti mestu máli fyrir forsetaefnin
að sýna að þau eigi raunhæfa mögu-
leika á að ná kjöri til að tryggja sér
nægan fjárhagsstuðning. „Spurning-
in er hver þeirra laðar til sín pening-
ana.“Nate Cohn, stjórnmálaskýrandi
The New York Times, tekur í sama
streng og segir að fyrir flest forseta-
efnin hafi ekki skipt mestu máli að
heilla áhorfendur og auka fylgi sitt í
könnunum, heldur að vinna áhrifa-
menn í flokknum og peningamenn á
sitt band. Hann telur að Jeb Bush,
fyrrverandi ríkisstjóri Flórída, hafi
ekki komið mjög vel út úr kappræð-
unum hvað þetta markmið varðar
þótt honum hafi ekki orðið á nein mis-
tök og stundum staðið sig vel. Helstu
keppinautar Bush um atkvæði
íhaldssamra kjósenda, þeir Scott
Walker, Marco Rubio og John Ka-
sich, hafi allir staðið sig vel í kapp-
ræðunum.
Cohn og fleiri stjórnmálaskýrend-
ur vestra telja að Marco Rubio, öld-
ungadeildarþingmaður frá Flórída,
sé helsti sigurvegari kappræðnanna.
Rubio er afkomandi innflytjenda sem
flúðu frá Kúbu og kom fram sem
holdtekja ameríska draumsins, að
sögn fréttaskýrenda.
Donald Trump var eina forsetaefn-
ið sem neitaði að lofa því að styðja
frambjóðanda repúblikana hvernig
sem forkosningar flokksins færu.
Hann hefur gefið til kynna að hann
hyggist fara fram sem óháður fram-
bjóðandi sigri hann ekki í forkosning-
unum og repúblikanar óttast að það
myndi gulltryggja demókrötum sig-
ur í næstu forsetakosningum. Þessi
afstaða Trumps fer ekki vel í dygga
stuðningsmenn repúblikana og gæti
því reynst honum dýrkeypt í forkosn-
ingum flokksins.
AFP
Miðdepillinn Donald Trump ræðir við fréttamenn í Cleveland í Ohio þar sem kappræðurnar fóru fram. Fox News
sá um að sjónvarpa kappræðunum og stjórnendur þeirra þóttu standa sig vel, koma með beinskeyttar spurningar.
Donald Trump kom,
sá og sigraði ekki
Rubio álitinn helsti sigurvegari kappræðna repúblikana
Ted CRUZ
44 ára
Öldungadeildarþingmaður
frá Texas. Álitinn mjög
íhaldssamur
Jeb BUSH
62 ára
Marco RUBIO
44 ára
Öldungadeildar-
þingmaður frá Flórída.
Sonur innflytjenda
frá Kúbu
Ben CARSON
63 ára
Fyrrv. taugaskurðlæknir.
Nýtur stuðnings Teboðs-
hreyfingarinnar
Mike HUCKABEE
59 ára
Fyrrv. ríkisstjóri
Arkansas.
Prédikari, sjónvarpsmaður
Donald TRUMP
John KASICH
63 ára
Ríkisstjóri Ohio.
Lýst semmiðjumanni
í flokknum
Chris CHRISTIE
52 ára
Ríkisstjóri New Jersey.
Lýst sem hispurs-
lausum raunsæismanni
Forsetaefni sem tóku þátt í sjónvarpskappræðum í tengslum
við forkosningar Repúblikanaflokksins
Helstu forsetaefni repúblikana í Bandaríkjunum
Scott WALKER
47 ára
ríkisstjóri Wisconsin,
íhaldssamur
24,3%
12,5
9,5
6,8
5,8
5,5
5,3
4,5
3,5
2,8
Rand PAUL
52 ára
Öldungadeildarþing-
maður frá Kentucky.
Frjálshyggjumaður
Heimild: RealClearPolitics
69 ára
Auðkýfingur og
sjónvarpsstjarna
Fyrrv. ríkisstjóri Flórída.
Faðir hans og bróðir
voru forsetar Bandaríkjanna
Fylgi í könnun sem gerð var 6. ágúst
Metfjöldi áhorfenda
» Talið er að allt að fimmtán
milljónir manna hafi fylgst
með sjónvarpskappræðunum
að þessu sinni, fleiri en nokkru
sinni fyrr.
» Um það bil þrjár milljónir
manna fylgdust með fyrstu
sjónvarpskappræðum forseta-
efna repúblikana í forkosning-
unum fyrir forsetakosning-
arnar árið 2012.
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna sagði í gær að aðstæður
tuga þúsunda flóttamanna í Grikk-
landi væru „skammarlegar“ en
ríkisstjórn landsins sagði að flótta-
mannastraumurinn væri svo mikill
að Grikkjum væri það ofviða að
taka við öllu fólkinu nú þegar þeir
tækjust á við efnahagskreppu.
Um 124.000 manns, flestir þeirra
flóttamenn frá Sýrlandi, Afganist-
an og Írak, hafa komið til Grikk-
lands það sem af er árinu, 750%
fleiri en á síðasta ári. Þar af komu
50.000 í júlímánuði einum.
„Það er alger glundroði á grísku
eyjunum,“ sagði Vincent Cochetel,
yfirmaður Evrópudeildar Flótta-
mannastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna. Hann bætti við að á meðal
flóttamannanna væru konur og
börn sem þyrftu að sofa undir ber-
um himni, án matvæla og drykkjar-
vatns. Hann kvaðst aldrei áður hafa
séð slíkt ástand í Evrópuríki. „Þetta
er Evrópusambandið og þetta er al-
ger skömm.“
UM 120.000 FLÓTTAMENN HAFA KOMIÐ TIL GRIKKLANDS Í ÁR
„Alger glundroði á grísku eyjunum“
AFP
Neyð Flóttafólk í miðborg Aþenu.
Frakkar hófu í gær leit að braki úr
farþegaþotunni MH370 við Réunion-
eyju í Indlandshafi. Miklar líkur eru
taldar á að vænghluti sem fannst á
strönd eyjunnar sé úr MH370 sem
var af gerðinni Boeing 777-200 og
hvarf fyrir 17 mánuðum.
Leitarmenn vonast til þess að finna
fleiri hluta úr flaki vélarinnar á
strönd eyjunnar eða í grennd við hana. Fréttaveitan AFP hafði eftir Aline
Simon, liðsforingja í franska hernum, að frönsk herflugvél væri nú að leita
að braki á svæðinu.
Auk flugvélarinnar gengur fólk um strendur eyjunnar og þyrlur og
bátar eiga að taka þátt í leitinni. Frá því að vænghlutinn fannst hafa marg-
ir komið fram með hluti sem þeir töldu vera úr MH370 en það reyndist ekki
vera rétt.
RÉUNION-EYJA
Frakkar hefja leit að braki úr MH370
Leit Franska vélin lendir á Réunion.