Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2015, Qupperneq 25
9.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
VESTA
Tungusófi, hægri
eða vinstri tunga.
Grátt eða brúnt
áklæði.
Stærð:
295 × 160 × 80 cm
239.990 kr.
299.990 kr.
GLOBE
Fæst í svörtu,
rauðu og ljósu leðri.
Stærð: 76 × 70 × 113 cm
Stóll
319.990 kr.
Skemill
69.990 kr.
Stóll og skemill
315.980 kr. 389.980 kr.
lífrænan hátt ofan í geilina við melinn yfir
ánni og eins og gægist þar yfir.
„Þetta er svo sérstakur og fallegur melur.
Hann er eins og mósaík,“ segir Helgi. „Við
gættum vel að því að húsið væri vel byggt og
endingargott, þar sem þarna geta komið alls-
kyns veður. Við nutum góðs af samstarfi við
frábæra verktaka, bræðurna með Mælifell.
Allt handverkið er mjög gott og öruggt.
Þetta er hús sem á að duga.“
Á hluta veggjanna er dimmrautt bárusínk
og sama efni, grátt, á þaki. „Til að brjóta
flötinn upp settum við inn við gufubaðið og
pallinn viðarklæðningu, úr furu,“ segir Helgi.
„Hún kallar fram strúktúrinn í húsinu og
kemur ágætlega út.“
Byggingin fellur vel að landinu
Helgi lagði auðheyrilega mikla áherslu á að
byggingin félli vel inn í landið og hefur tekist
það afar vel. Þegar horft er frá ánni situr
húsið hógvært á melnum og leynir mikið á
sér. „Það kúrir eiginlega þarna á melnum,“
segir hann og hlær.
Veiðihús við íslenskar veiðiár hafa verið
misvel lukkuð, eins og gengur. Í ljós kemur
að Helgi og félagar teiknuðu einnig hið fína
hús við Svartá í Húnavatnssýslu, auk
Hvammsgerðis hér áður og viðbyggingu við
veiðihúsið við Laxá í Leirársveit sem Streng-
ur leigði í tíu ár. „Þetta tengist þessu mikla
áhugamáli mínu, stangveiðinni,“ segir hann.
„En Selá þekki ég eins og vasana mína,
veiddi í henni í fjörutíu ár, hún er alveg
mögnuð. Rétt eins og nágrannaáin Hofsá,
Mér finnst erfitt að gera upp á milli þeirra.
Það er líka eftirsóknarvert, eins og í Selá, að
þar er veiðimaðurinn alveg út af fyrir sig,
með náttúrunni og góðum félögum,“ segir
Helgi. Hann hefur gert dvöl gesta þar enn
þægilegri og áhugaverðari í hinu vandaða
nýja veiðihúsi, Fossgerði.
Morgunblaðið/Einar Falur
„Austfirðingur“ á vegg þar sem gengið er niður í
vöðlugeymslu og aðstöðu starfsfólks.
Baðherbergi gesta eru fagurlega hönnuð. Tvö
eru með baðkari í stað sturtu, ef gestir kjósa.
Fossgerði séð úr lofti, þar sem
byggingin „situr“ í nokkrum
einingum í geilinni á melnum.
Hin gjöfula Selá streymir hjá.