Morgunblaðið - 08.08.2015, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Taktu
bílinn með
til Færeyja og
Danmerkur 2015
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
Bókaðu
núna!
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu þér í léttu rúmi liggja þótt þú
getir ekki keypt það sem hugurinn girnist. Þú
ert listhneigð persóna sem sækist stöðugt
eftir nýjum ævintýrum.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekki ummæli annarra í þinn garð
skemma fyrir þér daginn. Njóttu samt lofsins
því þú átt það skilið. Sestu niður, kannaðu
stöðuna og leiktu svo þeim leik sem þér þykir
bestur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vegna þess hve auðveldlega þú
heillar aðra skaltu ekki hika við að biðja um
greiða. Þú hugsar hratt og hefur miklar gáfur
til að bera.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú munt eiga mikilvægar samræður
við foreldra þína, yfirmenn eða aðra yfirboð-
ara í dag. Ef einhver er að leyna þig einhverju
muntu komast að því.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hún getur komið þér til hjálpar, að-
stoðað þig við að fá nýja vinnu eða sparað
þér peninga á einhvern hátt. Þú munt kunna
að meta allan þann tíma sem þú hefur fyrir
sjálfa/n þig í dag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þýðingarmiklir einstaklingar leggja sig
fram við að mynda sambönd. Utan þess er
einhver, eða einhverjir, sem þú þarft að gefa
tíma svo allt fari eins og best verður á kosið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt vísan stuðning vinnufélaga þinna
ef þú leitar eftir honum. Njóttu hans því þú
átt allt gott skilið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur ákveðnar hugmyndir
um hvernig siðsamt og hamingjusamt líf eigi
að vera. Fallegar hugsanir geta af sér fallegan
árangur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Líf þitt er þrungið spennu í dag.
Treystu á sjálfa/n þig og haltu þínu striki
ótrauð/ur. Að eignast þýðingarmikla kunn-
ingja og góð sambönd byrjar með því að
hugsa vel til annarra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu að taka á vandamálum
sem tengjast bílnum þínum. Hlutirnir eru
stöðugt að breytast og því er endurmat skyn-
samlegt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að létta á hjarta þínu og
skalt gera það við einhvern þér nákominn.
Ekki láta nokkurn beita þig þrýstingi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hittu vin sem alltaf fær klikkuðustu
hugmyndirnar. Drífðu endilega í því en
reyndu þó að varast allar öfgar.
Síðasta gáta var sem endranæreftir Guðmund Arnfinnsson:
Langvarandi leiður er.
Líta í flekk hann megum vér.
Þekkt ein kona þaðan var.
Þar sér undu stúdentar.
Árni Blöndal svarar:
Norðangarður langur, leiður.
Liggja á túni garðabreiður.
Þuru í Garði þjóðin metur.
Þá er Garður fræðasetur.
Hér kemur lausn Hörpu á
Hjarðarfelli:
Grimmur norðangarður er,
garðar allir fjúka hér.
Þekkt frá Garði Þura var,
þar á Garði stúdentar.
Helgi Seljan leysir gátuna þannig:
Norðangarður napur er,
nú í garða heyið fer.
Frækin Þura í Garði þótti,
en þessi Garðsböll aldrei sótti.
Helgi R. Einarsson svarar:
Garður rok og rigning er,
við rakstur hey í garða fer,
Þura í Garði þjóðkunn var,
þekktu Garðinn stúdentar.
Arndís Þorvaldsdóttir sendir
þessa lausn:
Rosta garður, rysjótt tíð.
Rifjar flekkinn stúlka fríð.
Flutti Þura ljóðin lýð.
Lásu fræðin ár og síð.
Sjálfum sér svarar Guðmundur:
Norðangarður geisar lengi.
Garður í flekk á túni og engi.
Þura í Garði þjóðkunn var.
Þágu Garðvist stúdentar.
Og lætur limru fylgja:
Í sífellu bumbuna barði
hann Barði í Hljómskálagarði.
„Æ, hættu nú, hálfvitinn þinn!“
hrópaði mannfjöldinn,
og með bumbunni drepinn var Barði.
Enn hamrar Guðmundur járnið
og hér kemur gáta:
Fljótt það breytist eftir árstíðonum.
Af ýmsu pata hafa sumir menn.
Um fengitímann fagna ærnar honum.
Feikna áhlaup gerir kannski senn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gekk um garð og gat þess ei
Í klípu
SNYRTIPINNAR ERU ÖMURLEGIR Í
ATVINNUVIÐTÖLUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG GET LOFAÐ ÞVÍ AÐ ÉG VAKNA VIÐ HIÐ
MINNSTA HLJÓÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... vænleg.
VERUM
VINIR
STRJÚKA
MALLANN?
EKKI
VARAST
HUNDINN
ALDREI SLÁ MANN SEM
SNÝR BAKI Í ÞIG, SONUR
SÆLL...
...ÞAÐ GÆTI
GEFIÐ MANNINUM
FYRIR AFTAN ÞIG
HUGMYNDIR!
GERÐU ÞAÐ!!!
SLÖKKTU Á
ÞESSU OG FÁÐU
ÞÉR SÆTI!
NÆTURVÖRÐUR
ÓSKAST
JÁ!
Það er kúnst að vera í sumarfríi ogþað þarf að læra eins og allt
annað í lífinu. Það vill Víkverji að
minnsta kosti meina. Að sjálfsögðu
segir hann þetta því hann er að læra
að slaka á í sumarfríinu þegar eng-
inn þarf að vera mættur á tilteknum
tíma á einhvern stað.
x x x
Víkverji er ekki ólíkur öðrum aðþví leyti að hann vill alltaf hafa
eitthvað fyrir stafni, sem er í sjálfu
sér ekki slæmt. Hins vegar er það
kúnst að láta tímann líða án þess að
vera með eitthvað allt of mikið
skipulagt langt fram í tímann.
x x x
Þegar líða fór á seinni hlutasumarfrísins naut Víkverji þess
enn betur að vera í fríi. Hann var
farinn að læra meira inn á það að
slaka á. Það má eiginlega segja að
hinni fullkomnu slökun hafi verið
náð um síðust helgi, um versl-
unarmannahelgina. Þá var Víkverji í
Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni.
Honum finnst sjaldan eins gott að
vera í höfuðborginni eins og einmitt
um þessa helgi. Þá eru fáir á ferli og
það má allt að því heyra saumnál
detta í úthverfum bæjarins.
x x x
Það var gott að aðlagast skarkalaborgarinnar smám saman aftur
eftir langa sumardvöl í sveitasæl-
unni. Þar sem vaknað var við fagran
fuglasöng á hverjum morgni.
x x x
Víkverji lagði leið sína í miðbæinnog þar leið honum eins og hann
væri í útlöndum. Þar voru útivist-
arlegir ferðamenn á hverju götu-
horni. Víkverji lék sér að því að loka
augunum og hlusta, og viti menn,
varla heyrðist töluð íslenska heldur
mýmörg önnur tungumál.
Það var þó einn staður þar sem Ís-
lendingarnir voru í meirihluta. Það
var í sundlaugunum. Þar kepptust
allir við að leika við afkvæmin af
miklum móð og gleðja á allan mögu-
legan hátt. Eitt er þó nokkuð ljóst,
að Víkverji er alveg endurnærður
eftir þessa rólegheitahelgi. víkver-
ji@mbl.is
Víkverji
Guð vonarinnar fylli yður öllum fögn-
uði og friði í trúnni svo að þér séuð
auðug að voninni í krafti heilags
anda.
Rómverjabréfið 15:13