Morgunblaðið - 08.08.2015, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
Laufey Jörgens-dóttir er fæddog uppalin í
Vestmannaeyjum, yngst
fjögurra systkina. Hún
flutti til Reykjavíkur til
náms en Laufey er við-
skiptafræðingur að
mennt með áherslu á
kerfisfræði frá Háskól-
anum í Reykjavík. Hún
hefur starfað hjá
Advania frá útskrift
2001 eða í bráðum 15
ár, sinnt hinum ýmsu
störfum upplýsinga-
tækninnar hjá Advania,
nú sem viðskiptastjóri.
Hún er gift Jónasi
Þór Friðrikssyni, sölu-
og innkaupastjóra hjá
Ísfelli. Þau eiga saman
Óskar Dag, 9 ára og
Auði Erlu, 6 ára og búa
í Grafarvogi þar sem
Fjölnishjartað slær, en
Laufey er einmitt
stjórnarmaður í aðal-
stjórn Ungmennafélags-
ins Fjölnis.
Laufey hefur fjöl-
mörg áhugamál og má nefna golf, fótbolta og handbolta og hún er
einnig annálaður áhugamaður um söngvaskáldið Stefán
Hilmarsson.
„Í tilefni afmælisins ákvað ég að klífa hæsta tind Íslands,
Hvannadalshnjúk, sem ég gerði nú í júní sem og þveraði Eyjafjalla-
jökul skömmu áður sem undirbúning. Þá er fastur liður hjá Eyja-
pæjunni eins og venjulega að fara á Þjóðhátíð í Eyjum og afmælis-
árið í ár var ekki undanskilið.“
Laufey er sjálf lítið fyrir eigið afmæli og hefur því sjaldan haldið
uppá það en í ár verður breyting á. Afmælisdeginum verður fagn-
að heima við með fjölskyldu og vinkonum í miklu skvísuafmælisp-
artíi og nágrannarnir eru hvattir til að vera búnir undir mikið fjör.
Það er aldrei að vita nema maður taki „breik-orminn“ í tilefni
dagsins, en nú er fyrri hálfleik lokið og ekkert nema spennandi
seinni hálfleikur að hefjast, vonandi verður leiktíminn sem lengst-
ur og helst tvíframlengt – því lífið er yndislegt.“
Viðskiptastjórinn Laufey hefur starfað
hjá Advania í nær 15 ár.
Alltaf jafn gaman
á Þjóðhátíð
Laufey Jörgensdóttir er 40 ára í dag
H
alldór Þórðarson
fæddist 8. ágúst 1925
að Vitastíg 8 í
Reykjavík og flutti
þaðan vorið 1929 með
foreldrum sínum að Syðri-Brú í
Grímsnesi, þar sem þau stunduðu
búskap og gestamóttöku til ársins
1941 er þau fluttu að Litluhlíð í
Sogamýri. Halldór lærði vélvirkjun/
járnsmíði við Iðnskólann í Reykja-
vík og útskrifaðist sem vélvirki 1947
og sem vélstjóri frá rafmagnsdeild
Vélskóla Íslands 1951. Hann var
vélstjóri hjá Eimskip 1951-3 og réði
sig þá sem vélstjóri hjá Rafmagns-
veitunni við gangsetningu Írafoss-
virkjunar á æskuslóðum sínum við
Sogið.
Halldór stofnaði vélsmiðjuna
Dynjanda árið 1954 ásamt Gunn-
laugi Steindórssyni og Birni Ás-
mundssyni á Írafossi en seldi þeim
sinn hlut í smiðjunni 1961. Þá fór
Halldór að vinna hjá heildverslun
G. Þorsteinsson og Johnson, og
varð síðan bílasali og síðar sölu-
stjóri bíla hjá Agli Vilhjálmssyni
hf., við Hlemm, þar sem hann var í
15 ár. Frá Agli fór Halldór til Kidda
bakara vinar síns, fyrst í K. Al-
bertsson, sem var heildverslun sem
flutti inn efni fyrir bakarí, og svo
hjá Brauði hf. og Myllunni í Skeif-
unni. Þarna var Halldór í 22 ár og
hætti 75 ára árið 2000 eftir hjarta-
skurð sem hann fór í það ár.
Halldór gekk í Oddfellow-regluna
1954 í stúkuna Ingólf nr. 1 og svo
stúkuna Þormóð goða nr. 9 við
stofnun hennar og er þar enn. Hann
var yfirmeistari í Þormóði goða í
tvö ár og var gerður heiðursfélagi
árið 2004.
Félagi nr. 2 í Stanga-
veiðifélaginu
Halldór lærði ungur að renna
fyrir fisk á Syðri-Brú. Hann gekk í
Stangaveiðifélag Reykjavíkur árið
1944 og er þar enn, félagsmaður nr.
2. Hann var í stjórn félagsins og ár-
nefndum um árabil og hefur hlotið
gullmerki félagsins og er heiðurs-
félagi. Hann er einnig heiðursfélagi
í Sjóstangaveiðifélagi Reykjavíkur.
Halldór var einn af stofnendum
badmintondeildar KR og sat í
fyrstu stjórn deildarinnar.
Stangaveiði og skotveiði hafa átt
stóran þátt í lífi Halldórs frá blautu
barnsbeini, ekki aðeins sem veiði-
manns heldur einnig sem leiðsögu-
manns og leiðbeinanda. Hefur hann
kennt fjölmörgum „tökin á
tækninni“ við stangveiðar og er þar
jafnvígur á flest veiðarfæri. Bæði
erlendir og innlendir stangveiði-
menn hafa átt hann sem hauk í
horni, ekki síst fjölskylda og vinir.
Fjölskylda
Eiginkona Halldórs er Ingibjörg
Þórólfsdóttir, 25.7. 1927, d. 9.11.
2005, húsmóðir og ritari. Foreldrar
hennar: Þórólfur Guðjónsson bóndi
í Innri-Fagradal í Saurbæjarhreppi,
Dal., f. 21.8. 1892 d. 2.8. 1965 og
Halldór Þórðarson vélstjóri – 90 ára
Fjölskyldan Halldór og Ingibjörg á góðri stundu með börnum sínum Auðbjörgu, Ágústu, Þórólfi og Guðmundi.
Lærði ungur að veiða
Hjónin Áslaug Pálsdóttir
og Brynjólfur Gíslason í
Borgarnesi (t.h.) og Guð-
laug Pálsdóttir og Vig-
fús Guðmundsson í
Garðabæ áttu gullbrúð-
kaup í gær, 7. ágúst. Þau
voru gefin saman í
Reyniskirkju í Mýrdal.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Garðabær Mikael Ragnarsson fæddist 8. ágúst 2014. Hann vó 4.950 g og var 57
cm langur. Foreldrar hans eru María Gomez og Ragnar Már Reynisson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
www.gilbert.is
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
LÍKA FYRIR DÖMURNAR