Morgunblaðið - 08.08.2015, Síða 34

Morgunblaðið - 08.08.2015, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015 Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Við leitum að kraftmiklum einstaklingum í spennandi og krefjandi störf í skemmtilegu og alþjóðlegu starfsumhverfi. Við viljum fólk með framúrskarandi samskiptahæfileika og markvissan áhuga á að ná góðum árangri í starfi. Umsóknir ásamt ferilskrá óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsoknir, eigi síðar en 18. ágúst 2015. Nánari upplýsingar veita: Pétur Ómar Ágústsson I Mannauðsstjóri – markaðs- og sölusvið I poa@icelandair.is Matthías Sveinbjörnsson I Forstöðumaður – tekjustýring I matthias@icelandair.is Icelandair er stór vinnustaður þar sem ríkir góður starfsandi. Við sækjumst eftir að fá í lið með okkur jákvæða einstaklinga með brennandi áhuga á verkefnum dagsins og metnað til að ná góðum árangri til lengri tíma. SÉRFRÆÐINGUR Í TEKJUSTÝRINGU Icelandair leitar að eldklárum sérfræðingi í tekjustýringardeild á sölu- og markaðs- sviði. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á tekjustýringu og öllu sem tengist starfi sérfræðings á því sviði. STARFSSVIÐ  Tekjustýring markaðar  Yfirumsjón með birgðastýringu  Vinnur að tekjuvernd (e. revenue integrity)  Greinir og túlkar sölu- og bókanaupplýsingar  Þróar og leiðir aðgerðir á sviði verðlagningar og birgðastýringar til að hámarka tekjur  Leitast við að mæla árangur verkefna og aðgerða HÆFNISKRÖFUR  Háskólapróf í verk-, hag-, eða viðskiptafræði eða sambærilegum greinum  Framhaldsmenntun er æskileg  Góð kunnátta í ensku og íslensku  Framúrskarandi greiningarhæfni  Samskiptafærni og hæfni til að vinna í hóp  Vönduð og nákvæm vinnubrögð  Fróðleiksfýsn Icelandair óskar eftir að ráða öfluga liðsmenn í krefjandi störf í hröðu og síbreytilegu umhverfi í alþjóðlegum flugrekstri. GAGNASÉRFRÆÐINGUR Í TEKJUSTÝRINGU Icelandair leitar að kröftugum liðsmanni í nýtt starf gagnasérfræðings í tekjustýringar- deild félagsins á sölu- og markaðssviði. Viðkomandi þarf að hafa einlægan áhuga á gögnum og úrvinnslu þeirra. STARFSSVIÐ  Greining og nýting gagna við hámörkun tekna  Umsjón og aðstoð við greiningu, meðhöndlun, birtingu og notkun gagna HÆFNISKRÖFUR  Háskólapróf í tölvunar- eða verkfræði eða sambærilegum greinum  Framhaldsmenntun er æskileg  Góð tök á gagnagrunnum, þekking á Data mining og Big data  Þarf að búa yfir góðri þekkingu á forritunarmálum  Sérfræðiþekking í OLAP  Greiningarhæfni  Hæfileikar í að vinna í hóp  Vönduð og nákvæm vinnubrögð  Þekkingarþorsti  Kostur að hafa þekkingu á bestunarfræðum ÍS L E N S K A S IA .I S IC E 75 53 3 08 /1 5 LIÐSSTYRKUR Í TEKJUSTÝRINGU Blönduósbær Grunnskólakennarar Sérkennara vantar til starfa við Blönduskóla. Um er að ræða afleysingu, eitt skólaár, 100% stöðu frá 1. ágúst 2015. Nánari upplýsingar er að finna á vef Blönduósbæjar, blonduos.is Framkvæmdastjóri – Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra FRÍ. Leitað er að einstaklingi með mikla rekstrarreynslu, þekkingu og færni til að stýra daglegri starfsemi FRÍ. Helstu verkefni: • Ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu FRÍ • Framkvæmd ákvarðana stjórnar FRÍ • Gerð fjárhagsáætlana og eftirlit með útgjöldum FRÍ • Færsla bókhalds og sérsjóða. • Uppgjör og skýrslugerð til ÍSÍ, sambandsaðila og erlendra aðila. • Skipulagning á þátttöku í erlendum mótum. • Samningagerð og ábyrgð á efndum samninga sem FRÍ er aðili að. • Markaðs- og þjónustustörf í samstarfi við styrktaraðila FRÍ • Kynning á starfsemi FRÍ í samstarfi við stjórn FRÍ • Þjónusta við starfsnefndir og sambandsaðila FRÍ • Upplýsingagjöf og ritun frétta á heimasíðu FRÍ. • Þátttaka í samstarfi FRÍ við erlenda aðila. Menntun og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Menntun í rekstrarfræðum er kostur. • Reynsla af skipulagningu, stjórnun og rekstri er mikilvæg. • Reynsla og þekking á rekstri íþrótta- eða ungmennafélaga sem starfrækja frjálsíþróttir er kostur. • Reynsla af færslu bókhalds og reikningshaldsuppgjörum. • Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli. Skilningur á einu Norðurlandamáli kostur. • Við leitum að skipulögðum, þjónustulunduðum og árangursdrifnum einstaklingi með áhuga á að efla frjálsíþróttastarfið í landinu í samstarfi við sambandsaðila og stjórn FRÍ. Umsóknum þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni í starfið og ástæðu umsóknar. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. október 2015 en kostur ef hægt er að hefja störf fyrr. Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2015. Umsóknir sendist til: Stjórnar Frjálsíþróttasambands Íslands, Engjavegi 6, 104 Reykjavík. fri@fri.is Vélavörður Vísir hf óskar eftir að ráða Vélarvörð til afleysingar á Fjölnir GK657 . Fjölnir er línuveiðiskip með beitningarvél. Umsækjendur sækja um á heimasíðu Vísis www.visirhf.is. Atvinnuauglýsingar 569 1100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.