Morgunblaðið - 08.08.2015, Page 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
Söfn • Setur • Sýningar
Sunnudagur 9. ágúst kl. 14: Leiðsögn um Hvað er svona merkilegt við það?
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
I Ein/Einn-Ljósmyndir Valdimars Thorlaciusar í Myndasal
Fólkið í bænum á Veggnum
Að lesa blóm á þessum undarlega stað –
Vestur-Íslendingar í Stríðinu mikla 1914-1918 á Torginu
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð og kaffihús.
Sýningin Nesstofa-Hús og saga í Nesstofu við Seltjörn,
opið þriðjudaga til sunnudaga frá 13-17
Húsasafn Þjóðminjasafnsins opið víða um land
nánar á http://www.thjodminjasafn.is/minjar-og-rannsoknir/husasafn/
Listasafn Reykjanesbæjar
Huldufley,
skipa- og bátamyndir Kjarvals
„Klaustursaumur og Filmuprjón“
Textíll í höndum kvenna.
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Konur í sögum bæjarins. Brot úr
sagnaþáttum Mörtu Valgerðar.
Bátasafn Gríms Karlssonar
6. júní – 23. ágúst
Opið alla daga 12.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
SAGA - ÞEGAR MYNDIR TALA 22.5. - 6.9. 2015
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSPIL Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl
Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar 25. apríl - 30. ágúst 2015
SUMARTÓNLEIKAR - þriðjudag kl. 20.30
- Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran og Sólveig Anna Jónsdóttir píanó.
Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga.
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015
Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Enginn staður
– íslenskt landslag
Íslensk náttúra séð með augum
átta samtímaljósmyndara.
Listamannaspjall
sunnudag 9. ágúst kl. 14
Claudia Hausfeld og Pétur Thomsen
Keramik – úr safneign
Opið 12-17, fim. 12-21 lokað þri.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort og vaxmynd
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Veitingahúsi Kapers Hádegismatur, kaffi og meðlæti
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
SAFNAHÚSIÐ
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið daglega frá kl. 10-17.
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Opið daglega frá 10-17
GEYMILEGIR HLUTIR
Að safna í söguna
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Lokadagar Alþjóðlegs orgelsumars
í Hallgrímskirkju verða nú um
helgina þegar Andreas Liebig,
organisti dómkirkjunnar í Basel í
Sviss, heldur tvenna tónleika þar
sem verk eftir Liszt, J.S. Bach,
Reger, Franck og Duruflé fá að
hljóma á stóra Klais-orgelið.
„Andreas Liebig hefur verið list-
rænn stjórnandi ýmissa tónleika-
raða og tónlistarhátíða, þar á meðal
Ostwestfälische Orgeltage,
Krummhörner Orgelfrühling og
Internationale Sommerkonzerte
Dornum. Hann heldur reglulega
tónleika við góðan orðstír, situr í
dómnefndum í alþjóðlegum orgel-
keppnum, hefur tekið upp tónlist
Bachs á sögufræg orgel og kennir
masterklassa um víða veröld. Hann
hefur frá árinu 2013 verið yfir-
maður orgeldeildar Landes-
konservatorium í Innsbruck og frá
2014 gegnt stöðu organista við
dómkirkjuna í Basel,“ segir í til-
kynningu. Fyrri tónleikar Andreas-
ar Liebig eru í dag kl. 12 og seinni
tónleikar hans á morgun kl. 17.
Liebig leikur á lokatónleikum Alþjóð-
legs orgelsumars í Hallgrímskirkju
Organisti Andreas Liebig.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Við leggjum áherslu á að vera ólík
þessum hefðbundnu kvikmyndahá-
tíðum. Við viljum blanda ólíkum
listamönnum saman við heimamenn
frá Hólmavík og
færa fólkið sam-
an með því að
horfa á kvik-
myndir,“ segir
Arne Rawe,
framkvæmda-
stjóri kvik-
myndahátíð-
arinnar Turtle
Film Festival
sem fer fram í
Hólmavík dagana 10. til 16. ágúst
næstkomandi.
Fyrir fólkið á Hólmavík
„Þetta er í fyrsta skipti sem há-
tíðin er haldin og við verðum með
ýmiss konar myndir á boðstólum.
Við vildum finna verk sem hentuðu
vel fyrir litla kvikmyndahátíð á
Hólmavík, eitthvað sem myndi
passa hátíðinni en væri samt með
ákveðið skemmtanagildi og myndi
trekkja fólk að. Við ákváðum að
fara leið á milli heimildarmynda og
skáldskapar. Þetta eru ekki beint
Hollywood-„blokkbusterar“ en þó
ekki þurrar heimildarmyndir. Við
erum til að mynda komin í gott
samstarf við Bíó Paradís. Stór hluti
kvikmyndanna sem sýndar verða á
hátíðinni eru því íslenskar,“ segir
Rawe en hann kom hingað fyrst
fyrir sjö árum.
„Ég kom hingað sem listamaður
og vann hérna í einhvern tíma. Ég
festist í raun á Hólmavík og fólkið
þar varð góðir vinir mínir. Ég hef
síðan þá komið þangað margoft,
meðal annars með nemendur mína
frá Þýskalandi. Við viljum líka færa
fólkinu á Hólmavík eitthvað til
baka, þau hafa verið okkur svo góð.
Við fengum því hugmyndina að
standa að kvikmyndahátíð í bænum,
við vonumst líka til þess að það
verði lausn á ákveðnum vanda-
málum bæjarbúa. Það hafa ein-
staklingar flutt úr bænum vegna at-
vinnuleysis og bærinn þarf
ákveðinn stuðning hvað túrismann
varðar. Við vonumst til þess að há-
tíðin hjálpi bænum og bæjarbúum
hvað það varðar,“ segir hann.
Sýna m.a. um borð í báti
„Við reynum að sjálfsögðu að
vera með kvikmyndir sem við, sem
stöndum að hátíðinni, höfum per-
sónulega áhuga á. Við erum þó ekki
stórfyrirtæki, í raun bara hópur
listamanna, og erum því ekki með
mikinn pening á milli handanna.
Þetta er í raun allt unnið í sjálf-
boðastarfi. Við höfum því reynt að
fara ýmsar leiðir til þess að þurfa
ekki að borga himinhá gjöld fyrir
það að fá að sýna verkin,“ segir
Rawe en meðal kvikmynda sem
sýndar verða á hátíðinni má nefna
Something Better to Come, The
Act of Killing, Enemies of Happ-
iness og 20.000 Days on Earth.
Rawe segir einnig að flest þeirra er
standa að hátíðinni séu frá Þýska-
landi.
„Við erum hópur listamanna sem
erum búin að starfa saman í mörg
ár. Flestir í hópnum eru fyrrum
nemendur mínir frá Þýskalandi en
svo erum við auðvitað með heima-
fólk frá Hólmavík til þess að að-
stoða okkur. Samfélagið hér er búið
að vera einkar liðlegt og allir orðnir
nánir. Hér eru líka listamenn í resi-
densíu sem aðstoða okkur við hátíð-
ina,“ segir hann. Rawe kveður
Hólmavík vera fullkominn stað til
þess að halda hátíðina en að hóp-
urinn hafi vissulega velt fyrir sér
öðrum bæjarfélögum á landinu.
„Í fyrsta lagi er fólkið hérna
mjög hlýtt og liðlegt og hér eru
mörg tækifæri. Við vildum setja á
laggirnar kvikmyndahátíð sem á
sér enga líka og skapa einstakt and-
rúmsloft. Hólmavík er mjög vel fall-
in til þess. Það er ekki neitt sér-
stakt kvikmyndahús á Hólmavík og
við verðum bara með einskonar
færanleg kvikmyndabox, eins og við
köllum þau, og getum því sýnt kvik-
myndirnar í nær öllum sölum bæj-
arins. Við munum því sýna verkin í
fiskibátum, gámum og sláturhúsum
svo fátt eitt sé nefnt. Það er mjög
skemmtilegur þáttur í hátíðinni,“
segir hann.
Hátíðin komin til að vera
Rawe segir hátíðina geta staðið
undir ágætis fjölda gesta og að nóg
sé af gistirými á Hólmavík.
„Við verðum einnig með tónlist-
armenn og hljómsveitir sem munu
halda uppi ákveðnu prógrammi á
meðan á hátíðinni stendur. Þetta
verður því ekki bara kvikmynda-
gláp. Það verða skemmtanir og í
raun fullt prógramm alla vikuna.
Við stefnum síðan á að vera einnig
hérna að ári liðnu. Við finnum fyrir
miklum stuðningi og höfum leyst
ákveðin vandamál. Það lítur því allt
mjög vel út og þetta verður að öll-
um líkindum árlegur viðburður. Há-
tíðin er komin til að vera,“ segir
Rawe en þeir sem vilja kynna sér
hátíðina nánar geta heimsótt vef-
svæðið turtle.is.
Skjaldbakan
á Hólmavík
Turtle Film Festival verður haldin í
fyrsta skipti á Hólmavík 10. til 16. ágúst
Fjölbreytt Myndirnar verða sýndar á ýmsum stöðum á Hólmavík, meðal annars í sláturhúsi og um borð í fiskibáti.
Arne
Rawe
Góð Kvikmyndin The Act of Killing verður meðal annars sýnd á hátíðinni.