Morgunblaðið - 08.08.2015, Side 47

Morgunblaðið - 08.08.2015, Side 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Alþjóðlega listahátíðin Cycle verður haldin í fyrsta skipti í Kópavogi dag- ana 13. til 16. ágúst. Nadim Samman er sýningastjóri hátíðarinnar en hann hefur ásamt Fjólu Dögg Sverris- dóttur, fram- kvæmdastjóra há- tíðarinnar, og listrænu stjórn- endunum Guðnýju Guðmundsdóttur og Tinnu Þor- steinsdóttur sett saman mjög efn- isþétta alþjóðlega listahátíð í kring- um menning- arstofnanir Kópa- vogs, Salinn og Gerðarsafn. „Markmið há- tíðarinnar er að skoða mögu- leikann á sam- starfi, samruna og flæði milli sam- tímalistar og hvers konar tónlistar og þá sérstaklega til- raunakenndrar tónlistar. Þannig höfum við t.d. verk sem unnin eru í samstarfi tónlistar- manna og listamanna sem vinna með myndbandsupptökur eða vídeóverk,“ segir Samman. Sjálfur vinnur hann við sam- tímalist, en hann er sýningastjóri samtímalistasafns í Berlín og segist því strax hafa haft áhuga á að vera með þegar stjórnendur Cycle-hátíðar- innar höfðu samband við hann. „Mér fannst strax spennandi að koma að þessu verkefni og áhugavert að setja upp hátíð af þessum toga í bæ eins og Kópavogi. Mér finnst mjög mikilvægt að benda á að bæði bærinn sjálfur hefur verið ofboðslega hjálp- legur við að koma hátíðinni á koppinn og líka áhugavert að fá að nýta sýn- ingarými á borð við það sem menn- ingarmiðstöðvar bæjarins bjóða upp á. Því þó þær séu kannski 20 ára gamlar eru þær svo nýjar.“ Stórstjörnur úr listaheiminum Guðný Guðmundsdóttir er annar tveggja listrænna stjórnenda hátíð- arinnar, en Guðný er menntaður fiðluleikari, listrænn stjórnandi strengjasveitarinnar Skarks og stofnandi Tónlistarhátíðar Unga fólksins. „Cycle Music and Art Festival var sköpuð á grunni Tónlistarhátíðar Unga fólksins. Hátíðirnar fara sam- hliða fram og eru hvatning fyrir ungt tónlistarfólk sem hlýtur klassíska menntun að taka þátt í samtímalist, nýrri tónlist, þverfaglegu samstarfi og sjálfbærni og mynda þar með hringrás,“ segir Guðný. Gífurlegur fjöldi listamanna kem- ur fram á Cycle, m.a. Ólafur Elíasson og Gjörningsklúbburinn, Katrín Mo- gensen, Tyler Friedman, Kaj Duncan David margir fleiri. „Það eru um 100 listamenn sem eiga verk á sýningunni og þau eru sýnd í Salnum, Gerðarsafni, Kópa- vogshæli, Gamla Kópavogsbænum og í Hamraborginni en það skiptir miklu máli hvernig samtalið er við áhorf- endur og þar kemur rýmið sterkt inn. Rýmið getur verið svo gildishlaðið, þ.e. hvernig þú hagar þér þegar þú ferð á tónleika og hvernig þú upplifir listina.“ Guðný bendir t.d. á verk Huldu Rósar Guðnadóttur, sem er útilistaverk á Cycle-hátíðinni á miðju bílastæði. „Verkið heitir THE WORLD WILL NOT END IN 2015. Hluti verksins er hljóðvörpun af Nýja- heimssinfóníu Antonins Dvorak. Segja má að hér blandist saman eldri tónsköpun sem fjallar um hugmynd- ina nýjan heim og svo ádeila á heims- endaspár okkar nútímasamfélags.“ Alþjóðleg listahátíð í Kópavogi  Cycle Music and Art Festival hefst 13. ágúst  Fjöldi listamanna alls staðar að úr heiminum sýnir verk sín  Markmið hátíðarinnar að sýna fram á samruna tónlistar og samtímalistar Georg K. Hilmarsson er einn þeirra listamanna sem flytur verk á Cycle Music and Art Festival í Kópavogi, en innblástur hans er íslenska birtan. „Þegar ég kom úr námi við Mills College í Kaliforníu áttaði ég mig á því hvað birtan hér á Ís- landi er sérstök. Hún er svo skýr og sterk meðan birtan er mildari og gulllitaðri í Kaliforníu. Enda tölum við um fjöllin blá meðan Bandaríkjamenn tala um gyllta fjallstoppa,“ segir Georg en hann fór strax að kynna sér öll þau orð sem Íslendingar eiga um birtu. „Við eigum svo ríkt tungumál og ég uppgötvaði yfir 100 orð um mismunandi birtustig. Ég ætlaði að nota það í verkinu mínu en endaði svo á að nota ekkert þeirra. Hins vegar fjallar verkið mitt um birtuna eða öllu heldur um birtu í heilan dag og yfir á þann næsta.“ Verkið vinnur Georg í samstarfi við Kammerkór Suðurlands og segir hann mjög spennandi að hafa fengið að vinna með því frambærilega fólki. „Það er gott að vinna svona verk með kór en röddin er svo áhugavert hljófæri og hún er líka svo sterk,“ segir hann en Georg er einnig að leggja lokahönd á næstu plötu sína og stefnir á doktorsnám næsta vetur í Banda- ríkjunum. Innblásinn af íslensku birtunni VANN MEÐ KAMMERKÓR SUÐURLANDS Listamaðurinn Georg K. Hilmarsson Bílaplan Hér má sjá útiverk Huldu Rósu Guðnadóttur í Kópavoginum. Guðný Guðmundsdóttir Nadim Samman Hraðbanki Listin er víst allt í kringum okkur – líka í hraðbankanum. » Ofbeldi og glæpir eru víða vandamál í Mexíkó og hafastjórnvöld þar í landi reynt ýmislegt til að lægja ofbeldisölduna. Núna hefur verið gripið til þess ráðs að nota listina til að draga úr glæpum og ofbeldi. Hæðin Las Palmitas er orðin að stærsta málverki sögunnar en bærinn á hæðinni hefur verið málaður í öllum regnbogans litum. Stærsta málverk sögunnar er nú að finna í Mexíkó AFP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.