Morgunblaðið - 08.08.2015, Side 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
Kaupauki
Gjafapoki fylgirvið kaup á tveimur
bollum
Björt, litaglöð lína fyrir kaffielskendur
ESPRESSO bollalínan
• Postulínsbollar 100 ml
• Uppþvottavéla- og
örbylgjuvænir
• Einfaldir og þægilegir
Fæst í stærri Hagkaups verslunum www.danco.is
Heildsöludreifing
Gimli. AFP. | Þeir berjast með sverð-
um og öxum, bera skildi fyrir sig og
reka upp stríðsöskur í orrustum sem
settar eru upp á víkingasýningu í
tengslum við Íslendingahátíðina í
Gimli í Manitoba.
Hátíðin á sér langa sögu, allt frá
1874, og hefur verið haldin í Gimli
frá 1932. Hátíðin stendur í fjóra
daga í ágúst ár hvert og allt að
70.000 manns taka þátt í henni.
Víkingahátíðin hefst á því að blás-
ið er í lúður í eftirlíkingu af vík-
ingaþorpi. „Allir sem taka þátt í
orrustunum þurfa að mæta á æfing-
ar fyrir hátíðina,“ sagði Warren
Cummins, formaður víkingafélags
sem skipulagði orrusturnar og
víkingaþorpið. „Þetta er blanda af
fræðslu og skemmtun til að kveða
niður ranghugmyndir um menningu
víkinga.“
Mikilvægt að tengslin við
Ísland glatist ekki
Víkingaþorpið er við styttu af vík-
ingi sem Ásgeir Ásgeirsson, þáver-
andi forseti Íslands, afhjúpaði 1967.
Biskup Íslands, Agnes Sigurðar-
dóttir, var heiðursgestur Íslendinga-
hátíðarinnar í ár, en í fyrra var
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra heiðursgestur.
„Markmiðið með hátíðinni er að
deila íslenskri menningu og arfleifð
með Manitoba-búum, Kanadamönn-
um og fólki úr öllum heimsálfum,“
sagði Kathi Thorarinson Neal, sem á
sæti í Íslendingadagsnefndinni sem
skipuleggur Íslendingahátíðina ár
hvert.
Brú milli kynslóða
„Það er mjög mikilvægt fyrir mig
og aðra sem eru af þriðju eða fjórðu
kynslóð Vestur-Íslendinga að
tengslin við heimalandið glatist
ekki,“ sagði Robbie Russo, sem fékk
nokkra íslenska tónlistarmenn til að
koma fram á hátíðinni og tekur við
formennsku í Íslendingadagsnefnd-
inni. „Listin er frábær brú til að
gera kynslóðunum kleift að tengj-
ast.“
Fræðsla og
skemmtun á
víkingahátíð
Fjölmennt á Íslendingahátíð í Gimli
AFP
Vinsæll kappi Stór stytta af víkingi
vakti mikla athygli á hátíðinni.
AFP
Brú milli kynslóða Unga fólkið fékk tækifæri til að skoða fatnað og áhöld víkinga á árlegu hátíðinni í Gimli.
AFP
Völundur Hagleiksmaður sýnir verkfæri og fleiri muni.
AFP
Ekki bara vígamenn Vefarar voru
á meðal sýnenda á víkingahátíðinni.