Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 49
Íslendingar eru
góðir í tónlist og
skiptir þá engu
um sortina
Fersk augu og
eyru lukust upp á
mánudaginn var
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Síðasta sunnudag fluttum viðfjölskyldan aftur heim til Ís-lands eftir þriggja ára dvöl
erlendis. Kvöldið eftir sýndi RÚV
rúmlega eins og hálfs tíma tón-
leika sem voru teknir upp á Fiski-
deginum mikla í Dalvík í fyrra. Ég
horfði bergnuminn á og fannst
þetta allt saman stórkostlegt. Hér
eru ástæðurnar fyrir því. Held ég.
Ný sýn
Fjarvera frá Íslandi í langan
tíma gerir það að verkum að mað-
ur sér hluti í nýju ljósi. Þeir verða
skýrari, það sem þér fannst einu
sinni hallærislegt er allt í einu orð-
ið forvitnilegt og fallegt,
súkkulaðisnúðurinn í bakaríinu
sem þú varst hættur að taka eftir
er allt í einu orðinn að exótísku
matarfangi. Þú snýrð m.ö.o. aftur
ferskur, Íslandsþreytan er á bak
og burt og hið jákvæða blasir við
fremur en hið neikvæða. Þannig
líður mér a.m.k. akkúrat núna. Ég
viðurkenni að þegar ég hef komið
hingað í stutt stopp hef ég verið
uppfullur af neikvæðum straum-
um, fundist allt hérna óttalega
smáborgaralegt. En ekki núna.
Kannski er sjálfsbjargarviðleitnin í
yfirgír, úr því að þú ert kominn þá
er best að gera gott úr þessu, en
það er líka einhver heilnæm sátt
sem hefur hellst yfir mig. Og ég
leyfi þessu að flæða, tilfinningin er
notaleg: Sjá kæru landar, það er
ýmislegt gott og gagnlegt við
þetta blessaða land.
Í þessu hugarfari sat ég fyrir
framan skjáinn síðasta mánudags-
kvöld og fylgdist með flugeldasýn-
ingu Rigg viðburða á Dalvík.
Þarna komu þau eitt af öðru;
Matti Matt, Friðrik Ómar, Eyþór
Ingi, Selma Björns, Heiða og
meira að segja Rauðhærði Riddar-
inn. Stóreflis hljómsveit lék við
hvurn sinn fingur og lög Bee Gees,
Glöggt er gests augað (og eyrað)
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Innlifun Íslendingar kalla ekki allt ömmu sína þegar kemur að tónlistarviðburðum.
Meat Loaf og Elvis Presley ásamt
Evróvisjón- og þungarokks-
slögurum drundu úr viðtækinu.
Ljósasýningin var allsvakaleg,
mikið stuð á sviðinu og fyrir fram-
an það. Fagmennskan var tilfinn-
anleg, fyrirtaks skemmtun og ekki
orð um það meir (ókei, bara nokk-
ur í viðbót).
„Íslenskt“
Aðrir heimilisgestir horfðu á
mig í forundran þar sem ég
dásamaði viðburðinn. „Mikið er
þetta flott ljósasjó, rosalega er
myndatakan góð, rosalega syngur
hann vel,“ o.s.frv. Það segir mikið
um smæð íslenska dægurtónlistar-
bransans að ég var málkunnugur
öllum uppi á sviðinu, hafandi
kynnst þeim á einn eða annan hátt
í gegnum störf mín sem tónlistar-
blaðamaður þar sem ég hef lofað
þau bæði og lastað og alveg
ábyggilega verið sanngjarn sem
ósanngjarn. Það runnu svona „við
Íslendingar getum þetta vel“
straumar um mig og á einum
tímapunkti hrópaði ég: „Það er
sama hvort við erum í frumsömdu
eða tökulagaefni. Íslendingar eru
snillingar í þessu öllu!“ Það var
líka eitthvað notalegt við það að
sjá einn gítarleikarann una sér við
sólóspretti vitandi að sami maður
fékk afmæliskveðjur frá mér á
Fésinu í síðustu viku. Það er eitt-
hvað verulega „íslenskt“ við slíkt.
Það eru meiri líkur á því en
minni að ég hefði fussað og sveiað
yfir þessum viðburði fyrir ein-
hverjum árum. Og ég átti reyndar
í skemmtilegu fésbókarspjalli við
nokkra aðstandendurna fyrir
stuttu eftir að ég hafði hent frá
mér einhverri drulluköku eftir að-
eins of marga morgunkaffibolla.
Spjall sem fékk mig til að ígrunda
þessi mál nokkuð.
Sjálfsskoðun
Áðurnefnd Íslandsþreyta stýr-
ir fyrst og fremst svona drullu-
kökukasti, það sé ég eftir þessa
nettu sjálfsskoðun. Og já, ég hef
líka orðið þreyttur á „skrítnu“ tón-
listinni okkar sem fellir sig vel að
útflutningi, bara svo það sé á
hreinu. Hæfileg útlegð frá landi
elds og ísa er hins vegar vel til
þess fallin að rétta skekkjubundin
viðhorf af, ferskja mann upp og
koma hlutum í réttara ljós. Ég er í
senn hissa og glaður yfir því að
hafa gripið sjálfan mig svona í ból-
inu. Góðar stundir.
»Ég viðurkenni að þegar ég hef komið hingað ístutt stopp hef ég verið uppfullur af neikvæðum
straumum, þótt allt hérna óttalega smáborgaralegt.
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
Kunstschlager opnar sýninguna
Wiolators: Reykjavíkurútgáfan í
dag kl. 15 í Kunstschlagerstofu
Hafnarhússins. „Alþjóðlegi lista-
hópurinn Wiolators var stofnaður
árið 2011 í Gerrit Rietveld Aka-
demíunni í Amsterdam. Hópurinn
hefur tvístrast um alla Evrópu frá
útskrift en heldur nú árlega sýn-
ingu í einhverju heimalandi með-
limanna. Íslenska útgáfan snýst
m.a. um að aðeins þrír meðlimir
Wiolators komust til Íslands. Þeir
eru því í umboði fyrir fjarverandi
meðlimi og fá sendar leiðbeiningar
um hvernig þeir eigi að klára send
verk,“ segir m.a. í tilkynningu.
Leiðsögn Sendar voru leiðbeiningar um
hvernig ætti að klára að vinna send verk.
Wiolators sýnir hjá
Kunstschlager
Breski leikarinn
Steven Berkoff
mun fara með
hlutverk Sadd-
ams Hussein í
nýju leikriti eftir
Anthony Horo-
witz sem frum-
sýnt verður í
London í næsta
mánuði. Um
pólitíska háðsádeilu er að ræða.
Berkoff hefur leikið nokkurn
fjölda illmenna á löngum ferli sín-
um, jafnt á sviði og hvíta tjaldinu.
Hann fór m.a. með hlutverk Orlovs
hershöfðingja í Octopussy og Pod-
ovsky undirofursta í Rambo II, auk
þess sem hann fór með hlutverk
Adolfs Hitler í sjónvarpsþáttaröð
sem gerð var á níunda áratug síð-
ustu aldar. Breska dagblaðið
Guardian hefur eftir Berkoff að
hann myndi glaður vilja leika alla
einræðisherra á 20. öldinni. „Það
væri dásamlegt, því að einræðis-
herrar eru heillandi manneskjur og
það felast mikil forréttindi í því að
fá að takast á við svo bitastæð hlut-
verk.“
Berkoff leikur
Saddam Hussein
Steven Berkoff
Bandaríski uppistandarinn og grín-
istinn Jon Stewart hefur tekið upp
sinn síðasta þátt með The Daily
Show eftir 16 ár sem þáttastjórn-
andi. Margir hafa lýst Stewart sem
einum af valdamestu fréttamönn-
um eða álitsgjöfum samtímans því
að þrátt fyrir að þáttur hans hafi
fyrst og fremst snúist um uppistand
og grín hefur ádeila hans á vald-
hafa náð eyrum ungu kynslóðar-
innar.
Suður-Afríkumaðurinn og grín-
istinn Trevor Noah tekur við af
Stewart, en hann hefur skotist
hratt upp stjörnuhimininn á undan-
förnum árum. Valið á arftaka Stew-
art er áhugavert í ljósi þess að uppi-
stand er ekki nema kannski 20 ára
gömul listgrein í Suður-Afríku að
sögn Noah sjálfs, sem segir uppi-
stand ekki hafa verið í náðinni á að-
skilnaðartímanum.
Jon Stewart kveður eftir 16 ár
AFP
Kveðjustund Jon Stewart gengur frá myndveri The Daily Show í síðasta sinn sem þáttarstjórnandi.
Síðasti þáttur The
Daily Show undir
stjórn Jon Stewart
var á fimmtudag
TRAINWRECK 5, 8, 10:35
FANTASTIC FOUR 8, 10:15
MISSION IMPOSSIBLE 8, 10:35
PIXELS 3D 1:45, 5
SKÓSVEINARNIR 2D 2, 4
MINIONS 2D 6
INSIDE OUT 2D 2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2TILBOÐ KL 1:45