Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Page 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 2011 5
Þetta gefur tilefni til að velta vöngum yfir hvernig heilbrigðiskerfið muni líta út
eftir 10 til 20 ár. Ljóst er að atvinnutækifærum hjúkrunarfræðinga er að fækka
á opinberum sjúkrahúsum. Kreppan hefur hraðað þessu ferli en alveg óháð
kreppunni er tími sjúkrahússins, eins og hjúkrunarfræðingar hafa þekkt það á
síðustu öld, á þrotum. Florence Nightingale hélt að sjúkrahúsið sem skipulagsform
myndi hverfa á 20. öld en þróunin í heilbrigðiskerfinu hefur gengið eitthvað hægar
en hún gerði ráð fyrir. Nú fara sjúklingar heim eftir einn eða tvo sólarhringa, jafnvel
eftir flóknar skurðaðgerðir, og greining, meðferð og umönnun fara æ oftar fram á
göngudeild eða á heimili sjúklingsins.
Hugsanlega mun fólk ekki leggjast inn á sjúkrahús framtíðarinnar nema þörf sé
fyrir gjörgæslu. Önnur starfsemi fer fram annars staðar. Tímabil sjúkrahúsanna í
sögu heilbrigðisþjónustunnar verður því einungis nokkrar aldir. Það er ekki langt
síðan fólk fór bara á sjúkrahús í ýtrustu neyð og þannig mun það verða aftur.
Hjúkrunarfræðinemar hafa tekið eftir þessu og farið að hugsa sinn gang.
Síðastliðin tvö ár hafa nemar í hjúkrunarfræðideild HÍ kynnt sér hvaða störfum
hjúkrunarfræðingar geta sinnt utan hinna hefðbundnu deilda sjúkrahúsanna.
Afraksturinn, í formi opinberrar kynningar, er glæsilegur eins og fram kemur
annars staðar í blaðinu.
En hvar munu þá hjúkrunarfræðingar framtíðarinnar starfa? Flestir munu eflaust
starfa við heimahjúkrun, við heilsugæslu, á móttökum ýmiss konar og við
forvarnir, eins og reyndar flestir hjúkrunarkonur gerðu fyrir síðustu öld. Hins vegar
verða störfin talsvert sérhæfðari en þau voru þá.
Það má spyrja sig hvort menntun og endurmenntun hjúkrunarfræðinga búi
hjúkrunarfræðinga undir þessi framtíðarstörf eða hvort takmark námsins sé legu-
deildarhjúkrunarfræðingurinn. Það er annarra að svara því, gjarnan með umræðu-
og fræðslugreinum í Tímariti hjúkrunarfræðinga.
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 6405
Bréfsími 540 6401
Netfang christer@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sími skrifstofu 540 6400
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Christer Magnusson
Ritstjórnarfulltrúi
Sunna K. Símonardóttir
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu
christer@hjukrun.is.
Leiðbeiningar um ritun fræðslu- og fræðigreina er
að finna á vefsíðu tímaritsins.
Ritnefnd:
Auðna Ágústsdóttir
Brynja Ingadóttir
Dóróthea Bergs
Herdís Sveinsdóttir
Ingibjörg Jóna Friðbertsdóttir
Sigríður Skúladóttir
Ráðgjafi vegna handrits í ritrýni:
Árún K. Sigurðardóttir
Fréttaefni:
Aðalbjörg Finnbogadóttir, Christer Magnusson,
Jón Aðalbjörn Jónsson, Sigríður Halldórsdóttir,
Sigrún Ólafsdóttir
Ljósmyndir:
Christer Magnusson, Jóhannes Long, Sigurður
Bogi Sævarsson, Þorsteinn Jónsson o.fl.
Próförk og yfirlestur:
Ragnar Hauksson
Auglýsingar:
Þórdís Gunnarsdóttir, sími 866 3855
Hönnun: Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT
Prentvinnsla: Litróf
Upplag 4000 eintök
Pökkun og dreifing: Pósthúsið
ENDALOK SJÚKRAHÚSSINS
Nýlega heyrðist í fréttum að starfs-
mönnum Landspítala hefði fækkað um
600 á nokkrum árum. Verið er að sam-
eina Landspítala og St. Jósefspítala í
Hafnarfirði og er eflaust gert ráð fyrir að
starfsmönnum fækki í kjölfarið.
Christer Magnusson.
Ritstjóraspjall