Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Page 7

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Page 7
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 2011 3 Þjóðfélagsumræðan hér á landi er sannarlega með neikvæðara móti þessa mánuðina og misserin. Dapurlegar fréttir um fjárhagsvanda, niðurskurð og uppsagnir hellast yfir okkur daglega. Fátt er um jákvæðar og uppbyggjandi fréttir sem þó er einmitt það sem landsmenn þurfa á að halda. Mitt í öllum neikvæða fréttaflutningnum birti þó til þegar Ríkisútvarpið gerði kynningardegi 4. árs hjúkrunarfræðinema við Háskóla Íslands góð skil. Nemarnir nefndu daginn „Á krossgötum“ enda eru tímamót fram undan hjá þeim. Fjögurra ára háskólanámi, með því öryggi sem því fylgir, er að ljúka og hinn harði heimur að taka við. Á þessum krossgötum kynntu þeir nýjar og hefðbundnar hliðar á starfsvettvangi hjúkrunarfræðinga. Í faglega hönnuðum kynningarbásum mátti fræðast um hjúkrun í heilsugæslu, fangelsishjúkrun, áfallahjúkrun, heilsuhýsi og þyrluhjúkrun svo fátt eitt sé nefnt. Mikið var lagt í framsetningu efnisins og frumleikinn alls ráðandi. Nemendurnir höfðu greinilega áhuga á því sem þeir voru að kynna og voru stoltir af verkefnum sínum og því starfi sem bíður þeirra. Það er sannarlega ástæða til að gleðjast og horfa keikur fram á veginn eftir svo jákvæða og hvetjandi kynningu á störfum hjúkrunarfræðinga. Nokkur óvissa bíður þessara verðandi hjúkrunarfræðinga. Flestir fá þeir einungis tímabundna ráðningarsamninga og margir hverjir ekki störf á sinni óskastofnun eða deild. Þeir búa yfir nýjustu þekkingunni í hjúkrun og því mikilvægt að nýta starfskrafta þeirra. Þó líklega sé nú þrengra á atvinnumarkaði hjúkrunarfræðinga en nokkru sinni áður, hefur sú staða jákvæðar hliðar einnig. Nú er víðast vel mannað af hjúkrunarfræðingum og það ætti að leiða til þess að gæði hjúkrunarþjónustunnar verði enn meiri en áður. Á Landspítala er verið að innleiða sjúklingaflokkunarkerfið Rafaela sem mun auðvelda stjórnendum að tryggja hæfilega mönnun miðað við hjúkrunarþyngd á hverri deild. Skráning í kerfið mun einnig auðvelda hjúkrunarfræðingum að kynna verkefni og ábyrgð hjúkrunarfræðinga og mikilvægi þeirra í heilbrigðisþjónustunni. Sjúkrahúsið á Akureyri og jafnvel fleiri stofnanir hyggjast síðar taka upp þetta sama kerfi. Hjúkrunarfræðingar á vegum FÍH hafa undanfarin misseri unnið að setningu gæðavísa um fimm þætti hjúkrunar, í samstarfi við aðra norræna hjúkrunar- fræðinga. Nú liggja fyrir gæðavísar um byltur, verki, næringu, þrýstingssár og mönnun. Þessir gæðavísar munu ekki hvað síst nýtast í öldrunarhjúkrun þar sem nú er lag að fjölga hjúkrunarfræðingum. Samfara hækkandi hlutfalli aldraðra í samfélaginu á næstu árum og áratugum er nauðsynlegt að efla hjúkrun bæði innan stofnana og í heimahúsum. Gæða- og þróunarstarf hjúkrunarfræðinga er einn grundvöllur þess að stjórnvöld stýri þjónustu við aldraða á markvissan og öruggan hátt. Nýverið hlutu Sigríður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur og samstarfsmenn hennar styrk úr Rannsóknasjóði (Rannís), að upphæð tæplega sjö milljónir króna vegna prófunar á starfsþróunaríhlutun fyrir hjúkrunarfræðinga til að bæta verkja meðferð. Styrkurinn er mikil viður- kenning fyrir Sigríði og hvetur aðra hjúkrunarrannsakendur til dáða. Sérfræðingum í hjúkrun hefur fjölgað mikið frá því ný reglugerð var sett árið 2003. Sérfræðingar starfa nú á mörgum sérsviðum hjúkrunar á Landspítala og nýlega var fyrsti sérfræðingurinn í hjúkrun ráðinn til Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins. Það er vel enda efling heilsu- gæslunnar nauðsynlegri nú en nokkru sinni. Af framansögðu má ljóst vera að hjúkrunar fræðingar sækja víða fram. Sóknarfæri í hjúkrun liggja líka víða. Hjúkrunar fræðingar sjálfir þurfa nú meira en nokkru sinni fyrr að meta þekkingu sína og færni að verðleikum. Samstaða og stuðningur fleyta stéttinni langt. Ég hef nú verið formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í tæp átta ár. Þau ár hafa liðið hratt, líklega vegna þess hve fjölbreytt og áhugavert starf formannsins er. Á þessum árum hefur mikið áunnist í kjaramálum þó sanngjarnt væri að laun hjúkrunarfræðinga væru mun hærri. Endurskoðun á stefnu félagsins í hjúkrunar- og heilbrigðismálum er nú á lokastigi, skipulagi félagsins hefur verið breytt með aukið lýðræði og skilvirkni að markmiði, ýmis átaksverkefni hafa verið unnin, svo sem varðandi ímynd hjúkrunarfræðinga, og svona mætti áfram telja. Enn er margt óunnið enda verkefnum fag- og stéttarfélags aldrei lokið. Ég hef nú ákveðið að gefa kost á mér til að gegna formennsku í FÍH næstu tvö árin. Ég vona að með þekkingu minni og reynslu geti ég enn unnið hjúkrunarfræðingum gagn við þær krefjandi aðstæður sem nú eru uppi. HORFUM KEIK FRAM Á VEGINN Formannspistill Elsa B. Friðfinnsdóttir.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.