Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
✝ Guðrún Ingi-björg Svan-
bergsdóttir fæddist
17. ágúst 1927 á
Hrafnsstöðum ofan
Akureyrar. Hún
lést á dvalarheim-
ilinu Hlíð, Akureyri
þann 25. júlí síðast-
liðinn.
Foreldrar Guð-
rúnar voru þau
Aðalheiður Jóns-
dóttir, f. 22. september 1893, d.
1. febrúar 1983, og Svanberg
Sigurgeirsson, f. 14. júní 1887, d.
11. júní 1961. Albróðir Guðrúnar
var Hörður, f. 9. febrúar 1929, d.
9. september 2012. Einnig átti
hún sjö hálfsystkini samfeðra;
Sigurður Björgvin, f. 1920, Fann-
ey Soffía, f. 1922, Laufey, f. 1923,
Sigurgeir, f. 1924, Sumarliði, f.
1925, Héðinn, f. 1933, og Regína,
f. 1935. Þau eru öll látin.
Guðrún giftist Ólafi Gíslasyni
frá Sauðárkróki, f. 18. mars
1916, d. 22. febrúar 1999. For-
eldrar Ólafs voru Jakobína Guð-
rún Þorleifsdóttir, f. 29. júní
1890, d. 29. maí 1968, og Gísli
Ólafsson, f. 2. janúar 1885, d. 14.
3) Hörður Gunnar, f. 1953,
maki: Margrét Sigurðardóttir, f.
1954. Þeirra börn; a) Guðrún
Helga, f. 1972, maki: Stefán Þór-
arinsson, f. 1971. Þeirra dóttir:
Íris Marín, f. 2007. Fyrir á Guð-
rún dæturnar Rebekku Ýri, f.
1992, og Sunnevu Eir, f. 1996. b)
Ólafur Heiðar, f. 1978, maki:
Hrefna Ásmundsdóttir, f. 1984,
þeirra börn; Natan Örn, f. 2011,
og Stefanía Sunna, f. 2014. c)
Elva Hlín, f. 1986, maki: Kristinn
Björgvinsson, f. 1980. Þeirra
börn; Dagný Katla, f. 2006, og
Hólmar Darri, f. 2008, d) Karen
Harpa, f. 1993.
Guðrún ólst upp á Akureyri á
heimili móður sinnar. Á Akur-
eyri kynntist hún mannsefni
sínu, Ólafi, sem starfaði þar sem
bifreiðastjóri. Þar bjuggu þau
fyrstu árin þar til þau fluttu til
Sauðárkróks árið 1948 og stofn-
uðu þar framtíðarheimili sitt á
Skagfirðingabraut 33. Guðrún
starfaði við fiskvinnslu og á
prjónastofu ásamt heimilis-
störfum og uppeldi sona þeirra
hjóna en árið 1967 festi hún kaup
á Húsgagnaverslun Sauðárkróks
sem hún rak til ársins 1996. Árið
2005 flutti Guðrún til Akureyrar
það sem hún eyddi síðustu æviár-
unum.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 8.
ágúst 2015, og hefst athöfnin kl.
11.
janúar 1967. Börn
Guðrúnar og Ólafs
eru:
1) Gísli, f. 1946,
maki: Ingibjörg
Jónasdóttir, f. 1950,
þeirra börn; a) Lilja,
f. 1971, í sambúð
með Sigurði Ara
Tryggvasyni, f.
1968, þeirra dóttir:
Jóhanna Kristín, f.
2001, b) Aðalheiður,
f. 1974, hennar maki: Guðmund-
ur Örvar Bergþórsson, f. 1970,
þeirra börn; Ingibjörg Ósk, f.
1999, og Tómas Blær, f. 2002, og
c) Ólafur, f. 1981.
2) Óli, f. 1949, maki: Sesselja
Einarsdóttir, f. 1952, þeirra
börn: a) Linda Björk, f. 1971,
maki: Heimir Kristinsson, f.
1968, þeirra dóttir: Kamilla Ósk,
f. 1995, b) Birgir Rafn, f. 1975, í
sambúð með Hildigunni Rut
Jónsdóttur, f. 1978. Þeirra börn;
Sara María, f. 2001, og Jón Óli, f.
2005, c) Helga Hrönn, f. 1985, í
sambúð með Vilhjálmi Inga Sig-
urðarsyni, f. 1980. Þeirra dóttir
er Ellý, f. 2012, en fyrir á Helga
Hrönn soninn Þorstein, f. 2007.
Í dag kveðjum við yndislega
móður og tengdamóður. Einnig
var hún einn besti vinur sem
hægt var að hugsa sér. Hún var
glaðvær og hreinskiptin og aldrei
féll skuggi á samband hennar við
okkur og börnin okkar. Sam-
skipti okkar voru nær dagleg og
heimsóknir barna okkar til ömmu
og afa á Skaffó voru tíðar og vin-
sælar því að amma átti alltaf eitt-
hvert góðgæti og hafði alltaf tíma
fyrir spjall við ungar sálir. Guð-
rún var afar tónelsk og átti hljóð-
færi til að spila á, bæði gítar og
píanó. En hún vildi læra meira og
fór því í einkatíma bæði í píanó-
leik og gítarleik. Hún hafði einnig
yndi af söng og á fullorðinsárum
fór hún að syngja með kór eldri
borgara á Sauðárkróki. Áhugi
Guðrúnar lá víða og fór hún með-
al annars í Fjölbrautaskólann og
lærði ensku, frönsku og spænsku.
Þetta nýttist vel þegar hún fór
svo að ferðast ásamt Ólafi eigin-
manni sínum. Hún naut þess að
fara til heitra landa og voru farn-
ar nokkrar ferðir, einnig fóru þau
til Ameríku sem var þeim
ógleymanleg ferð. Guðrún var
laxveiðimaður af líf og sál og voru
Blönduferðir með syni og eigin-
manni alltaf gleðiríkar, gaf hún
karlpeningi ekkert eftir í veiði-
skap. Eftir lát Ólafs hélt hún uppi
merkjum hans og fór í Vesturós-
inn á vorin og hafði mikið yndi af.
Hún hóf rekstur Húsgagnaversl-
unar Sauðárkróks og sem kaup-
maður sinnti hún viðskiptavinum
sínum vel. Hún kynntist mörgum
og segja má að þar hafi ættfræ-
ðiáhugi hennar notið sín þegar
viðskiptavinir alls staðar af komu
við hjá henni í spjall. Með henni
og mörgu af þessu fólki tókst
langvarandi vinskapur. Ef okkur
vantaði eitthvað inn í umræðu
okkar um fólk og vantaði í ætt-
fræðina gátum við alltaf hringt í
Guðrúnu og hafði hún alltaf svar-
ið. Tengdamóðir mín var einstak-
lega snyrtileg kona, alltaf vel til
höfð og naut þess að klæða sig
upp. Við áttum margar skemmti-
legar stundir á Skaffó þegar hún
hringdi og mátun stóð yfir fyrir
Rótarýballið, sem var sú árshátíð
sem þau hjón fóru alltaf á. Í
gegnum árin leystum við hana af
í búðinni svo að hún kæmist í sína
árlegu ferð til Reykjavíkur, sem
stóð yfirleitt yfir í viku, og svo
seinna þegar farið var til sólar-
landa og var það gert með gleði
því hún átti allar okkar stundir
svo margfalt skilið. Ekki ósjaldan
var komið með nýbakaðar klein-
ur og parta til okkar eða þá
hringt og sagt að nýsoðið slátur
væri tilbúið í skál. Guðrún flutti
til Akureyrar árið 2005, en mann
sinn, Ólaf Gíslason, missti hún ár-
ið 1999. Henni fannst breytingar
hafa orðið á Akureyri og sérstak-
lega í vinahópnum sem var.
Margir vina hennar frá Sauðár-
króki héldu tryggð við Guðrúnu
alla tíð og hringdu til hennar eða
litu í kaffi hjá henni þegar þeir
voru á Akureyri. Við hjónin eig-
um henni svo óendanlega margt
að þakka að þessi fáu orð duga
hvergi nærri til þess. Sem for-
eldrar erum við einnig þakklát
fyrir elsku hennar og aðkomu í
uppvexti barna okkar fjögurra
sem fengu veganesti sitt líka frá
afa og ömmu. Við biðjum algóðan
Guð að blessa minningu hennar
og þökkum henni samfylgdina.
Hvíldu í friði, elsku móðir mín og
tengdamóðir.
Hörður G. (Bassi) og
Margrét.
Elsku amma.
Mér finnst þetta svo ótrúlega
flókin kveðja. Það eru svo marg-
ar stórkostlegar minningar sem
ég á um okkur saman. Æskuár
mín á Sauðárkróki áttum við
margar góðar stundir og þú virt-
ist hafa endalausa þolinmæði fyr-
ir öllu brasinu sem oft fylgdi,
veiðiferðum, berjamó, fjöruferð-
um, bakstri, saumaskap og
mörgu fleira. Ég held það hafi
nánast ekki verið neitt sem
amma gerði ekki fyrir okkur eða
með okkur.
Öll símtölin síðastliðin ár þar
sem við grétum úr hlátri yfir alls
konar vitleysu. Þú varst alltaf svo
montin af hópnum þínum, þú
hrósaðir okkur öllum óspart. Þú
hjálpaðir mér að þroskast og
vaxa – þú varst alltaf til staðar og
ég veit að þú verður ávallt með
mér – minningarnar á ég og mun
varðveita vel.
Góða ferð, elsku amma, og
knúsaðu nú uppáhalds karlinn
okkar frá mér.
Elska þig alltaf.
Þín,
Elva.
Elsku besta amma mín.
Ég kveð þig með miklum sökn-
uði, þakklæti og fallegum minn-
ingum í hjarta. Trúin er sterk og
hefur alltaf verið og ég trúi því að
þú sért á góðum stað. Stað þar
sem afi tekur vel á móti þér.
Enda einstakt hjónabandið ykk-
ar tveggja og minningarnar
yndislegar bæði tengdar þér og
tengdar ykkur saman.
Þakklæti er það sem kemur
aftur og aftur upp í hugann þegar
ég hugsa um þig, elsku amma. Þú
gafst mér svo mikið og varst mér
fyrirmynd á svo margan hátt.
Það sem óteljandi heimsóknirnar
voru yndislegar á Skagfirðinga-
brautinni hjá afa og ömmu, hátíð-
ardagarnir saman ógleymanleg-
ir, allar veiðiferðirnar o.fl. Ég er
þér endalaust þakklátur fyrir all-
ar lífsins reglur sem þú kenndir
mér. Góðu gildin, ráðin sem þú
gafst mér gagnvart lífinu al-
mennt og ég hef að leiðarljósi í
öllu því sem ég tek mér fyrir
hendur.
Reglulega ómar ákveðin setn-
ing í höfðinu á mér þegar ég
hugsa um samskipti okkar, en þú
sagðir iðulega við mig „hann
pabbi þinn“ en í raun meintir þú
„hann afi þinn“. Þegar ég leið-
rétti þetta við þig komstu vana-
lega að mér, knúsaðir saman á
mér andlitið, kysstir og sagðir:
„Æi, þú veist hvað ég meina, þú
ert strákurinn okkar.“ Þannig
voru samskipti okkar, kærleiks-
rík og einstök alla tíð. Þú tókst
mér sem syni, enda var ég mikill
heimalningur hjá ykkur alltaf og
daglegar heimsóknir alveg þar til
ég fór suður í nám. Eftir það kom
ég reglulega og heimsótti þig
þegar ég kom á Krókinn. Ég gat
alla tíð rætt við þig um hluti sem
ég gat ekki rætt við aðra. Þú
gafst alltaf góð ráð, hughreystir
mig ef á því þurfti að halda og
stappaðir í mig sjálfstrausti. Bak-
landið var alltaf til staðar, alla tíð.
Eftir að ég kom suður fór ég
reglulegar ferðir á Krókinn og
gisti þá ýmist á Skagfirðinga-
brautinni eða í foreldrahúsum.
Sjálfsagt hafa gistinæturnar ver-
ið fleiri heima hjá ömmu. Ég
mátti helst passa mig á því að
minnast ekki á neitt sem mig
vantaði í samtölum okkar og tók
meðvitaða ákvörðun um að vera
ekkert að flagga því þegar ég við
ræddum saman. Þú varst alltaf
svo boðin og búin að rétta fram
hjálparhönd alltaf hreint, hlaðin
ást og umhyggju alla tíð gagn-
vart þínum nánustu. Myndir af
öllum börnunum voru þér sem
gull og gáfu þér mikið. Lýsandi
fyrir þá ást sem þú hafðir í hjart-
anu.
Eilíft þakklæti er sennilega
ekki nægjanlega sterkt að orði
komist þegar ég hugsa til baka.
En ég er óendanlega þakklátur
að hafa haft þig sem ömmu mína.
Ég væri ekki sá sem ég er í dag ef
það væri ekki fyrir þig, ykkur
tvö. Þú varst einstök á svo marg-
an hátt. Ef einhver hefði master í
því að vera frábær amma varstu
komin með nokkrar gráður af
hæsta kalíberi. Einstök.
Þakklæti
Farin ertu í ferðalag,
Falleg sál í bjartan dag,
Minningar sem aldrei mást,
Með hjartað fullt af ást.
(Ólafur Heiðar Harðarson)
Ég elska þig, knúsaðu afa frá
mér elsku amma mín.
Góða ferð og takk fyrir allt.
Ólafur Heiðar.
Í dag kveðjum við góða vin-
konu okkar, föðursystur og lífs-
kúnstner, Guðrúnu Svanbergs-
dóttur – Gunnu frænku á
Króknum.
Gunna frænka var alveg ein-
stök manneskja að svo mörgu
leyti. Hún var tignarleg kona,
góður dansari, hafði gaman af
góðum skemmtunum, hljóm-
borðsleikari af guðs náð og
stangveiðimaður góður. Líkams-
rækt stundaði hún af kappi og
synti mikið enda hress á líkama
sem sál alla ævi. Gunna var
stundum skemmtilega utan við
sig, sem kryddaði tilveruna því að
hún lá ekkert á skondnum atvik-
um sem hún lenti í. Gunna lifði líf-
inu lifandi og gerði tilveruna fyrir
okkur hin ætíð skemmtilega og
litríka.
Jeminn eini – ertu að meina
það – segðu mér aðeins meira –
er þetta satt? og svo kom dillandi
hlátur með athugasemdum um
málið út frá alveg sérstöku sjón-
arhorni manneskju sem var með
kímni og skopskyn í hæsta gæða-
flokki og sá tilveruna í svo
skemmtilegu og björtu ljósi. Þeg-
ar Gunna varð ekkja 72 ára og
jeppinn sem Óli hennar hafði allt-
af keyrt og hún verið farþegi í
stóð í hlaði bílstjóralaus fór
Gunna í ökutíma og lærði að
keyra jeppann og hélt áfram
ótrauð með lífið og tilveruna.
Við minnumst með hlýhug
góðra samverustunda og þátt-
töku hennar í lífi dætra okkar
meðan þær ólust upp á Sauðár-
króki. Það var ómetanlegt fyrir
þær að eiga Gunnu frænku í
næsta nágrenni. Fyrir alla góð-
vild og góðar stundir þökkum við
nú.
Sonum hennar, þeim Gísla, Óla
og Bassa, og fjölskyldum þeirra
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Gunnhildur, Ársæll
og dætur.
Guðrún Ingibjörg
Svanbergsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Lífið er ekki sanngjarnt,
dagar koma og þá er þetta
búið.
Jón Óli Birgisson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
MAGNÚS ÞORSTEINSSON
skipstjóri,
Hæðargarði 29,
Reykjavík,
lést hinn 26. júlí 2015 á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin fer
fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 10. ágúst kl. 13.
.
Helga Guðbjörnsdóttir,
Guðbjörn Magnússon, Elín Birna Sigurgeirsdóttir,
Þorsteinn H. Magnússon, Guðrún M. Jóhannsdóttir,
Birna G. Magnúsdóttir,
Magnús S. Magnússon, Guðrún J. Óskarsdóttir,
Gunnlaugur Magnússon, Margrét Aðalsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
INGIMAR KRISTJÁNSSON,
Vallarbraut 5,
Hafnarfirði,
sem lést á Landakotsspítala
29. júlí, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 10. ágúst kl. 13.
.
Kristín Gunnbjörnsdóttir
Ingimar Ingimarsson Silvía Kristjánsdóttir
Vilhjálmur Gunnbjörn Vilhjálmsson María Jakobsdóttir
Anna María Vilhjálmsdóttir
og barnabörnin.
Elskulegur faðir okkar, afi, langafi og
tengdafaðir,
EINAR JÓSTEINSSON,
lést á Landspitalanum að kvöldi 4. ágúst.
Hann verður jarðsunginn frá Grensáskirkju
föstudaginn 14. ágúst kl. 15.
.
Ingibjörg Einarsdóttir, Emil Þór Emilsson,
Árni Einarsson, Ásta Ísberg,
Jósteinn Einarsson, Guðbjörg Þóra Andrésdóttir,
Lilja Einarsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN KJARAN BREMNER,
Norwich,
Englandi,
lést sunnudaginn 2. ágúst í Norwich.
Minningarathöfn fer fram frá Garðakirkju þriðjudaginn
11. ágúst kl. 15. Útför hennar fer fram í Norwich 19. ágúst.
.
Ingvar Björn Ólafsson, Hulda Maggý Gunnarsdóttir,
Jón Árni Ólafsson, Kristín Ásmundsdóttir,
Gunnar Þórarinn Ólafsson, Catrina Hendry,
Kristín Kjaran Baker, Michael Moore,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
bróðir,
GEORG ÓLAFUR GUNNARSSON
verkfræðingur,
Reykjavík,
er látinn. Útförin fer fram frá Fella-
og Hólakirkju föstudaginn 14. ágúst kl. 13.
.
Katrín Ólöf Georgsdóttir,
Guðrún J. Georgsdóttir, Runólfur G. Benediktsson,
Stefán Georgsson, Margrét Geirsdóttir,
barnabörn og systkin.
Bróðir minn,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON,
Kastalagerði 7,
áður Auðarstræti 15,
lést 23. júlí. Útförin hefur farið fram.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem
komu að umönnun hans á fyrrnefndum heimilum.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Steinar Guðmundsson.