Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2015, Qupperneq 34
Tíska
Tískuvikan í Kaupmannahöfn vakti lukku
AFP
*Margir hönnuðir vöktu lukku á tískuvikunni í Kaupmanna-höfn sem fór fram dagana 4.-7. ágúst. Að mati margra stóðuhönnuðir á borð við Henrik Vibskov, Barbara i Gongini ogAsger Juel Larsen upp úr. Freya Dalsjø var einnig ákveðinnhápunktur vikunnar. Þá var lína Baum und Pferdgarten nokk-uð glæsileg og Ganni var með töff samsetningar.Víða á netinu er að finna tugi mynda frá hverri sýningu sem
vert er að kíkja á yfir góðum kaffibolla.
H
vernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Fatastíllinn minn er ein-
faldur og laus við allt óþarfa glingur. Ég er oft skömmuð fyrir
að vera ekki nógu mikið í lit en það mun seint breytast.
Hvaða þekkta andlit finnst þér hafa flottan stíl? Patti Smith
er án efa mesti töffari sem ég veit um og ég ætla að verða alveg eins og
hún!
Hvað hefur þú í huga þegar þú skoðar eða kaupir ný föt? Ég spái rosa-
lega mikið í notagildið og hversu þægileg fötin eru. Það skiptir mig
miklu máli að mér líði vel, ég á það t.d. til að fá mikla innilokunar-
kennd í fötum ef þau eru of þröng nálægt hálsi eða á stöðum þar
sem maður þarf að hafa pláss. Óþægilegur fatnaður getur komið
mér í urrandi vont skap og eyðilagt heilan dag!
Hvert er uppáhaldstrendið þitt þessa dagana? Að vera með
sólgleraugu innandyra!
Áttu uppáhaldsflík? Gullleðurjakkinn minn sem ég
keypti í vintage-búð í New York fyrir mörgum ár-
um, hann var notaður í mynd eftir
Woody Allen. Hann er svo fallegur
að hann hangir alltaf á herðatré
uppi á vegg hjá mér sem nokkurs
konar listaverk.
Hvað stenstu ekki að kaupa
þótt þú eigir nóg af því? Yfirhafnir, maður á
aldrei nóg af þeim á Íslandi.
Hefur stíllinn þinn breyst í gegnum árin? Ég
flutti frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur þegar
ég var 14 ára og þá var ég bara alltaf í ljósbláa
leðurjakkanum mínum með Nike-svitabandið
um ennið en svo þegar ég byrjaði í Mennta-
skólann við Hamrahlíð fór ég að þróa eitthvert mjög
skemmtilegt ömmulúkk, í síðum prjónapilsum og tátil-
jum. En svo þegar ég flutti t.d. til Kaupmannahafnar
frá Íslandi til þess að opna skemmtistaðinn Jol-
ene var ég fyrstu árin hverja einustu helgi í vin-
unni í megaháum hælaskóm og með hárleng-
ingar. Ég er ekki alveg viss hvað gerðist en
stíllinn minn hefur breyst mikið síðan.
Hverju myndir þú aldrei klæðast? Kjól eða
pilsi.
Hvað er á óskalistanum? Ég er alltaf á leiðinni
að fá mér nýjan hatt úr JÖR.
Áttu einhverja uppáhaldshönnuði eða –merki?
Danski fatahönnuðurinn Asker Juel Larsen hef-
ur verið að trylla allt upp á síðkastið. Hann er
ögrandi, notar mik-
ið leður og óvenju-
leg munstur. Svo
erAlexander Wang snillingur í að hanna snið
sem passa ótrúlega vel við mig.
Hvaða flík sérðu mest eftir að hafa keypt?
Hef aldrei séð eftir neinum kaupum!
Hver eru þín bestu kaup hingað til? Mótor-
hjólaleðurstígvélin mín sem ég hef átt og not-
að síðustu 10 árin sem fást ennþá hjá sama
gamla leðursmiðnum á Studiestræde í Kaup-
mannahöfn. Það eru komin göt á þau og þau
hafa oft sungið sitt síðasta en ég neita að
hætta að nota þau og hef látið laga þau fyrir
margfalt virði þeirra.
ÓÞÆGILEGUR FATNAÐUR ÓÞOLANDI
Dóra Dúna hefur einfaldan
stíl og segist laus við allt
óþarfa glingur.
Morgunblaðið/Eggert
Svöl með
sólgleraugu
innandyra
DÓRA DÚNA SIGHVATSDÓTTIR STARFAR SEM AT-
BURÐASTJÓRI (E. EVENT MANAGER) Í KAUPMANNA-
HÖFN. HÚN HEFUR BÚIÐ ÞAR Í SJÖ ÁR EN BÝR EINS OG
ER Á ÍSLANDI OG STARFAR Í FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKINU
OG FATABÚÐINNI GOTTU Á LAUGAVEGI. DÓRA DÚNA
HEFUR ROKKAÐAN STÍL OG ER ALLTAF TÖFF TIL FARA.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Alexander
Wang er í
miklu uppá-
haldi hjá
Dóru Dúnu.
Dóra opnaði staðinn Jol-
ene í Kaupmannahöfn með
vinkonu sinni Dóru Take-
fusa á sínum tíma.
Dóru þykir Patti Smith
vera mikill töffari.
Dóra kaupir mest
af yfirhöfnum enda
þarf að eiga nokkr-
ar góðar hér á
landi, sér í lagi yfir
vetrartímann.