Morgunblaðið - 08.08.2015, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
Ástkær eiginkona mín, systir og
móðursystir,
SIGRÍÐUR ODDSDÓTTIR,
Dunhaga 11,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 25. júlí
2015. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
.
Eiríkur Hafsteinn Sölvason,
Pálína Oddsdóttir,
Oddrún Kristjánsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
vegna andláts og útfarar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
SIGURVEIGAR ERLINGSDÓTTUR
frá Ásbyrgi,
Lundi 1, Kópavogi.
.
Sigrún Jónasdóttir, Björn E. Johannessen,
Helga Jónasdóttir, Tómas Þór Tómasson,
Jón Erlingur Jónasson, Védís Jónsdóttir,
Úlfhildur Jónasdóttir, Þorsteinn S. Karlsson
og barnabörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát ástkærs föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS SVEINSSONAR,
fyrrverandi kaupfélagsstjóra í Keflavík.
.
Ragnheiður Gunnarsdóttir, Ægir Magnússon,
Sigurbjörn Gunnarsson, Jenný S. Gunnarsdóttir,
Gísli B. Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Alúðar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför
TRAUSTA SKÚLASONAR,
Syðra-Skógarnesi.
.
Guðríður Kristjánsdóttir
og fjölskylda.
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma, langamma og langalangamma,
SVEINBJÖRG WIUM,
lést á Hrafnistu Reykjavík 24. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
.
Petra Baldursdóttir, Jón R. Ragnarsson,
Pétur Hans Baldursson, Hulda Haraldsdóttir,
Hafsteinn Baldursson,
Heimir Baldursson , Ingibjörg Dís Gylfadóttir
og fjölskyldur.
Við þökkum af heilum hug hlýjar kveðjur og
auðsýnda samúð við andlát og útför okkar
ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og
afa,
DR. RAGNARS SIGBJÖRNSSONAR
prófessors,
Leirutanga 53, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
deilda 11B og 11E á Landspítalanum fyrir einstaka alúð og
umhyggju.
.
Bjarnveig Höskuldsdóttir,
Anna B. Ragnarsdóttir, Höskuldur H. Gylfason,
Sólveig Ragnarsdóttir, Hreiðar Ö. Z. Stefánsson,
Bryndís Ragnarsdóttir, Guðjón I. Gunnlaugsson
og afabörnin Eva Lind, Nína, Óskar,
Ragnar Bjarni, Fjóla Rut og Arna Sól.
www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898-5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Elskuleg mág-
kona okkar er látin
langt fyrir aldur
fram. Skyndilegt fráfall hennar
er gríðarlegt áfall fyrir alla fjöl-
skylduna og það er sárara en
orð fá lýst að kveðja hana í dag.
Við hittum Brynju í fyrsta
skipti þegar hún kom með
Ragnari bróður okkar í barna-
afmæli í fjölskyldunni árið 2002.
Strax í þessu fyrsta fjölskyldu-
boði kom í ljós hversu opin hún
var og skemmtileg. Við munum
vel hversu dugleg og ófeimin
hún var að spjalla og kynnast
okkur og að loknum þessum
fyrsta degi var hún orðin ein af
fjölskyldunni.
Brynja var framkvæmdasöm,
drífandi og jákvæð. Starf henn-
ar var helgað því að bæta sam-
skipti fólks og berjast gegn ein-
elti á vinnustöðum, en á því
málefni hafði hún brennandi
áhuga. Hún vildi gera gagn og
hjálpa fólki. Hún hafði þegar
komið miklu í verk og var með
margt fleira á prjónunum. Aðrir
munu vonandi halda starfinu
áfram og halda hugsjón hennar
á lofti.
Brynja og Ragnar áttu mjög
vel saman og ástin milli þeirra
var öllum ljós. Þau voru bæði al-
in upp í Fossvoginum og því var
gleðilegt að fylgjast með þeim
flytja í Huldulandið og búa fjöl-
Brynja
Bragadóttir
✝ Brynja Braga-dóttir fæddist í
Reykjavík 20. mars
1972. Hún varð
bráðkvödd á heim-
ili sínu þann 25. júlí
2015. Útför Brynju
fór fram 7. ágúst
2015.
skyldunni heimili
þar. Þau unnu sam-
an að ýmsum um-
bótum á heimilinu
og í garðinum og
alltaf var Brynja
glöð, jákvæð og
hvetjandi.
Þegar stelpurnar
Inga Björk og Val-
gerður komu í
heiminn kom í ljós
hversu frábær móð-
ir Brynja var og þau Ragnar
voru samhent í uppeldi þeirra.
Stelpurnar voru það mikilvæg-
asta í lífi Brynju og hún umvafði
þær hlýju og kærleik.
Við fórum stundum saman í
sumarbústað og útilegur og eig-
um margar góðar minningar frá
þeim ferðum. Brynja var bros-
mild og glaðlynd og skemmti-
legur ferðafélagi. Hún hafði ein-
staklega góða nærveru og öllum
leið vel í návist hennar.
Missir Ragnars, Ingu Bjark-
ar, Valgerðar og allrar fjöl-
skyldu Brynju er mikill. Sorgin
og söknuðurinn á eftir að vera
erfiður og enginn getur komið í
stað mömmu.
Elsku Ragnar, Inga Björk og
Valgerður, þið verðið aldrei ein.
Þið eruð umvafin englum eins
og Inga Björk söng svo fallega í
kirkjunni síðustu helgi og við
munum líka öll styðja ykkur af
öllum mætti.
Við erum þakklát fyrir að
hafa kynnst Brynju og hún
verður ávallt hjá okkur, í hugum
okkur og hjörtum og gegnum
yndislegu stelpurnar sínar tvær.
Við kveðjum hana með miklum
söknuði.
Guðmundur, Bergþóra,
Guðrún og fjölskyldur.
✝ Rósa Guð-munda Snorra-
dóttir fæddist að
Brekkum í Mýrdal
3. september 1927.
Hún lést á Land-
spítala Háskóla-
sjúkrahúsi að Vífils-
stöðum 24. júlí
2015.
Foreldrar Rósu
voru Snorri Guð-
mundsson, f. 21.
ágúst 1902, d. í október 1929, og
Þorbjörg Guðmundsdóttir, f. í
Kasthúsum í Reykjavík 29. ágúst
1905, d. 10. febrúar 1960. Stjúp-
faðir Rósu var Ólafur Guð-
mundsson Vestmann, f. 25. des-
ember 1906, d. 15. apríl 1970.
Systkini Rósu sammæðra eru:
Theódór Snorri, f. 14. maí 1933,
kvæntur Margréti Sigurbjörns-
dóttur. Sigurveig Þórey, f. 30.
mars 1935, d. 17. júlí 1935.
Snorri Sigurvin, f. 10. ágúst
1938, kvæntur Elínborgu Ein-
arsdóttur. Ingi Steinn, f. 22. apr-
íl 1942, kvæntur Guðnýju Stef-
aníu Karlsdóttur. Ellen Margrét,
f. 15. desember 1943, gift Guð-
mundi Karli Guðfinnssyni. Þór
Guðlaugur, f. 29. október 1947,
kvæntur Margréti Sigurbergs-
dóttur.
Rósa giftist þann 24. október
1950 Hilmari Rósmundssyni frá
Siglufirði, fyrrv. útgerðarmanni
í Vestmannaeyjum, f. 16. októ-
ber 1925. Þau slitu samvistum
árið 1986. Dætur Rósu og Hilm-
ars eru Hafdís Björg, f. 29. júní
1953, og Sædís María, f. 5. febr-
úar 1960. Sambýlismaður Haf-
dísar er Gottskálk Ágúst Guð-
jónsson, f. 11. júlí 1955. Synir
Hafdísar og fv. eiginmanns
hennar eru: 1) Hilmar Þór, f. 4.
júlí 1974, d. 11. apríl 1991. 2)
Hafþór Bjarni, f. 13. október
1978, kvæntur Guðríði Sæ-
mundsdóttur, börn Sara Dögg, f.
1999, Aron Atli, f. 2002, Sindri
Þór, f. 2003 og Sæbjörg Þóra, f.
2011. 3) Hlynur Sæberg, f. 17.
mars 1980, kvæntur
Sigurbjörgu Eyfeld
Skúladóttur, synir
Hilmar Máni, f.
2006, Haukur Snær,
f. 2006 og Brynjar
Már, f. 2013. 4)
Heiðar Elís, f. 8.
nóvember 1985, í
sambúð með Birg-
ittu Rán Friðfinns-
dóttur, synir Gunn-
ar Helgi, f. 2008 og
Kristján Örn, f. 2012.
Eiginmaður Sædísar er Guð-
laugur Sigurgeirsson, f. 16. júlí
1956. Synir þeirra eru: 1) Sig-
urgeir, f. 29. ágúst 1976, alinn
upp hjá Rósu og kvæntur Þór-
unni Bolladóttur, synir Aron
Fannar, f. 1998, Ísak Andri, f.
2003 og Guðlaugur Breki, f.
2006. 2) Einir, f. 1. febrúar 1984,
í sambúð með Hildigunni Sigurð-
ardóttur. 3) Birkir, f. 1. febrúar
1984, kvæntur Heiði Hallfreðs-
dóttur, dætur Helena Björk, f.
2010, og Viktoría Kara, f. 2014.
Rósa ólst upp í Vest-
mannaeyjum og, ef undan eru
skilin nokkur ár eftir gos, bjó
þar til ársins 1987, er hún flutti í
Garðabæinn þar sem hún bjó sér
fallegt heimili allt til dánardags.
Rósa var um árabil virk í ýmsu
félagsstarfi og sinnti góðgerð-
armálum af miklum áhuga og
dug. Hún tók m.a. á árum áður
virkan þátt í starfi kvenfélagsins
Heimaeyjar og var ein af stofn-
endum Vorsins, styrktarfélags
þroskaheftra. Rósa var hand-
verkskona mikil og lék hvers
kyns prjóna- og saumaskapur í
höndum hennar. Hún vann ýmis
störf í gegnum tíðina og naut sín
best þar sem tækifæri gafst til að
hlúa að þeim sem minna máttu
sín. Rósa var mikil áhugamann-
eskja um knattspyrnu og ferða-
lög og fór á árum áður ófáar
ferðir um hálendi landsins á veg-
um Ferðafélags Íslands.
Að ósk Rósu hefur útför henn-
ar farið fram í kyrrþey.
Komið er að kveðjustund, elsku
mamma hefur kvatt þennan heim
87 ára að aldri. Það er hár aldur og
margs að minnast. Ég man fyrst
eftir mér á Brimhólabrautinni,
uppi á lofti sitjandi á eldhúsborð-
inu og horfa út um kvistgluggann
og mömmu flétta á mér síða hárið
og setja í það slaufu með silki-
borða. Það eru forréttindi að alast
upp í Eyjum og eiga góða for-
eldra. Á þessum tíma áttu foreldr-
ar mínir ekki bíl og fór ég oft í
sendiferðir fyrir mömmu niður á
Boðaslóð, þar sem amma mín,
Þorbjörg, bjó og afi minn, Ólafur,
og á ég margar góðar minningar
þaðan. Þegar ég var sjö ára dó
amma Þorbjörg. Á þessum tíma
eignaðist ég langþráða systur,
hana Sædísi Maríu. Mamma hugs-
aði vel um sitt heimili og var afar
flink í höndunum og hafði gaman
af að hafa okkur systur fínar,
saumaði á okkur fallega kjóla og
kápur, svo þegar hún eignaðist
prjónavél prjónaði hún á okkur
margar flottar peysur. Var hún
ein af stofnendum Vorsins, sem
var fyrir styrktarfélag þroska-
heftra.Var það hópur kvenna í
Eyjum sem vann fallega handa-
vinnu sem var síðan seld á basar
og andvirðið notað til styrktar
þroskaheftum og fjölskyldum
þeirra. Hún var einnig félagi í
Kvenfélaginu Heimaey. Foreldrar
mínir bjuggu eftir gos á Illuga-
götu og þar hafði mamma mikinn
áhuga á garðrækt og fékk garð-
urinn viðurkenningu fyrir glæsi-
leika. Flutti mamma síðar í Garða-
bæinn þar sem hún undi sér vel.
Hjá henni ólst upp Sigurgeir Guð-
laugsson og var hann ömmu sinni
mikill sólargeisli og reyndist hann
henni ávallt vel. Mamma hafði alla
tíð gaman af fótbolta og horfði hún
síðari ár á íþróttarásirnar. Síðustu
árin voru henni erfið vegna veik-
inda og skiptumst við systurnar
og fjölskyldur okkar á að heim-
sækja hana, hafði hún gaman af að
fá langömmubörnin í heimsókn.
Ég kveð þig, elsku mamma, með
söknuði, þakka allar góðar stundir
og treysti því að drottins eilífa ljós
lýsi þér. Þín
Hafdís Björg.
Elsku amma Rósa, þrátt fyrir
þá staðreynd að þú hafir lifað
langri og stórmerkilegri ævi og
hafir náð fremur háum aldri, þá er
þungbært að hugsa um að þú sért
ekki lengur á meðal okkar. Það er
erfitt að vita til þess að þú sért
ekki lengur niðri í Löngumýri að
drekka þitt kaffi úti á verönd
stundvíslega klukkan 16 á hverj-
um degi, furðulegt að maður eigi
ekki eftir að koma aftur með
kvöldmat til þín þegar mamma er
búin að kokka upp glæsilega mál-
tíð og skrítið að amma Rósa muni
ekki sitja í sætinu sínu í Hörgsl-
undinum næsta aðfangadags-
kvöld.
Amma Rósa er farin og mikill
söknuður situr eftir, en á sama
tíma mikill fjöldi minninga um ein-
staka konu. Allar þessar minning-
ar um þig hafa rauðan þráð: þær
eru allar dásamlegar, hlýjar og
yndislegar. Þetta eru minningar
sem hefjast á okkar bernskuárum
og fjölgar þeim svo stöðugt alveg
þar til fyrir einni og hálfri viku síð-
an þegar þú hófst ferðalagið
mikla. Þegar við rifjum upp allar
þessar minningar kemur svo of-
boðslega sterkt fram hversu kær-
leiksrík, þolinmóð, jákvæð og dug-
leg manneskja þú varst, en
kannski fyrst og fremst hversu
góðhjörtuð og hlý þú varst í garð
okkar „dengsanna“, eins og þú
kallaðir okkur svo oft, og okkar
stelpna og dætra Birkis. Þú sást
alltaf til þess að hamingja okkar
væri í fyrirrúmi og vildir alltaf vita
hvað við værum að bardúsa í dag-
legu lífi. Börnin komu alltaf fyrst
Rósa Snorradóttir